Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Júsjenkó varð fyrir eitrun Viktor Júsjenkó, forsetaframbjóðandi í Úkraínu varð fyrir dioxineitrun, en ekki er enn vitað hvort eitrað hafi verið fyrir honum af ásettu ráði. Læknar sem rannsakað hafa Júsjenkó undanfarna daga segja engan vafa leika á því að Júsjenkó hafi orðið fyrir dioxineitrun og líklega hafi hann fengið það í gegnum munninn. 11.12.2004 00:01
2 háttsettir embættismenn skotnir Tveir háttsettir embættismenn innan bráðabirgðastjórnarinnar í Írak voru skotnir niður í suðvesturhluta Baghdad í morgun. Mennirnir voru á leið til vinnu þegar byssumenn létu til skarar skríða og hófu skothríð á bifreið þeirra. 11.12.2004 00:01
54 blaðamenn drepnir á árinu Árið sem nú er senn á enda er hið mannskæðasta í stétt blaðamanna um áratuga skeið. Alls hafa 54 blaðamenn verið myrtir við störf sín í ár, þar af 23 í Írak. Þá eru ótaldir þeir sem látist hafa úr slysum eða árásum þegar þeir hafa ekki verið við störf. Næstflestir hafa verið myrtir á Fillipseyjum, eða átta. 11.12.2004 00:01
Flogið til Vietnam á nýjan leik Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur hafið áætlunarflug til Vietnam og þar með komið á fyrstu almennu samgöngunum á millli landanna tveggja síðan Vietnamstríðinu lauk. Flugið tekur tuttugu klukkustundir og er flogið í 347 sæta boing 747 flugvél. 11.12.2004 00:01
Rúmar 6 milljónir fóru í laun Listamönnum sem komu fram á tónleikum sem haldnir voru til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna í Hallgrímskirkju, var greitt ríflega 6,2 milljónir fyrir framlag sitt. Ekki hefur verið gefið upp hve mikið hver þeirra fékk fyrir sinn snúð. Alls komu fram fjórir einsöngvarar, 23 tónlistarmenn og yfir 250 kórfélagar á tónleikunum. 11.12.2004 00:01
Enn talað um eitrun Úr hverju dó Arafat? Þessari spurningu hefur ekki verið svarað með fullnægjandi hætti, og enn er því haldið fram að honum hafi verið byrlað eitur. 11.12.2004 00:01
Björgunarskip kallað út Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var kallað út klukkan fjögur í fyrrinótt eftir að fimmtán tonna trilla óskaði aðstoðar. 11.12.2004 00:01
Fíkniefni fundust Húsleit var framkvæmd í íbúðarhúsnæði á Akranesi á föstudagskvöld. Að sögn lögreglunnar á Akranesi lék grunur á að fíkniefni væru þar innandyra. 11.12.2004 00:01
Ákærður fyrir tilraun til manndráp Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann sem kærður var fyrir tilraun til manndráps í júlí í sumar. Karlmaðurinn er sakaður um að hafa reynt að skera leigubílstjóra á háls í Vesturbæ Reykjavíkur. 11.12.2004 00:01
Bílvelta við Eyrarhlíð Bifreið valt um hádegisbilið á laugardag við Eyrarhlíð í umdæmi lögreglunnar á Ísafirði. 11.12.2004 00:01
Allt ónýtt í Nóatúni Eldur kviknaði rétt eftir miðnætti í verslun Nóatúns í JL-húsinu í gærnótt. Allt er eyðilagt í versluninni en engin slys voru á fólki. Talið er að eldur hafi kviknað í kringum kjötborð verslunarinnar. Starfsfólk þarf ekki að hafa áhyggjur af starfi sínu. 11.12.2004 00:01
Játuðu fíkniefnaeign Bifreið var stöðvuð aðfaranótt laugardags í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðarbæ þar sem grunur lék á fíkniefnamisferli. 11.12.2004 00:01
Brenndist í vinnunni Vinnuslys varð á veitingastaðnum Broadway klukkan 20.15 á föstudagskvöld. 11.12.2004 00:01
Brá hníf að hálsi sínum Tilkynning barst til lögreglunnar í Reykjavík klukkan 02.15 aðfaranótt laugardags um mann sem brotið hafði rúðu í versluninni Ég og þú á Laugavegi 48. 11.12.2004 00:01
35 millljarðar í undanskot Starfshópur sem kannaði umfang skattsvika hérlendis telur að tekjutap ríkis og sveitarfélaga nemi allt að þrjátíu og fimm milljörðum á ári. Sú starfsemi sem mest er hætt við undanskotum er byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, veitingarekstur og hverskyns persónuleg þjónusta. 11.12.2004 00:01
Leigumarkaðurinn að skána Ástandið á leigumarkaðinum hefur batnað undanfarin ár að mati nefndar á vegum Félagsmálaráðherra. Aðsókn hefur þó sjaldan eða aldrei verið meiri í félagslegar íbúðir á vegum borgarinnar. 11.12.2004 00:01
Tjónið tugir milljóna Tugmilljóna tjón varð í bruna í verslun Nóatúns, í JL-húsinu, síðastliðna nótt. Allt sem í versluninni var er ónýtt, vörur, raftæki og innréttingar. 11.12.2004 00:01
Dioxín eitrun Orsök hinnar dularfullu veiki sem Júsénkó, forsætisráðherra Úkraínu hefur þjáðst af undanfarnar vikur, er díoxíneitrun. Líklegt er að honum hafi verið byrlað eitur. Íslenskur eiturefnasérfræðingur segir efnið bráðdrepandi í mjög litlum skömmtum. 11.12.2004 00:01
Var málið rætt 18. mars? Íraksmálið komst óvænt á dagskrá á Alþingi í gær, skömmu áður en alþingismenn fóru í sex vikna jólafrí. Forsætisráðherra sagði þá að Íraksmálið hefði verið rætt á ríkisstjórnarfundi 18. mars 2003 og sendiráði Bandaríkjanna tilkynnt um stuðning Íslands við hernaðaraðgerðir í framhaldi af því. 11.12.2004 00:01
Hagnaðurinn nam 5 milljónum Tónleikarnir sem haldnir voru fyrir Félag krabbameinssjúkra barna skiluðu félaginu tæpum fimm milljónir króna. Tónleikahaldarinn segir að umfjöllunin dragi ekki úr honum kjark til þess að halda áfram. 11.12.2004 00:01
Þrjú skip hér á landi Fastafloti NATO á Atlantshafi verður stóreflldur á næstu árum, og verður þá tilbúinn til átaka hvar sem er, í heiminum. Þrjú herskip úr flotanum verða til sýnis í Sundahöfn, um helgina. 11.12.2004 00:01
Framsókn fengi engan mann kjörinn Framsóknarflokkurinn fengi engan mann kjörinn ef flokkurinn biði fram einn og sér í borgarstjórnarkosningum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðismenn fengju sex menn kjörna eins og þeir hafa nú. Oddviti Framsóknar í borginni segir könnunina endurspegla fylgisleysi Sjálfstæðismanna öðru fremur. 11.12.2004 00:01
Óvíst með bæjarstjóra Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn í Kópavogi hófu í gær viðræður um hver taki við starfi bæjarstjóra í kjölfar andláts Sigurðar Geirdal. 11.12.2004 00:01
Viðskiptabankar vísa á skattaskjól Mörg dæmi eru um það hér á landi að stofnuð séu fyrirtæki í erlendum skattaparadísum til að koma tekjum einstaklinga og fyrirtækja undan skatti hér á landi. Í úttekt á umfangi skattsvika, sem nefnd á vegum Alþingis gerði, kemur í ljós að íslenskir bankar hafi liðsinnt félögum og einstaklingum í viðskiptum við lönd með vafasamar skattareglur. 11.12.2004 00:01
Rafmagnsreikningar hækka um áramót Rafmagnsreikningar höfuðborgarbúa munu væntanlega hækka um rúm tíu prósent um áramótin. Stjórnir OR og Hitaveitu Suðurnesja taka ákvörðun fyrir áramót. Ástæðan er sögð ný raforkulög. </b /> 11.12.2004 00:01
Tillögur Sharon samþykktar Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk vilja sínum framgengt á fundi Likud-flokksins í gærkvöldi en þar voru greidd atkvæði um hugmyndir hans um þjóðstjórn með Verkamannaflokknum. Tillagan hlaut afgerandi stuðning enda hafði Sharon hótað að boða annars til kosninga, sem hefði getað leitt til þess að Likud-flokkurinn missti völdin í landinu. 10.12.2004 00:01
Grét og flúði aðbúnaðinn á Grund Magnús Benjamínsson, rúmlega áttræður vistmaður á Elliheimilinu Grund, gekk í gærkvöldi út af elliheimilinu ásamt dóttur sinni og tengdsyni. Magnús hefur verið á Grund í nokkra mánuði og hefur á þeim tíma þurft að flytja sig tvisvar um herbergi. Auk þess hafi fárveikir menn komið og farið úr herbergi hans.<font face="Helv"></font> 10.12.2004 00:01
