Annar með kókaínið 13. janúar 2005 00:01
Kókaínið sem fannst um borð í Hauki ÍS í Bremerhaven var allt í ferðatösku yngri Íslendingsins sem situr nú í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi. Hassið var falið í farangri þess eldri en mennirnir hafa báðir verið úrskurðaðir í sex mánaða gæsluvarðhald. Robert Dütsch, upplýsingafulltrúi hjá tollinum í Hamborg, segir að rannsókn málsins miðist meðal annars að því að finna seljendur fíkniefnanna í Þýskalandi. Hann vill því ekkert segja frekar um málið eins og upplýsingar sem leitt gætu til handtöku seljendanna því þannig gæfi hann þeim upplýsingar um leið. Enn er þó verið að rannsaka efnin á rannsóknarstofu þar sem fingrafara og annara vísbendinga er leitað á pakkningunum. Í samtali við Nordsee Zeitung í Bremerhaven segir Dütsch að talið sé að Íslendingarnir hafi borgað rúmar átta milljónir fyrir fíkniefnin. Robert Dütsch segir þýska tollinn fylgjast sérstaklega með ferðum skipa og flugvéla til Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands þar sem verðlag sé almennt mjög hátt í þessum löndum. Hann segir að til þessara landa sé reynt að smygla tóbaki, áfengi og fíkniefnum. Skipstjóri Hauks ÍS í Þýskalandsferðinni hlaut fangelsisdóm í Suður Ameríku árið 1997 fyrir að vera með fjórtán kíló af kókaíni. Hann fékk tuttugu mánaða dóm og þurfti að sitja inni í tíu mánuði. Þá átti að þingfesta ákæru á hendur honum, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fyrir að hafa tæplega 180 kannabisplöntur í sinni vörslu. Hins vegar tókst ekki að birta honum ákæruna og var málinu því frestað. Dütsch sagðist aðspurður ekki hafa haft hugmynd um að skipstjórinn hefði setið inni fyrir kókaínsmygl en hann fékk að sigla skipinu heimleiðis til Íslands eftir að leitað hafi verið í Hauki ÍS. Fram kemur í Nordsee Zeitung að Íslendingarnir virðist ekki hafa átt von á því að leitað yrði í skipinu þrátt fyrir að mjög gjarnan sé leitað í fiskiskipum. Það hafi mátt sjá á því hversu illa efnin voru falin. Heimildarmaður Fréttablaðsins segir hæpið að mennirnir hafi fjármagnað kaup efnanna sjálfir. Eins vill hann meina að nokkur hluti áhafnarinnar hafi áður komið við sögu lögreglu. Eiríkur Böðvarsson, eigandi Hauks ÍS, segist hafa vitað um dóminn sem skipstjórinn hafi hlotið í Suður Ameríku fyrir kókaínsmyglið. Eiríkur segir hann þó aðeins vera afleysingaskipstjóra í þessum túr en að öllu jöfnu sé hann stýrimaður.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira