Fleiri fréttir

Komu upp um barnaræningja

Lögreglan í Íran hefur komið upp um hring glæpamanna sem grunaður er um að hafa stolið minnst 63 börnum af sjúkrahúsum landsins og selt þau svo til barnlausra hjóna. Alls hafa tuttugu og sex manns verið handteknir vegna málsins, þar af tveir læknar og eins fleira fólk sem starfar á sjúkrahúsunum sem börnunum hefur verið rænt af.

Sjö sóttu um starf forstjóra

Sjö sóttu um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins en Páll Gunnar Pálsson hefur látið af því embætti og tekið við forstöðu hins nýja Samkeppniseftirlits. Þrír umsækjendanna vinna hjá Fjármálaeftirlitinu, þau Ásta Þórarinsdóttir, Hlynur Jónsson og Rúnar Guðmundsson.

Hundrað milljóna fjárdráttur

Ákæra á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, varðar meðal annars tæplega hundrað milljóna króna fjárdrátt í tengslum við tilraun fyrirtækisins til að taka yfir verslanakeðjuna Arcadia fyrir fjórum árum. Frá þessu er greint í breska blaðinu <em>Guardian</em> í dag.

Varnarviðræðurnar hafnar

Viðræður um framtíð varnarsamstarfsins við Bandaríkin á Keflavíkurflugvelli hófust í Washington í morgun. Íslenskir og bandarískir embættismenn funda um málið í dag og er búist við að fundir standi fram að helgi.

Láta öllum illum látum

Hundruð mótmælenda hafa látið öllum illum látum í Skotlandi í morgun þar sem ráðstefna leiðtoga G8-iðnríkjanna hefst síðar í dag. Útlit er fyrir að friðsömum mótmælum sem áttu að fara fram síðar í dag verði aflýst vegna ólátanna í morgun.

Níu mánuðir fyrir ýmis brot

Rúmlega tvítugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis eignaspjöll í Reykjanesbæ, fíkniefnabrot og fyrir að hafa ráðist inn á heimili í Reykjavík og valdið húsráðanda þar áverkum.

Mótmæla hvalveiðunum harðlega

Alþjóðadýraverndunarsjóðurinn mótmælir harðlega áframhaldandi hvalveiðum við Ísland. Sjóðurinn segir það mikil vonbrigði að íslensk stjórnvöld haldi til streitu vísindaveiðum á hrefnu.

Ætlaði í próf fyrir systur sína

Athugulir gangaverðir í ríkisháskólanum í Moskvu komu upp um svik ungs manns sem ætlaði að fara þar í próf í staðinn fyrir systur sína sem var ekki nægilega vel undirbúin. Hann klæddi sig í kvenmannsföt og setti á sig farða, gervibrjóst og hárkollu en gangavörðunum þótti unga konan svo ýkt kvenleg að þeir fóru að kanna málið nánar.

Nefndin komin á hreint

Helstu hagsmunagæslumenn allra stjórnmálaflokkanna eiga sæti í nefnd sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skipaði í gær til að fjalla um lagalega umgjörð stjórnmálastarfssemi á Íslandi og þar með aðgang að fjármálum flokkanna.

Heildargreiðslur 70 milljarðar

Heildargreiðslur Tryggingastofnunar á árinu 2004 námu um 70 milljörðum króna eða um það bil fjórðungi af áætluðum ríkisútgjöldum. Greiðslur vegna lífeyristrygginga og bóta vegna félagslegrar aðstoðar námu um helmingi fjárhæðarinnar, eða 35 milljörðum.

Þrettán ákærðir vegna bankaráns

Þrettán menn hafa verið ákærðir í Noregi vegna bankaráns sem framið var í Stafangri í apríl á síðasta ári en ræningjarnir höfðu jafnvirði um 600 milljóna íslenskra króna upp úr krafsinu. Einn lögreglumaður var myrtur í ráninu sem vakti mikinn óhug meðal norsku þjóðarinnar.

