Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bíða úrlausnar mála sinna Stríðið í Tsjetsjeníu teygir anga sína víða, meðal annars hingað til lands. Ung múslimahjón frá Tsjetsjeníu leituðu hælis hér á landi fyrir tæplega hálfum mánuði. Maðurinn segist ekki vilja berjast gegn Rússum eða nokkrum öðrum, en óttast um líf sitt, - að verða álitinn svikari af löndum sínum. 14.10.2005 00:01
Milljóndollara seðlar Bíræfnir peningafalsarar hafa undanfarna mánuði reynt að fá íslenska banka til að taka sjötíu einnar milljónar dollara seðla sem veð gegn láni. Það jafngildir nærri fjórum og hálfum milljarði króna. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur seðlana undir höndum og vinnur nú að því með lögregluyfirvöldum í Bretlandi að hafa hendur í hári svindlaranna. 14.10.2005 00:01
Skotvopnasala bönnuð í Brasilíu? Bann við sölu á byssum og skotfærum til almennra borgara í Brasilíu gæti orðið raunin áður en langt um líður. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögu þess efnis og mun þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram um málið í lok mánaðarins en það er í fyrsta sinn sem málefni af þessum toga er lagt í dóm almennings. 14.10.2005 00:01
Kosningar í Írak á morgun Eftir blóðugt stríð og hryðjuverk í meira en tvö ár vona íröksk stjórnvöld og hersetuveldin að morgundagurinn marki tímamót en hvers eðlis þau verða er með öllu óvíst á þessari stundu. Stjórnarskráin er ýmist talin marka upphaf tímabils friðar og lýðræðis, eða upphaf endalokanna. 14.10.2005 00:01
Öryggisráðið ekki stækkað John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, spáði því opinberlega í gær að sú tilraun sem í gangi væri til að fjölga aðildarríkjum öryggisráðs SÞ myndi fara út um þúfur. Bandarísk stjórnvöld myndu aðeins styðja að stækka ráðið upp í 19 eða í mesta lagi 20 aðildarþjóðir, úr 15 nú. 14.10.2005 00:01
Á annað hundrað í valnum Rússneskir her- og lögreglumenn kembdu í gær í gegnum Nalchik, héraðshöfuðborg Kákasushéraðsins Kabardino-Balkariya, í leit að meintum íslömskum uppreisnarmönnum sem á fimmtudag gerðu óvæntar árásir á stjórnsýslubyggingar og lögreglustöðvar í borginni. Að minnsta kosti 108 manns lágu í valnum eftir átökin. 14.10.2005 00:01
Stoltenberg tekur við á mánudag Ný samsteypustjórn vinstriflokka tekur formlega við embætti í Noregi á mánudag, en miðju-hægristjórn Kjells Magne Bondevik sagði af sér í gær. 14.10.2005 00:01
María Elísabet á fæðingardeild María Elísabet krónprinsessa af Danmörku var í gærkvöld lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum danskra vefmiðla benti flest til þess að hún væri komin að fæðingu, um hálfum mánuði fyrir tímann. 14.10.2005 00:01
Gagnrýna hernaðarvanmátt Evrópu Í nýrri sérfræðiskýrslu um varnarmál í Evrópu er komist að þeirri niðurstöðu að ráðamenn í flestum löndum álfunnar hafi sýnt vanrækslu með því að láta hjá líða að nútímavæða herafla landa sinna svo að hann stæðist kröfur tímans. Varnarmálaráðherrar ESB-ríkja tóku undir þessa gagnrýni á fundi sínum fyrir helgi. 14.10.2005 00:01
Vímuvarnarvikan 2005 Vímuvarnarvikan 2005 verður haldin dagana 17. -23. október næstkomandi. Fjölmörg samtök standa að vikunni en henni er ætlað að beina athygli að börnum og forvarnarstarfi. 14.10.2005 00:01
Hefur öðlast trú á mannkynið á ný Það á alltaf að leyfa börnunum að njóta vafans og tilkynna um ef minnsti grunur er um að þau séu beitt ofbeldi. Þetta segir Thelma Ásdísardóttir sem hefur hrundið af stað vakningu gegn barnaofbeldi í samfélaginu. 14.10.2005 00:01
Eftirlit hert í Leifsstöð Yfirdýralæknir hefur beðið um hert eftirlit í Leifsstöð vegna fuglaflensu sem er að breiðast út. Landbúnaðarráðuneytið gaf í gær út herta reglugerð um innflutning á fuglum og hvers kyns fuglaafurðum. 14.10.2005 00:01
Sláturfé sett á gjöf Sunnlenskir bændur hafa nú sláturlömb sín á gjöf og bíða óvenju mörg lömb slátrunar. Þeir eru uggandi um hvort hægt verði að slátra hrútlömbunum áður en þau verða kynþroska. 14.10.2005 00:01
Eldur í íbúð við Skúlagötu Eldur kom upp í kjallaraíbúð við Skúlagötu í kvöld og var allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sent á vettvang. Að sögn varðstjóra á vakt er nú búið að slökkva eldinn en íbúðin var mannlaus. Mikinn reyk lagði frá henni og a.m.k. ein rúða í íbúðinni sprakk vegna eldsins. 14.10.2005 00:01
Falsaðir milljóndollaraseðlar Erlendur maður hefur undanfarna mánuði reynt að blekkja íslenska banka með fölsuðum bandarískum milljón dollara seðlum. „Þetta er mjög ævintýralegt, seðlarnir eru mjög vel falsaðir, þetta er allt mjög faglega gert,“ segir Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn Ríkislögreglustjóraembættisins. 14.10.2005 00:01
Eftirlaunafrumvarpið dýrt Aukinn kostnaður ríkisins vegna eftirlaunafrumvarpsins, sem tekur til alþingismanna, var um 650 milljónir króna árið 2004, samkvæmt fjársýslu ríkisins. Þegar Davíð Oddson, þáverandi forsætisráðherra og núverandi Seðlabankastjóri, lagði fram frumvarpið árið 2003, áætlaði hann að kostnaðaraukningin yrði um sex milljónir króna á árinu 2004. 14.10.2005 00:01
Átta segja upp Átta háskólamenntaðir starfsmenn hafa sagt upp hjá Landmælingum Íslands síðan í vor, en þar starfa um 35 manns. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fer nú fram sálfræðiúttekt á samskiptum yfirmanna Landmælinga við undirmenn. 14.10.2005 00:01
Formaður kjörinn einróma Ingólfur Sveinsson var einróma kjörinn formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis suður á aðalfundi félagsins á fimmtudagskvöld. Sigrún Jónsdóttir, fyrrum formaður félagsins, hafði ákveðið að gefa ekki kost á sér að þessu sinni. 14.10.2005 00:01
Dómsmálaráðherra talinn vanhæfur Bogi Nilsson ríkissaksóknari hefur sagt sig frá Baugsmálinu. Gestur Jónsson telur að dómsmálaráðherra sé hugsanlega vanhæfur til þess að velja nýjan saksóknara. Páll Hreinsson dósent segir þessar reglur vandmeðfarnar. 14.10.2005 00:01
Barist um völdin hjá Framsókn Búist er við átökum á aðalfundi Framsóknarfélagsins í syðra kjördæmi Reykjavíkur í kvöld. Rúmlega hundrað nýir félagsmenn hafa bæst í félagið fá mánaðamótum að því er Fréttablaðið greinir frá í dag og munu flestir þeirra stuðningsmenn Björn Inga Hrafnssonar, varaþingmanns og aðstoðarmanns forsætisráðherra. 13.10.2005 00:01
Breyta iðnaðarsvæði í íbúðabyggð Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi íhuga að breyta iðnaðarsvæðinu við Bygggarða og Sefgarða, vestast í bænum, í íbúðabyggð. Hugmyndirnar snúa að því að reisa þétta byggð á þriggja hektara landsvæði þar sem húsin yrðu ýmist tvær eða þrjár hæðir. 13.10.2005 00:01
Betri byggð mótmælir Samtök um betri byggð mótmæla harðlega leiðandi spurningu í skoðanakönnun samgönguráðherra um framtíðarstaðsetningu miðstöðvar innanlandsflugsins þar sem eingöngu var gefinn kostur á flutningi til Keflavíkur. Samtökin telja að þessi leiðandi spurning hafi valdið einstaklega lágu svarhlutfalli, eða 54 prósentum. 13.10.2005 00:01
Skrúfað frá brunahönum í borginni Suðurgatan í Reykjavík lokaðist fyrir umferð á tólfta tímanum í gærkvöldi vegna vatnsflaums úr brunahana, en nokkru áður hafði verið skrúfað frá brunahana við Listabraut og nokkru síðar við Engjaveg. Lögreglu- og slökkviliðsmenn skrúfuðu fyrir hanana og ekki hlaust tjón af í þetta skiptið. 13.10.2005 00:01
Setur landsfund í síðasta sinn Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag, sá þrítugasti og sjötti í röðinni. Davíð Oddsson setur landsfund í síðasta sinn sem formaður Sjálfstæðisflokksins en eftirmaður hans verður kjörinn á sunnudag. 13.10.2005 00:01
Pakistanar biðja um meiri aðstoð Musharraf forseti Pakistan, hefur beðið alþjóðasamfélagið um meiri aðstoð vegna hamfaranna þar á dögunum en hann sagði hörmungarnar meiri en stjórnvöld réðu við. Musharraf viðurkenndi að hjálpar- og björgunarstarf gengi illa en bað landsmenn um að sýna umburðarlyndi. 13.10.2005 00:01
Öflugur eftirskjálfti í Pakistan Öflugur eftirskjálfti reið yfir Islamabad, höfuðborg Pakistan í gærkvöld, fjórum dögum eftir að jarðskjálfti upp á 7,6 á richter varð að minnsta kosti 40 þúsund manns að bana í landinu. 13.10.2005 00:01
Krefst bóta af borginni Hinn 64 ára gamli Robert Davis, sem á dögunum var barinn af lögrelgunni í New Orleans, ætlar að höfða skaðabótamál gegn borginni. Sjálfur sagðist Davis vera saklaus fyrir dómi en hann er ákærður fyrir ölvun á almannafæri og fyrir að hafa veitt viðnám við handtöku. 13.10.2005 00:01
Skaut sextán skólabörn Kínverskur karlmaður skaut og særði sextán ung skólabörn í Anhui héraði í austanverðu Kína. Sjö barnanna liggja alvarlega særð á sjúkrahúsi en ekkert þeirra er í lífshættu. Maðurinn flýði úr skólanum eftir árásina og um 200 lögreglumenn leita nú að honum. 13.10.2005 00:01
Sjávarútvegsráðherra beitir sér <font size="2"> Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra vill að Seðlabanki Íslands auki gjaldeyriskaup sín enn meira en verið hefur til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð bankans og lækka þar með gengi íslensku krónunnar. Ekki er búið að taka ákvörðun um þetta í ríkisstjórn. </font> 13.10.2005 00:01
Blaðamönnum sleppt á Gasa Blaðamönnunum tveimur, Bandaríkjamanni og Breta, sem palestínskir byssumenn rændu á Gasa í gærdag, var sleppt í gærkvöld. Palestínsk yfirvöld segja Fatah samtökin hafa staðið fyrir ránunum en yfirmenn öryggismála í Palestínu fengu þá lausa. 13.10.2005 00:01
Rauðglóandi sími Síminn var rauðglóandi hjá Stígamótum í gær vegna þeirrar umræðu sem hefur verið í gangi um kynferðisafbrot gegn börnum. 13.10.2005 00:01
Bolli vill fimmta sætið Bolli Thoroddsen, formaður Heimdallar - félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sækist eftir fimmta sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor. 13.10.2005 00:01
Aldrei meiri skötuselsafli Rúmlega 3200 tonn veiddust af skötusel í lögsögu Færeyja í fyrra og hefur aflinn aldrei verið meiri. Þetta er um það bil helmingi meira en veiði Íslendinga árið undan. 13.10.2005 00:01
Særoði hættir vinnslunni <font size="2"> Fiskvinnslan Særoði á Hólmavík hefur hætt allri vinnslu sjávarafurða en eigendur fyrirtækisins hafa saltað og pakkað öllum afla sem borist hefur á land af bát fyrirtækisins, Bensa Egils. Sævar Benediktsson, annar eigandi Særoða, segir að útilokað sé að vinna aflann án þess að borga með vinnslunni. </font> 13.10.2005 00:01
Vilja tvo nýja framhaldsskóla Þingmenn vilja setja á fót tvo nýja framhaldsskóla. Níu af tíu þingmönnum Norðausturkjördæmis hafa lagt fram þingsályktunartillögu um stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð, þar vilja þeir að boðið verði upp á nám til stúdentsprófs auk þess sem skólinn sérhæfi sig í sjávarútvegsmenntun. 13.10.2005 00:01
Tuttugu féllu í árás í Rússlandi Tuttugu lágu í valnum eftir árás á borgina Nalchik í Kabardino-Balkaria héraði Rússlands, skammt Tsjetsjeníu þar sem borgarastríð hefur geisað meira og minna án láts síðasta áratuginn. 13.10.2005 00:01
Pinter fær bókmenntaverðlaunin Breska leikritaskáldið Harold Pinter hlaut í morgun Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Sænska akademían tilkynnti í morgun að breska leikritaskáldið hefði hlotið bókmenntaverðlaun nóbels þetta árið. 13.10.2005 00:01
Mál Albanans enn óljós Ríkislögreglustjóri og Útlendingastofnun eru í erfiðri stöðu þar sem ekki hefur enn verið krafist framsals á Albananum sem nú situr í fangelsi hérlendis og afplánar 45 daga dóm fyrir skjalafals. Albaninn sem er með tímabundið dvalarleyfi í Grikklandi er grunaður um morð þar í landi. 13.10.2005 00:01
Hvetja til frekari skattalækkana Ungir sjálfstæðismenn hvetja stjórnvöld til að kvika ekki frá áformum um að lækka tekjuskatt. Í ályktun þeirra segir meðal annars að einstaklingar fari betur með það fé sem þeir afla sjálfir, en stjórnmálamenn með það fé, sem hið opinbera heimtir í gegnum skattakerfið. Í ljósi þess, meðal annars, hvetja ungir Sjálfstæðismenn til enn frekari skattalækkana og einföldunar á skattakerfinu. 13.10.2005 00:01
Moksíldveiði Síldveiði gengur vel þessa dagana. Í gær var var landað úr Beiti NK þrjúhundruð tonnum af síld. Síldin fer öll til manneldis. Síldin er einungis flökuð og fryst því allri söltun hefur verið hætt hjá fyrirtækinu. Súlan EA kom í nótt með um 300 tonn til löndunar og Börkur NK er að veiðum og gengur vel. 13.10.2005 00:01
Fuglaflensa í Tyrklandi Fuglaflensan mannskæða er nú komin að landamærum Evrópu. Talsmenn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tilkynntu í morgun að rannsóknir úr sýnum, sem tekin voru úr fuglum í Tyrklandi, hefðu leitt í ljós afbrigði veirunnar sem væri hættulegt mönnum. 13.10.2005 00:01
Vilja iðgjöld í heilbrigðiskerfinu Um 1.200 manns eiga seturétt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í dag og stendur í fjóra daga. Davíð Oddsson flytur setningarræðu á sjötta tímanum og verður það í síðasta sinn sem hann gegnir þessu hlutverki en eftirmaður hans á formannsstóli verður kjörinn á sunnudag. 13.10.2005 00:01
Manneklan enn við lýði Enn er engin lausn í sjónmáli varðandi manneklu í sumum leikskólum borgarinnar. Vandræðin eru orðin svo mikil að sum börn þurfa að vera heima í þrjá daga af tuttugu. Stjórnendur leikskólans Austurborgar hefur gripið til þess ráðs að senda öllum foreldrum lista yfir þá daga sem börnin eiga að vera heima á næstu fimmtán dögum. Hvert barn þarf að dvelja heima í tvo daga af fimmtán. 13.10.2005 00:01
Fá ekki greidda fatapeninga Mikillar óánægju gætir meðal starfsmanna sem vinna með fötluðum og þroskaheftum vegna þess að þeir fá ekki greidda fatapeninga, sem þeir eiga rétt á samkvæmt kjarasamningum. 13.10.2005 00:01
Tala látinna komin í 25 þúsund Hjálparstarf á skjálftasvæðunum í Pakistan gengur erfiðlega, þar sem aðstoð og hjálpargögn berast seint. Stjórnvöld í Pakistan greindu frá því í morgun að minnst tuttugu og fimm þúsund manns hefðu farist í hamförunum. 13.10.2005 00:01