Erlent

Konur með sterkara hjarta

Ástæða þess að konur lifa að jafnaði lengur en karlar kann að vera sú að hjarta þeirra stenst betur tímans tönn. Í niðurstöðum nýrrar rannsóknar læknahóps við John Moores háskólann í Liverpool kemur fram að kraftur hjarta í karlmönnum sem ekki stunda reglubundna hreyfingu hrakar um tæplega fjórðung frá tvítugu til sjötugs. Þótt ótrúlegt megi virðast minnkar kraftur kvenmannshjartans nánast ekki neitt á sama æviskeiði. Karlmenn þurfa þó ekki að örvænta því að í annarri rannsókn kom fram að hjörtu þeirra sem stunda reglubundna hreyfingu halda krafti sínum þó að árunum fjölgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×