Sendiherrann verður aflífaður

Sendiherra Egyptalands í Írak verður tekinn af lífi, samkvæmt tilkynningu sem sögð er vera frá Al-Qaida samtökunum og birtist á íslamskri vefsíðu síðdegis. Sendiherranum var rænt í Bagdad síðastliðinn laugardag.

Meðalhúsaleigubætur 13 þúsund

Rúmlega 5500 heimili fengu greiddar húsaleigubætur á árinu 2004 samkvæmt ársskýrslu Félagsþjónustunnar í Reykjavík. Húsaleigubætur voru að meðaltali rúmlega 13 þúsund krónur á mánuði.

Jón Trausti í 2 mánaða fangelsi

Jón Trausti Lúthersson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Hann var ákærður fyrir að hafa ráðist inn á ritstjórnarskrifstofur DV síðastliðið haust, tekið Reyni Traustason fréttastjóra hálstaki og hert að með þeim afleiðingum að honum sortnaði fyrir augum, marðist og hruflaðist á hálsi.

Grasbændur ryðja sér til rúms

Íslenskur landbúnaður hefur um nokkurt skeið verið einskonar olnbogabarn annarra atvinnugreina, í það minnsta í opinberri umræðu. Riðuveiki, gjaldþrot í fiski- og minkarækt, auk framleiðislustyrkja og tollamúra hafa löngum reynst bændum erfið. Nú virðist sem þetta gæti breyst og ný aukagrein sé að ryðja sér til rúms.

Breskur og finnskur matur frábær

Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari segir Berlusconi og Chirac vaða í villu þegar þeir segja breskan og finnskan mat vondan. Milliríkjadeila er í uppsiglingu vegna orða þeirra. </font /></b />

Nikkurnar þandar á Norðfirði

Fjöldi gesta streymir nú til Neskaupstaðar til þátttöku í Landsmóti harmonikuunnenda sem hefst þar í kvöld og stendur til sunnudags.

Aftökum verði flýtt

Repúblikanar hyggjast leggja fram frumvarp á bandaríska þinginu sem miðar að því að aftökum manna sem dæmdir hafa verið til dauða verði flýtt. Þingmennirnir tveir sem ætla að mæla fyrir frumvarpinu segja að allt of algengt sé að fangar sem fengið hafi dauðadóm fái ítrekað að áfrýja dóminum sem geri það að verkum að aftakan frestast um allt að 25 ár.

Frír smáauglýsingavefur

Prufuútgáfa af nýjum smáauglýsingavef, www.partalistinn.net, var nýlega opnuð. Vefurinn er alfarið rekinn í sjálfboðastarfi af sjálfboðaliðum og er markmiðið að stuðla að umhverfisvernd með því að auðvelda fólki að kaupa, selja og gefa notaða hluti.

Fá ekki að sjá minnispunktana

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur hafnað kröfu kennarahóps í Landakotsskóla um aðgang að minnispunktum, sem fulltrúi í kennararáði skólans lagði fram á skólanefndarfundi í janúar síðastliðnum.

Kviknaði í bíl ferðamanna

Fimm erlendum ferðamönnum og íslenskum ökumanni þeirra brá heldur betur í brún þegar kviknaði í bíl þeirra við Sandskeið eldsnemma í gærmorgun. Ferðamennirnir voru á leið á Keflavíkurflugvöll austan úr Sólheimum í Grímsnesi þar sem þeir höfðu verið gestir á afmælishátíð Sólheima í fyrradag.

Átta lögreglumenn á sjúkrahús

Þúsundir mótmælenda hafa komið sér fyrir í grennd við hótelið í Gleneagles, skammt frá Edinborg í Skotlandi, þar sem fundur leiðtoga G8-ríkjanna hefst senn. Til harðra átaka kom á milli mótmælenda og öryggislögreglu í dag vegna fundarins og hafa átta lögreglumenn þegar verið sendir á sjúkrahús vegna meiðsla.

Sjö sóttu um

Tvær konur og fimm karlar skiluðu inn umsókn um stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins áður en frestur til þess rann út þann fjórða júlí. Páll Gunnar Pálsson lét nýverið af starfinu sem hann hefur gengt frá stofnun FME árið 1999 en hann er nú forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Fólkið enn á sjúkrahúsi

Líðan mannsins og konunnar sem lentu í gassprengingu í Bjarkarlundi um helgina er eftir atvikum góð. Deildarlæknir á lýtalækningadeild Landsspítalans segir að fólkið þurfi að liggja á deildinni í tvær til þrjár vikur.

Mögulega verkfall á Ljósanótt

Starfsmannafélag Suðurnesja hefur vísað launadeilu sinni við samninganefnd sveitarfélaganna til Ríkissáttasemjara. Ástæða þessa er að samninganefndin hefur ekki svarað ítrekuðum kröfum STFS um að setjast að samningaborði en samningarnir runnu út 31. mars síðastliðinn.

Hér og nú kærir blaðið Hér og nú

Auglýsingastofan Hér og nú ehf. kærði í gær samnefnt tímarit fyrir notkun nafnsins Hér og nú og fer fram á að notkun nafnsins verði hætt. Einnig vill stofan að málið fái forgang hjá Samkeppnisstofnun vegna þeirrar neikvæðu umræðu sem verið hefur um tímaritið í fjölmiðlum undanfarið.

Ferja milli Íslands og Evrópu

Hópur manna vinnur nú að undirbúningi þess að ferjusiglingar hefjist milli Reykjavíkur, Newcastle á Englandi og Bremerhaven í Þýskalandi næsta vor. Einnig kemur til greina að hafnarstæði ferjunnar verði í Þorlákshöfn eða á Grundartanga.

Hér & nú: Alls óskyldur rekstur

Ritstjóri tímaritsins Hér & nú segir rekstur auglýsingastofu og útgáfu tímarits vera alls óskyldan rekstur. Hann sendi tilkynningu til fjölmiðla í kjölfar þess að auglýsingastofan Hér & nú ehf. kærði tímaritið Hér og nú á þeim forsendum að efnistök tímaritsins og trúverðugleiki hafi neikvæða áhrif á ímynd, orðspor og trúverðugleika auglýsingastofunnar.

Engar afgerandi niðurstöður

Viðræður um framtíð varnarsamstarfsins við Bandaríkin á Keflavíkurflugvelli hófust í Washington í morgun. Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna segist ekki búast við neinum afgerandi niðurstöðum úr viðræðunum, enda sé ætlunin fyrst og fremst að kynna sjónarmið beggja aðila í fyrstu umferð.

Fjórðungur af fjárlögum

Heildargreiðslur Tryggingastofnunar á árinu 2004 námu um 70 milljörðum á síðasta ári eða um fjórðungi af áætluðum ríkisútgjöldum, sem er 15 milljörðum meira en árið 2003. Skýrist sú hækkun einna helst á 12 milljarða greiðslu til öldrunar- og endurhæfingastofna, en þær greiðslur voru ekki tilteknar fyrir árið 2003.

Rúmlega 60 manns handteknir

Þúsundir manna hafa mótmælt við Gleneagles í Skotlandi í allan dag þar sem leitogafundur G8-iðnríkjanna hófst síðdegis. Meira en sextíu manns hafa verið handteknir og átta lögreglumenn voru fluttir á sjúkrahús eftir mikil átök við mótmælendur.

Ágrip af sögu Baugsmálsins

Ákæra í Baugsmálinu nú gæti orðið til þess að Baugur Group verði að draga sig í hlé í viðræðunum um kaup á bresku verslunarkeðjunni Somerfield. Húsleit í höfuðstöðvum Baugs fyrir nærri þremur árum réði miklu um að ekkert varð af kaupum Baugs á verslunarkeðjunni Arcadia.

Tengjast nígerískum glæpasamtökum?

Grunur leikur á að par, sem stal tveimur bílaleigubílum og flutti úr landi, sé tengt nígerískum glæpasamtökum erlendis. Réttarhöld yfir parinu stóðu yfir í allan dag.

Jón Á. ákærður fyrir fjárdrátt?

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, er ákærður fyrir tæplega hundrað milljóna króna fjárdrátt í tengslum við tilraun fyrirtækisins til að taka yfir verslanakeðjuna Arcadia fyrir fjórum árum. Þetta kemur fram í breska blaðinu Guardian í dag. Jóhannes faðir hans segir að um svæsnar ofsóknir sé að ræða.

