Rafræn skráning framför 6. júlí 2005 00:01
Aðstoðarlækningaforstjóri Landspítalans segir rafræna skráningu um sjúklinga framför. Hann segir kerfið gott og minnir á að læknar hafi haft jafnan aðgang að heilsufarsupplýsingum áður, en þá hafi tekið lengri tíma að safna þeim saman. Sögukerfið svokallaða, sem er rafrænn gagnagrunnur sjúkraskráa, hefur verið í notkun á Landsspítalanum um nokkurra ára skeið. Í þessu kerfi er öllum upplýsingum um sjúkling safnað í rafræna sjúkraskrá sem er aðgengileg með litlum fyrirvara. Í fréttum Stöðvar 2 í gær kom fram að Persónuvernd teldi þessa rafrænu sjúkraskrá komna fram úr lögum en Níls Nílsen, aðstoðarlækningaforstjóri Landspítalans, kannast ekki við að Persónuvernd hafi gert athugasemdir við meðhöndlun spítalans á rafrænum sjúkraskrám.- Hann telur þá hafa haft gott samband við Persónuvernd og upplýst hana um hvað þeir væru að gera og farið eftir lögum og reglum sem fjalla um sjúkraskár og segir Persónuvernd ekki hafa gert sérstakar athugsemdir við meðhöndlun þeirra á sjúkraskrám. Þeir sem hafa aðgang að sjúkraskýrslum eru læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar og aðrir sem koma beint að meðferð sjúklings. Níls segir að hver starfsmaður sem hafi með sjúkling að gera hafi persónubundið aðgangsorð sem hann þarf að slá inn til að fá aðgang og þannig geta sjúklingar beðið um að flett verði upp hverjir hafa skoðað sjúkraskrá þeirra.- Níls segir að dæmi séu um að sjúklingar hafi óskað eftir því að fá lista yfir þá sem hafa skoðað sjúkraskrá þeirra og eftir að þetta er orðið rafrænt þá er hægt að sinna þeim fyrirspurnum en það var ekki hægt áður. Í samtali við fréttastofu sagði Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri Heilsugæslunnar í Reykjavík, að hver heilsugæsla væri með skrá yfir þá sjúklinga sem þar væru en að læknar á öðrum heilsugæslum kæmust ekki í þær skrár. Þannig væru sjúkraskrárnar ekki komnar í einn pott sem allir læknar kæmust í.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira