Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæði eru víða opin í dag. Bretta- og skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið til klukkan fimm. Þar er troðinn, þurr snjór, eins stigs frost og logn. Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli, segir greinilegt að landsmenn kunni að meta að snjóað hafi undanfarnar vikur því að snjóbretta- og skíðaáhugi sé mikill. 16.1.2005 00:01
ETA vill friðarviðræður ETA, aðskilnaðarsamtök Baska, segjast reiðubúin að hefja friðarviðræður við ríkisstjórn Spánar. Í dagblaðinu <em>Gara</em> sem gefið er út í Baska-héraði birtist í dag yfirlýsing frá ETA þar sem þetta kemur fram. Það er hins vegar ekkert minnst á hvort samtökin hafi í hyggju að leggja niður vopn eins og spænska stjórnin hefur sett sem skilyrði fyrir friðarviðræðum. 16.1.2005 00:01
Hvers vegna dýrin lifðu af flóðin Vísindamenn telja sig nú hafa komist að því hvers vegna öll villt dýr á Srí Lanka lifðu af flóðbylgjurnar í Suðaustur-Asíu. 16.1.2005 00:01
Ísraelsmenn herða aðgerðir Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði fyrir ríkisstjórnarfund í morgun að aðgerðir gegn herskáum Palestínumönnum yrðu hertar til muna á næstunni í kjölfar árása síðustu daga. Sagði hann að herinn hefði leyfi til að nota allar aðferðir. 16.1.2005 00:01
Mikil hálka á höfuðborgarsvæðinu Það er líklega full ástæða til að vara gangandi vegfarendur við hálkunni sem nú er. Erill var á slysadeild Landspítalans í Fossvogi í gær og í fyrradag vegna hálkuslysa, án þess þó að alvarleg slys yrðu. Um var að ræða minniháttar beinbrot, mar og tognanir sem og höfuðhögg. Rólegt hefur hins vegar verið á slysadeildinni það sem af er degi, enda kannski fáir komnir á kreik. 16.1.2005 00:01
Tíu ára fangelsi fyrir pyntingar Bandaríski herlögreglumaðurinn Charles Graner var í gærkvöldi dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir pyntingar á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. 16.1.2005 00:01
225 milljónir hafa safnast 110 milljónir króna söfnuðust í söfnuninni Neyðarhjálp úr norðri, viðamestu söfnun landsins, sem hófst á þriðjudag og lauk í beinni útsendingu sjónvarpsstöðvanna þriggja í gærkvöld. Alls hafa safnast 225 milljónir til þeirra samtaka sem verja munu söfnunarfénu í þágu þeirra sem eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Asíu. 16.1.2005 00:01
81 meintur talíbani látinn laus Bandaríski herinn í Afganistan hefur látið lausan áttatíu og einn fanga í Bagram, norður af Kabúl, að sögn talsmanns hæstaréttar þar í landi. Mennirnir fá föt og verða svo sendir heim. Mennirnir eru meðal mörg hundruð meintra talíbana sem handteknir voru síðla árs 2001 og gefið að sök að leyna verustað Osama bin Ladens. 16.1.2005 00:01
Hálka víðast hvar um landið Hálka er suðvestanlands og éljagangur og snjóþekja á Vesturlandi. Þungfært er á Holtavörðuheiði og mjög slæmt veður. Á Norðurlandi er víða hálka og éljagangur. 16.1.2005 00:01
Austurströndin nánast horfin Gríðarleg eyðilegging og oft og tíðum grimmdarleg örlög er meðal þess sem Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, hefur orðið vitni að á Srí Lanka undanfarna sólarhringa. Á vesturströndinni eru ferðamannastaðirnir, sem gáfu þeim bestu sem Íslendingar þekkja ekkert eftir, nánast í rúst. 16.1.2005 00:01
58 særðir eftir sprengingu Að minnsta kosti einn lést og 58 særðust í sprengingu fyrir utan veitingastað í Suður-Taílandi í morgun. Sex börn hið minnsta eru á meðal særðra. Talið er að íslömsk aðskilnaðarsamtök í suðurhéruðum landsins séu ábyrg fyrir ódæðinu en blóðug borgarastyrjöld hefur geisað í héruðunum frá því snemma á síðasta ári. 16.1.2005 00:01
Sprengjumönnum sleppt Lögreglan hefur sleppt þremenningunum sem sprengdu sprengju við veitingastaðinn American Style í nótt. Við yfirheyrslur gátu þeir litlar skýringar gefið á athæfinu en sögðu að ekki hafi verið um heimatilbúna sprengju að ræða heldur öfluga rakettu sem prikið hefði verið tekið af. 16.1.2005 00:01
Kostnaðarsamur mokstur á Akureyri Talsvert fannfergi er nú á Akureyri og er kostnaður bæjarfélagsins við snjómokstur ærinn. Það má áætla að hann kosti bæjarbúa árlega um 40 milljónir króna samkvæmt fréttavef Akureyrar en árið 2004 nam kostnaðurinn um eða yfir 48 milljónum. 16.1.2005 00:01
Kertalogi orsök brunans Bruni á Akureyri í fyrrinótt orsakaðist af kerti sem brann niður án þess að íbúinn yrði þess var fyrr en of seint. Kertið brann í gegnum borð sem það stóð á. Nágranni sýndi mikið snarræði og bjargaði stúlkunni sem þar bjó út undir bert loft en hún var að reyna að skríða út úr reykjarkófinu af sjálfsdáðum. 16.1.2005 00:01
Þakka taílensku þjóðinni Forsætisráðherrar Svíþjóðar, Noregs og Finnlands hittu í dag ýmsa ráðamenn Taílands, þ.á m. forsætisráðherra landsins og kónginn, til að þakka þjóðinni fyrir hennar þátt í að bjarga og hlúa að þeim Svíum, Norðmönnum og Finnum sem lentu í og áttu um sárt að binda eftir flóðin við Indlandshaf á dögunum. 16.1.2005 00:01
Mandela til liðs við Breta Nelson Mandela mun taka þátt í svokallaðri Marshall-aðstoð Breta sem felst í að vinna gegn fátækt og skuldasöfnun fátækustu ríkja Afríku. Hann tilkynnti þetta eftir að fund sinn með Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, í Suður-Afríku í dag. Leiðtoginn mun meðal annars taka þátt í ráðstefnu í tengslum við verkefnið í Lundúnum í næsta mánuði. 16.1.2005 00:01
Snjóblásari utan í bíl Árekstur varð á Seyðisfirði um tvöleytið í gær þegar snjóblásari fór utan í fólksbíl. Snjóblásarinn var að aka inn á veg rétt fyrir utan bæinn og sá ekki bíl sem kom þar aðvífandi. 16.1.2005 00:01
Óhapp við umferðarljós Betur fór en á horfðist í allhörðum árekstri á Akureyri upp úr klukkan 14 í gær þegar tveir bílar skullu saman á umferðarljósum við Glerárgötu og Tryggvabraut. Flughált var á Akureyri í gær. 16.1.2005 00:01
Sprengdu þakskyggni Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti. 16.1.2005 00:01
Frjósamari vegna breytts litnings Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa uppgötvað þriggja milljóna ára gamlan litning í erfðamengi mannsins sem hefur að hluta til snúist á haus en þeir sem bera þennan breytta litning eignast að meðaltali fleiri börn en aðrir. Þetta hefur líklega gerst við blöndun ólíkra tegunda. 16.1.2005 00:01
Fjölmenni við guðsþjónustuna Fjölmenni var við minningarguðsþjónustu í Súðavík í dag þar sem þess var minnst að áratugur er frá snjóflóðinu mannskæða. Sumum íbúum þar er órótt þegar veður eru válynd en presturinn segir að aðstoð góðra vina og hjálp hafi hjálpað þeim sem misstu mest að halda lífinu áfram. 16.1.2005 00:01
Frjáls fjölmiðlun til rannsóknar Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, segir fjölda mála vera til rannsóknar sem tengist gjaldþroti Frjálsrar fjölmiðlunar, fyrirtækinu og forsvarsmönnum þess. 16.1.2005 00:01
Komin á staðinn í huganum Átta manna hópur Íslendinga, sem var á Phatong-ströndinni í Taílandi þegar flóðbylgjan reið yfir, er kominn til Íslands. 16.1.2005 00:01
Þakklát að vera á lífi Íslendingarnir átta sem voru í mánuð í Taílandi komu heim um helgina. Ein úr hópnum, Margrét Þorvaldsdóttir, segir að það hafi verið hryllilegt að upplifa flóðið og skelfingarnar sem á eftir fylgdu. 16.1.2005 00:01
Miðast við lög og dómafordæmi Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að saksóknarar embættisins fari yfir rannsóknargögn hvers máls og það þurfi að vera líklegt eða verulega líklegt að ákæra leiði til sakfellingar til að málið leiði til ákæru. 16.1.2005 00:01
Trúa börnunum en vantar sannanir Saksóknari fellir niður rúmlega helming mála vegna meints kynferðisbrots á börnum þar sem ekki þykir líklegt að ákæra leiði til sakfellingar. Oftast vantar frekari sannanir. </font /></b /> 16.1.2005 00:01
Urðum að leita skjóls Fjórir vélsleðamenn biðu í neyðarskýli í Héðinsfirði í fimm klukkutíma án þess að vita hvað hefði orðið um fimmta manninn sem var með þeim í för á laugardag. "Ég reyndi að fara á eftir honum en komst ekki neitt," segir Ragnar Már Hansson sem beið ásamt þremur öðrum eftir hjálp í neyðarskýlinu. 16.1.2005 00:01
Tveggja manna ákvörðun segir Guðni Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ákvörðunina um veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða orka tvímælis. Tveir menn hafi tekið þá ákvörðun. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður segir að ráðherrann sé með ummælum sínum að treysta stöðu sína fyrir flokksþing Framsóknarflokksins í febrúar. 16.1.2005 00:01
Geðröskun eitt stærsta vandamálið Vaxandi fjöldi barna með geðræn vandamál er einn stærsti vandi skólanna í dag þrátt fyrir að íslensk börn noti geðlyf í mun meira mæli en jafnaldrar þeirra annars staðar á Norðurlöndunum. Arthúr Morthens, sviðsstjóri hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, segir að líffræðilegir og félagslegir þættir valdi mestu um þessa fjölgun en heimilin séu í veikari stöðu en áður. 16.1.2005 00:01
Sjónvarpsmenn með auglýsingabónus Starfsmenn auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins skipta með sér hluta af tekjum stofnunarinnar þegar ákveðnu og fyrirfram ákveðnu marki í auglýsingasölu hefur verið náð. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri sér ekkert athugavert við þennan bónus ríkisstarfsmannanna og Lárus Guðmundsson auglýsingastjóri segir þetta bara vera tíkalla. 16.1.2005 00:01
Kókaínkafteinn með hreint vottorð Ómar Örvarsson, skipstjórinn á dópskipinu Hauki ÍS, framvísaði hreinu sakavottorði stuttu eftir fangelsisvist fyrir að reyna að smygla 14 kílóum af kókaíni. Kristinn Sigurðsson hjá Sendibílastöðinni, þar sem Ómar vann um skamma hríð, segir vinnuveitendur berskjaldaða fyrir því ef menn hafa brotið af sér í útlöndum án þess að það sjáist á sakaskrá. 16.1.2005 00:01
Minningin lifir alltaf Uppbyggingarstarfi í Súðavík er að mestu lokið, nú þegar tíu ár eru liðin upp á dag frá því að snjóflóð tætti byggðina í sundur í ofsaveðri árið 1995. Byggðin hefur verið flutt á öruggt svæði og samheldni einkennir bæjarbraginn. Berglind Kristjánsdóttir, sem missti þrjú börn í flóðinu, segir að minning þeirra fylgi henni alltaf og hún reyni stöðugt að finna sér tilefni til að hlakka til. 16.1.2005 00:01
Sum þorp enn án hjálpar Neyðarhjálp nær ekki til afskekktra þorpa á Srí Lanka þar sem stjórnvöld og hjálparstofnanir forgangsraða aðstoðinni. Nálykt liggur enn í loftinu í þorpi nálægt höfuðborginni þar sem 1400 manns fórust í járnbrautarlest sem fór á kaf í flóðunum annan í jólum. 16.1.2005 00:01
Yfirlýsingin bíður birtingar Yfirlýsing Þjóðarhreyfingarinnar þar sem framgöngu íslenskra stjórnvalda í Íraksmálinu er mótmælt mun birtast í vikunni í bandaríska dagblaðinu New York Times. 16.1.2005 00:01
Heimsmeistarar í dýrauppstoppun? Íslendingar gætu eignast heimsmeistara í uppstoppun dýra á næstunni. Tveir hamskerar halda utan bráðlega með glæsilegan smyril og toppskarf í farteskinu í þeirri von að sigra heiminn. Stöð 2 tók hús á öðrum þeirra og kynntist undraveröld uppstoppaðra dýra. 16.1.2005 00:01
Samhugur sem á vart sinn líka Landssöfnunin Neyðarhjálp úr norðri gekk vonum framar en alls voru gefnar um 110 milljónir króna. Aldrei hefur jafn mikið fé safnast hérlendis ef safnanir vegna snjóflóðanna á Vestfjörðum eru undanskildar. 16.1.2005 00:01
Bandaríkin láti af pyntingum Forystumaður kúvæsks þrýstihóps um lausn fanga Bandaríkjahers við Guantanamo-flóa á Kúbu hvatti í gær Bandaríkjamenn til að láta af pyntingum fanga. Ummælin koma í kjölfar þess að 11 Kúveitar sem þar voru í haldi voru sendir heim. 16.1.2005 00:01
Fangar látnir lausir Bandaríkjaher lét í gær lausa um 80 fanga sem haldið hafði verið í Afganistan. Lausn fanganna er talin geta liðkað til í samskiptum við Talíbana í landinu, en bæði Hamid Karzai, forseta landsins, og Bandaríkjaher er mikið í mun að draga úr óeirðum í landinu. 16.1.2005 00:01
Látinna minnst í gær Guðsþjónustur voru haldnar í íþróttahúsinu í Súðavík og í Lágafellskirkju í gær til minningar um þá sem létust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. 16.1.2005 00:01
10 ár fyrir pyntingar Herdómstóll í Texas í Bandaríkjunum dæmdi um helgina Charles Graner, liðþjálfa í Bandaríkjaher, í 10 ára fangelsi fyrir að hafa staðið fyrir pyntingum fanga í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. 16.1.2005 00:01
Elsta konan sem eignast hefur barn Adriana Iliescu, 66 ára gömul rúmensk kona, eignaðist í gær stúlkubarn og er þar með elsta konan til að ganga með og eignast lifandi barn. Tvíburasystir stúlkunnar var andvana fædd, að sögn lækna á Giulesti-fæðingarsjúkrahúsinu í Búkarest. 16.1.2005 00:01
Tannhirða ungs fólks misjöfn Rúmur þriðjungur fólks á aldrinum 19 til 24 ára fer sjaldan til tannlæknis, meðan 60,8 prósent fara árlega, að því er fram kemur í könnun Tannlækningastofnunar Háskólans. 2,1 prósent segjast hins vegar aldrei heimsækja tannlækninn. 16.1.2005 00:01
Gamalt gen ræður frjósemi fólks Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar lýsa uppgötvun á 3 milljóna ára gamalli umhverfu á litningi 17 í grein sem birtist í gær á vef virts erfðafræðitímarits, Nature genetics. Þeir sem umhverfuna bera í erfðamengi sínu eignast að meðaltali fleiri börn en aðrir. 16.1.2005 00:01
Sprengdu þakskyggni Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti. 16.1.2005 00:01
Bílvelta í Ásahreppi Ökumaður jeppa meiddist lítillega í fyrrinótt í bílveltu á Suðurlandsvegi, rétt austan við afleggarann að Ásmundarstöðum í Ásahreppi. 16.1.2005 00:01