Afmarkað mál stutt gögnum

Góður gangur er sagður í rannsókn fjárdráttarmáls konu sem stýrði sambýli á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Málið þykir sýnu alvarlegra en svipað mál sem kom nýverið upp á sambýli geðfatlaðra, því um stjórnanda er að ræða en ekki matráðskonu eins og í því máli.

Rafræn skráning framför

Aðstoðarlækningaforstjóri Landspítalans segir rafræna skráningu um sjúklinga framför. Hann segir kerfið gott og minnir á að læknar hafi haft jafnan aðgang að heilsufarsupplýsingum áður, en þá hafi tekið lengri tíma að safna þeim saman.

Mótmælir niðurstöðu geðrannsóknar

Tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær mál 34 ára gamals manns sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í rúmar 10 vikur, eftir að hafa ráðist á lækni sem meðal annars sinnir rannsókn í sakamálum fyrir lögreglu og í barnsfaðernismálum. Þá er maðurinn kærður fyrir hótanir gegn lækninum og fjölskyldu hans, auk brota á fíkniefnalöggjöf.

Fundu tæp 200 grömm af hassi

Maður á þrítugsaldri hlaut í gær skilorðsbundið mánaðarfangelsi auk 180.000 króna sektar fyrir brot á fíkniefnalöggjöf og umferðarlögum. Hann var að auki sviptur ökuleyfi í þrjú ár og þarf að greiða kostnað upp á 203.501 krónu.

30 grömm urðu 77 með blöndun

31 árs gamall maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en undir lok febrúar sl. fann lögreglan í Kópavogi tæp 77 grömm af amfetamíni á heimili hans.

Ósáttur við DV fékk tvo mánuði

Jón Trausti Lúthersson var í gær dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa í október í fyrra ráðist á þáverandi fréttastjóra DV. Jón Trausti ruddist með tveimur félögum sínum inn á ritstjórn blaðsins í Reykjavík og vildi hitta fyrir ritstjóra.

Aukningin hjá Cantat-3 ekki FARICE

Rannsókna- og háskólanet Íslands tengist ekki um FARICE sæstrenginn nýja og varð því ekki fyrir truflunum þegar samband rofnaði nýverið við Skotland. Verð gagnaflutninga um FARICE strenginn, sem stjórnvöld standa að, sætir gagnrýni.

Vill endurskoða Íbúðalánasjóð

Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segir það ekki tilgang með starfsemi Íbúðalánasjóðs að ýta undir neyslulán og telur brýnt að endurskoða lög um sjóðinn. Hann segir sjóðinn, bankana og lántakendur fara offari á lánamarkaði. Fram kom í fréttum Stöðvar tvö í fyrradag að Íbúðalánasjóður hefði með ríkistryggðu lánsfé endurlánað bönkum og sparisjóðum yfir áttatíu milljarða króna.

Burðardýr segir sögu sína

Fíkniefnasalar senda oft fleiri en eitt burðardýr með sömu flugvél til að villa um fyrir tollgæslunni. Burðardýr, sem var gómað í Leifsstöð, heldur að sér hafi verið att á foraðið til að annar kæmist í gegnum nálaraugað, kannski með miklu meira magn.

Hrefnuveiði hafin

Þrjár hrefnur veiddust í dag, á fyrsta veiðidegi. Um leið og hvalveiðiflotinn hélt úr höfn sást til hvala í Keflavíkurhöfn. Þrjár hrefnur veiddust í dag, á fyrsta veiðidegi. Hrefnuveiðimaðurinn Konráð Eggertsson á Ísafirði lagði úr höfn eldsnemma í morgun til veiða. Um leið og hvalveiðiflotinn hélt úr höfn sást til hvala í Keflavíkurhöfn.

Bílvelta og hraðakstur

Lögregluumdæmin á Íslandi höfðu í einu og öðru að snúast í gær. Flest af því var þó smávægilegt.

Sjá næstu 50 fréttir