Byggt við Björgunarmiðstöðina 20. janúar 2005 00:01
SHS-fasteignir ehf. hafa samið við Keflavíkurverktaka hf. um byggingu þriðja og síðasta áfanga Björgunarmiðstöðvarinnar Skógarhlíðar í Reykjavík og munu Landhelgisgæslan og Bílamiðstöð Ríkislögreglustjórans flytja í nýja húsnæðið. Um er að ræða 1.626 fermetra alls og er byggingarkostnaður áætlaður 258 milljónir króna. Framkvæmdir hefjast nú í janúar en þeim á að vera lokið 31. ágúst næstkomandi.Byggð verður 540 fermetra skrifstofubygging ofan á suðurálmu þar sem verkstæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) og fleira er á 1. hæð. Gerður hefur verið leigusamningur við Landhelgisgæsluna til 15 ára sem gerir ráð fyrir að Landhelgisgæslan flytji höfuðstöðvar sínar af Seljavegi í nýja húsnæðið að framkvæmdum loknum. Landhelgisgæslan mun einnig taka á leigu núverandi skrifstofuhúsnæði Tetra Ísland og 112. Tetra Ísland flytur starfsemi sína annað en 112 fær aðstöðu fyrir skrifstofur sínar annars staðar í byggingunni. Ennfremur verður byggt 226 fermetra stigahús milli suðurálmu og núverandi skrifstofuálmu með inngangi bæði frá Flugvallarvegi og bakporti. Þá gerir samningurinn ráð fyrir að byggt verði 860 fermetra bíla- og tækjahús á baklóðinni austan við Björgunarmiðstöðina. Bílamiðstöð Ríkislögreglustjórans flytur starfsemi sína í húsið en hún er nú í Borgartúni. Landhelgisgæslan og SHS munu einnig hafa aðstöðu í húsinu fyrir lager og tæki. Í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð starfa Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, 112, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjórans og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans. Húsið er í eigu SHS fasteigna ehf., dótturfélags SHS.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira