Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bush hét kúguðum aðstoð "Frelsið sem við njótum í okkar eigin landi veltur æ meira á því hvort frelsið nái fram að ganga í öðrum löndum." sagði George W. Bush í gær þegar hann sór eið sem 43. forseti Bandaríkjanna fyrir framan um hálfa milljón manns á tröppum þinghússins í Washington. 20.1.2005 00:01
Ákærðir fyrir skattsvik Kristján Ragnar Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon hafa, ásamt þremur öðrum mönnum, verið ákærðir fyrir skattalagabrot í tengslum við rekstur fyrirtækja sem þeir áttu. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gærkvöld. 20.1.2005 00:01
Störfum fækkar mjög í Danmörku Störfum í Danmörku hefur fækkað um tugþúsundir á kjörtímabilinu sem er að ljúka. Formenn tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna, Anders Fogh Rasmussen fyrir Vinstri flokkinn og Mogens Lykketoft fyrir Jafnaðarmenn, keppast um að lofa svipuðum fjölda nýrra starfa í kosningabaráttunni fyrir komandi þingkosningar. 20.1.2005 00:01
Byggt við Björgunarmiðstöðina SHS-fasteignir ehf. hafa samið við Keflavíkurverktaka hf. um byggingu þriðja og síðasta áfanga Björgunarmiðstöðvarinnar Skógarhlíðar í Reykjavík og munu Landhelgisgæslan og Bílamiðstöð Ríkislögreglustjórans flytja í nýja húsnæðið. Um er að ræða 1.626 fermetra alls og er byggingarkostnaður áætlaður 258 milljónir króna. Framkvæmdir hefjast nú í janúar en þeim á að vera lokið 31. ágúst næstkomandi. 20.1.2005 00:01
Haförn í Húsdýragarðinum Komið var með stóran og mikinn haförn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á dögunum en hann fannst austur í Grafningi þar sem hann hafði flogið á raflínu. Við áreksturinn fór „Erna“, en það heiti fékk fuglinn við komuna í bæinn, úr lið á vinstri væng. 20.1.2005 00:01
Trúnaði aflétt af fundargerðum Þingflokkur Samfylkingarinnar fer fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum funda utanríkismálanefndar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak og um að Ísland skyldi vera sett á lista hinna staðföstu þjóða. 20.1.2005 00:01
Víðtækt samstarf lögregluliða Lögreglustjórinn á Akranesi og varalögreglustjórinn í Reykjavík ásamt yfirlögregluþjónum undirrituðu í dag samning um víðtækt samstarf lögregluliðanna í Reykjavík og á Akranesi til að styrkja löggæslu á Akranesi, Kjalarnesi, Kjósarhreppi og eftir atvikum í Mosfellsbæ. 20.1.2005 00:01
Ummæli um Írak stangast á Samkvæmt forsætisráðherra hafði Íraksmálið ekki verið rætt í ríkisstjórn viku áður en ákvörðunin um stuðninginn við innrásina í Írak var tekin. Þingmenn Framsóknarflokksins greinir á um hvort Íraksmálið hafi verið rætt í þingflokknum eða ekki. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Skoða aðstæður við Kárahnjúka Ítalska verkalýðshreyfingin kemur til Egilsstaða í kvöld og fer að Kárahnjúkum á morgun og eyðir þar deginum. Forystumennirnir koma svo suður á föstudag. 19.1.2005 00:01
Flóðbylgjuviðvörun í Japan Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út á nokkrum eyjum suður af Tókýo, höfuðborg Japans, í kjölfar jarðskjálfta upp á 6,8 á Richter í morgun. Upptök skjálftans voru rétt utan við austurströnd Japans og er búist við að hálfs metra flóðbylgjur fylgi í kjölfarið. 19.1.2005 00:01
Snjóflóð lokaði veginum Tíu metra breitt og tveggja metra djúpt snjóflóð féll á þjóðveginn á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í gærkvöldi og lokaði honum. Enginn var á ferð um veginn þegar það féll og Vegagerðin ruddi veginn. 19.1.2005 00:01
Sprenging við ástralska sendiráðið Bílsprengja sprakk við ástralska sendiráðið í miðborg Bagdad í morgun. Að minnsta kosti tveir létust í árásinni og sjö særðust en starfsmenn sendiráðsins eru allir heilir á húfi. Tuttugu og sex hafa látist í sprengjutilræðum í Bagdad í morgun. 19.1.2005 00:01
Grunaður um morð á móður sinni Sautján ára piltur er í haldi norsku lögreglunnar, grunaður um að hafa myrt móður sína á heimili þeirra í Ósló í gær. Konan var stungin margsinnis með hníf og var sonurinn handtekinn blóðugur á vettvangi. 19.1.2005 00:01
Hálka víðast hvar Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði, hálka og éljagangur á Suðurlandi og hálka og hálkublettir á Suðausturlandi. Hálka og skafrenningur er á Vesturlandi, á Vestfjörðum er hálka, snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði, ófært og stórhríð er á milli Bíldudals og Patreksfjarðar, þungfært og stórhríð er á Kleifarheiði og Klettshálsi. 19.1.2005 00:01
Samráð á kjarnfóðurmarkaði? Fimmtíu íslenskir bændur sem staddir eru í Danmörku þessa dagana ætla að kanna til hlítar hvernig það megi vera að kjarnfóður fyrir kýr sé allt að helmingi ódýrara í Danmörku en á Íslandi. Þessu vilja þeir ekki una, ekki síst með tilliti til vaxandi samkeppni af erlendum mjólkurvörum, og ætla að leita allra leiða til að ná verðinu niður. 19.1.2005 00:01
Flóðbylgjuviðvöruninni aflétt Flóðbylgjuviðvöruninni sem gefin var út á nokkrum eyjum suður af Tókýo, höfuðborg Japans, í morgun hefur verið aflétt. Viðvörunin var gefin út í kjölfar jarðskjálfta upp á 6,8 á Richter en upptök skjálftans voru rétt utan við austurströnd Japans. Ekki hafa borist neinar fregnir af skemmdum eða mannskaða. 19.1.2005 00:01
Slasaðist á snjóbretti Unglingspiltur féll af snjóbretti í Bláfjöllum um áttaleytið í gærkvöldi og slasaðist. Hann meiddist meðal annars á öxl og var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild en var ekki talinn alvarlega slasaður. 19.1.2005 00:01
Réttað yfir breskum pynturum Fyrsta dómsmálið yfir breskum hermönnum sem sakaðir eru um að hafa pyntað írakska fanga stendur nú yfir í Bretlandi. Einn hermannanna hefur játað að hafa gengið í skrokk á einum fanga en neitar öðrum sökum. 19.1.2005 00:01
Sextíu úrum stolið í nótt Brotist var inn hjá úrsmið við Laugaveginn í nótt og þaðan stolið að minnsta kosti sextíu úrum. Þjófurinn braut rúðu í útihurð og gler í sýningarskápum og lét greipar sópa. Hann var eldsnöggur á vettvangi og komst undan með þýfið og er enn ófundinn. Andvirði þýfisins nemur hundruðum þúsunda króna. 19.1.2005 00:01
Sprengjuhótun við Hvíta húsið Maður sem er ósáttur við að fá ekki forræði yfir barni sínu hótaði að sprengja sig og bíl sinn í loft upp í næstu götu við Hvíta húsið í gær. Maðurinn sagðist ætla að kveikja í tæpum sextíu lítrum af bensíni ef hann fengi ekki barn sitt. Eftir fjögurra og hálfs tíma þref tókst lögreglu þó að fá manninn ofan af fyrirætlunum sínum. 19.1.2005 00:01
Yfirmenn norska hersins reknir Yfirskoðunarmaður norska hersins og yfirmaður flutningadeildar sama hers voru reknir í gærkvöldi í kjölfar þess að komið er í ljós að norski herinn eyddi sem svarar tíu milljörðum íslenskra króna umfram fjárlög. 19.1.2005 00:01
Hátíð vegna embættistöku Bush Fjögurra daga hátíðarhöld standa nú yfir í Bandaríkjunum í tengslum við embættistöku George Bush Bandaríkjaforseta en hann verður formlega svarinn í embætti, annað kjörtímabilið í röð, á morgun. 19.1.2005 00:01
Sextán ára stúlka undir stýri Lögreglan í Keflavík stöðvaði sextán ára stúlku á bíl í miðbænum í gærkvöldi og var hún að sjálfsögðu réttindalaus vegna aldurs. Í ljós kom að hún hafði fengið bílinn lánaðan upp á að vinkona hennar, sem hefur réttindi, æki bílnum. Hún ók hins vegar sjálf en sú með réttindin fékk að sitja í sem farþegi. 19.1.2005 00:01
Norsk loðnuskip á Íslandsmiðum Um það bil tuttugu norsk loðnuskip eru komin á miðin austur af landinu og hafa nokkur þeirra þegar fengið afla. Þau mega veiða 45 þúsund tonn af loðnu í íslenskri lögsögu, samkvæmt samningi Norðmanna og Íslendinga um nýtingu stofnsins, en aflann mega þau aðeins veiða í nót en ekki flottroll sem gefið hefur góða raun hjá íslensku skipunum. 19.1.2005 00:01
Konur með sterkara hjarta Ástæða þess að konur lifa að jafnaði lengur en karlar kann að vera sú að hjarta þeirra stenst betur tímans tönn. Í niðurstöðum nýrrar rannsóknar læknahóps við John Moores háskólann í Liverpool kemur fram að kraftur hjarta í karlmönnum sem ekki stunda reglubundna hreyfingu hrakar um tæplega fjórðung frá tvítugu til sjötugs. 19.1.2005 00:01
Fischer íslenskur ríkisborgari? Bobby Fischer gæti fengið íslenskan ríkisborgararétt með lagasetningu strax í næstu viku þegar þing kemur saman. Lögfræðingar Fischers telja að ríkisborgararéttur myndi auka möguleika hans á að fá fararleyfi til Íslands. Japanskur dómari féllst í nótt ekki á beiðni Fischers um að verða fluttur hingað til lands. 19.1.2005 00:01
Bjór úr íslensku byggi Nýtilkomin byggrækt er bændum ekki aðeins drjúg búbót í stað innflutts fóðurbætis heldur er nú farið að brugga Þorrabjór, sem nú er kominn á markað, úr íslensku byggi. 19.1.2005 00:01
Bandaríkin ætla að frelsa fleiri Condoleezza Rice sat fyrir svörum í Öldungadeild Bandaríkjaþings í gærkvöldi í tengslum við embættistöku hennar sem utanríkisráðherra landsins. Það vakti mikla athygli að Rice nefndi sex lönd sem hún sagði vera útverði harðræðis í heiminum og þar yrðu Bandaríkin að aðstoða fólk og frelsa. 19.1.2005 00:01
Veðurstofan ákveði ekki rýmingu Átta sýslumenn og bæjarstjórar á Vestfjörðum hafa sent frá sér orðsendingu vegna umræðna um að Veðurstofan eigi ekki að taka ákvörðun um rýmingu húsa vegna hættu á snjóflóðum og skriðuföllum. Bent er á að Veðurstofan hafi ekki lögregluvald til að rýma hús heldur sé það hlutverk lögreglustjóra og almannavarnanefnda. 19.1.2005 00:01
Andvíg Íraksstríði fyrir kosningar Dagný Jónsdóttir og Birkir J. Jónsson sátu í æðstu embættum Sambands ungra Framsóknarmanna þegar Íraksstríðið var við að hefjast og mótmæltu þá harðlega. Ungir Framsóknarmenn eru enn á sömu skoðun en Birki hefur snúist hugur. Afstaða Dagnýjar er óljós í dag. 19.1.2005 00:01
Landsliðið og strákarnir okkar Handboltaáhugi Íslendinga sveiflast upp og niður. Heimsmeistaramótið í Túnis hefst á sunnudag en óhætt er að segja að þjóðin haldi ró sinni. Þjálfarinn er bjartsýnn og metnaðarfullur en gengið í æfingaleikjum heldur dapurt. Úrslit fyrstu leikja á HM sker úr um hvort Íslendingar verða handboltaþjóð á þorranum eða ekki. Örfáir ætla til Túnis að fylgjast með. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Íslenskt bygg í þorrabjórnum Ölgerðin Egill Skallagrímsson bruggar þorrabjór sinn þetta árið að hluta úr íslensku byggi. Íslenskt bygg hefur ekki áður verið notað til bjórframleiðslu en landbúnaðarforystan sér fram á bjarta tíma í þessum efnum og vonast til að þetta sé aðeins upphafið að einhverju meira. 19.1.2005 00:01
Hellisheiði lokuð Hellisheiði hefur verið lokað vegna slæmrar færðar að sögn Vegagerðarinnar. Fólk hefur þurft að skilja bíla sína eftir úti í vegakanti í morgun og hafa björgunarsveitarmenn unnið að því að koma ökumönnum til aðstoðar. Fólki er eindregið ráðið frá því að aka heiðina að svo stöddu. 19.1.2005 00:01
Margir 35-44 ára tannlausir Rúmlega 550 einstaklingar á aldrinum 35 til 44 ára eru tannlausir í báðum gómum. Tannlækningastofnun Háskóla Íslands heldur áfram að rannsaka tannheilsu Íslendinga og í fjórða áfanga þeirrar rannsóknar er fjallað um fólk á þessum aldri. 19.1.2005 00:01
Innflytjendum vefst tunga um tönn Ný könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Vestfjörðum og Austurlandi sýni að fjölmargir eiga í mesta basli með íslenskuna. Af því leiðir að margir skilja ekki ráðningarsamninga sem þeir þó hafa undirritað. Könnunin sýnir líka að margir innflytjendur eiga börn í upprunalandinu, margir búa í eigin húsnæði og atvinnuleysi meðal þeirra er nánast óþekkt. </font /></b /> 19.1.2005 00:01
Snjóflóðahætta að verða liðin tíð Ekkert íbúðarhús í Ísafjarðarkaupstaðnum sjálfum var rýmt í óveðrinu fyrir nokkrum dögum og Ísafjarðarbær, með Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Hnífsdal innanborðs, er í heild að verða býsna öruggt svæði gagnvart snjóflóðum, að sögn Halldórs Halldórssonar bæjarstjóra. 19.1.2005 00:01
Laun bæjarfulltrúa lækkuð Tillaga um að lækka laun bæjarfulltrúa og bæjarráðsmanna í Reykjanesbæjar var borin upp á bæjarstjórnarfundi í gær og var tillögunni vísað til bæjarráðs. Það var Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem bar tillöguna fram en nauðsynlegt er að draga úr kostnaði hjá yfirstjórn bæjarins um fjórar milljónir króna. 19.1.2005 00:01
Fullnægjandi meðferð gæti fundist Samstarf norrænna vísindamanna hefur leitt í ljós að frávik í tveimur genum auki líkurnar á því fá gigtarsjúkdóminn lúpus sem oft nefnist „rauðir úlfar“ á íslensku. Að sögn Snævars Sigurðssonar lífefnafræðings hefur verkefnið staðið yfir í rúm þrjú ár. Uppgötvunin getur orðið til þess að fullnægjandi meðferð finnist innan tíðar. 19.1.2005 00:01
Úrbætur í íslenskukennslu Stjórnvöld hafa ákveðið að efna til samstarfs við Kennaraháskólann um úttekt á íslenskukennslu innflytjenda og tillögum til úrbóta, að sögn Árna Magnússonar félagsmálaráðherra. Hann kvaðst frekar eiga von á að bætt yrði úr vanköntum sem kynnu að koma fram. Hann teldi að úrbóta væri þörf. 19.1.2005 00:01
Einnota atvinnuleyfi Ný tegund atvinnuleyfa er nú til athugunar í félagsmálaráðuneytinu, að sögn Árna Magnússonar ráðherra þar á bæ. 19.1.2005 00:01
Tala látinna hækkar um 50 þúsund Tala látinna í flóðunum við Indlandshaf á annan í jólum hækkaði um rúmlega 50 þúsund í dag þegar stjórnvöld í Indónesíu tilkynntu að mannfall í landinu vegna hamfaranna sé komið yfir 166 þúsund manns. Þar með er staðfest að meira en 226 þúsund manns hafi týnt lífinu í þessum mestu náttúruhamförum sögunnar. 19.1.2005 00:01
Óvenju mikil velta í haust Um 6% íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafa skipt um eigendur frá því bankarnir hófu að bjóða verðtryggð íbúðalán á sambærilegum kjörum og Íbúðalánasjóður síðastliðið haust. Þetta er óvenju mikil velta að sögn greiningar Íslandsbanka. 19.1.2005 00:01
110 ára afmæli skáldsins fagnað Á föstudaginn hefði skáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi orðið 110 ára. Í tilefni af því verður opnuð sýning um Davíð í bókasal Þjóðmenningarhússins við Hverfisgötu þar sem hann verður Skáld mánaðarins. Dagskráin hefst klukkan 17 með ávarpi Guðmundar Andra Thorssonar. 19.1.2005 00:01
Nígeríumaðurinn farinn úr landi Þrítugur Nígeríumaður sem handtekinn var í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni er farinn úr landi. Maðurinn var tekinn í kjölfar þess að þrítugur Ungverji var tekinn í Leifsstöð með tæpt kíló af kókaíni innvortis í áttatíu hylkjum. 19.1.2005 00:01
Nokkrir árekstrar á Hellisheiði Nokkrir árekstrar hafa orðið á Hellisheiði sem er enn lokuð vegna mikils óveðurs, blindhríðar, skafrennings og hálku. Ekki hafa orðið slys á fólki eftir því sem best er vitað. Lögreglan ræður fólki eindregið frá því að vera á ferðinni á þessu svæði. 19.1.2005 00:01