Innlent

Sveinum fer fækkandi

Þeim sem ljúka sveinsprófi hefur farið fækkandi undanfarin ár. Þessa fækkun má útskýra með ríkjandi þenslu í þjóðfélaginu og yfirborgunum sem henni fylgir. Á skólaárinu 2003-2004 útskrifuðust 508 nemendur með sveinspróf og var það 57 nemendum færra en árið áður. Þrátt fyrir að útskrifuðum sveinum hafi fækkað hefur nemendum í iðnnámi ekki fækkað í samræmi við það. Varaformaður Iðnnemasambansins segir aukna vinnu fylgja sveinsprófinu og að margir sjái sér leik á borði og fresti því eða reyni að sleppa alveg við þar sem því fylgir aukin vinna. Í mörgum greinum vantar hreinlega fólk og mikið er um að fyrirtæki yfirborgi og bjóði í fólk sem ekki hefur lokið sveinsprófi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×