Eftirlifandi kindur skoðaðar Dýralæknir mun í dag skoða betur það fé, sem lifði af þegar gólf í stórri kró í fjárhúsi í Mývatnssveit gaf sig í gær með þeim afleiðingum að um hundrað fjár steyptist ofan í ískalda meters djúpa forina fyrir neðan. Tuttugu kindur drápust, en með aðstoð nágranna, björgunarsveitarmanna og lögreglu tókst að bjarga 80 kindum. 10.12.2004 00:01
Morgunblaðshúsið selt Stjórn Árvakurs, sem gefur út Morgunblaðið, hefur ákveðið að selja allar eignir félagsins í Kringlunni, þar sem blaðið hefur verið til húsa í tuttugu ár og flytja alla starfssemi að Hádegismóum við Rauðavatn, þar sem ný prentsmiðja blaðsins er risin. Söluverð er rúmir tveir milljarðar og er kaupandi fasteignafélagið Klasi. 10.12.2004 00:01
Hermaður féll í Írak í gær Bandarískur hermaður féll í gær í árás uppreisnarmanna í Írak, en talsmenn hersins vilja ekki greina frá kringumstæðunum. Nú liggur jafnframt fyrir að sjötíu hermenn fórust í áhlaupinu á Fallujah í síðasta mánuði, og átök standa þar enn á stöku stað. Í borginni Ramadi virðast uppreisnarmenn sækja í sig veðrið. 10.12.2004 00:01
Árni Johnsen þjófkennir Steingrím Árni Johnsen hefur bæði í bók og Kastljósi Ríkissjónavrpsins staðhæft að Steingrúmur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hafi stolið fágætu fiðrildi af skrifstofu þáverandi umhverfisráðherra og fært Steingrími Hermannssyni að gjöf. Athyglisvert vegna þess að sjálfur hefur Árni verið dæmdur í fangelsi fyrir að stela eigum hins opinbera.<font face="Helv"></font> 10.12.2004 00:01
Grunaðir um stuld á skartgripum Tveir menn eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík, meðal annars grunaðir um að hafa stolið skartgripum fyrir eina og hálfa milljón króna úr úra- og skartgripaverslun við Laugaveg í fyrrinótt. Upphaflega voru mennirnir handteknir í nótt út af öðrum málum, en það leiddi til þess að lögregla fann tösku falda utandyra. 10.12.2004 00:01
Allt fé skorið vegna riðu? Yfirdýralæknir mun á næstunni funda með bændum í Biskupstungum um hugsanlega nauðsyn þess að skera allt fé á svæðinu eftir að riða greindist í fé frá bænum Austurhlíð. Áður en það kom í ljós, var fé aðeins eftir á sjö bæjum í héraðinu eftir niðurskurð á öðrum bæjum vegna riðu. 10.12.2004 00:01
Olíuverð lækkar líklega Olíuverð mun að líkindum hækka á heimsmarkaði eftir fund olíumálaráðherra OPEC-ríkjanna í dag, þar sem ræða á hvort að rétt sé að draga úr offramleiðslu með hliðsjón af lækkun heimsmarkaðsverðs á olíufati undanfarið. 10.12.2004 00:01
Samkynhneigðir í hjónaband Samkynhneigðir geta nú staðfest samvist sína á Nýja-Sjálandi eftir að þing landsins samþykkti lög þess efnis. Hundruð söfnuðust fyrir utan þinghúsið til að fagna niðurstöðinni, en lögin gera þó ekki ráð fyrir að samkynhneigðir geti gengi í hjónaband. Slíkt samband er á Nýja-Sjálandi aðeins á milli karls og konu. 10.12.2004 00:01
Bandaríkjamönnum fækkar Hátt gengi dollars hefur þegar dregið eitthvað úr heimsóknum bandaríkjamanna hingað til lands, að sögn Steins Loga Björnssonar sölu- og markaðsstjóra Icelandair. Bandarískum ferðamönnum hefur fjölgað hlutfallslega meira hér á landi en í nágrannalöndunum undanfarin misseri, eða eftir að Bandaríkjamenn fóru aftur að ferðast til Evrópu eftir áfallið 11. september 2001. 10.12.2004 00:01
Þúsund deyja á hverjum degi Þúsund manns týna lífi á hverjum degi í Kongó. Ástæðan er borgarastyrjöld sem heldur áfram þrátt fyrir að friðarsamkomulag hafi verið undirritað fyrir einu og hálfu ári. Þrjár milljónir og 800 þúsund hið minnsta hafa látist í landinu undanfarin sex ár, sem þýðir að borgarastyrjöldin er mannskæðasta stríð frá Seinni heimsstyrjöldinni. 10.12.2004 00:01
Hermaður fundinn sekur um morð Bandarískur hermaður var í herrétti í dag fundinn sekur um morð, fyrir að hafa skotið óvopnaðan íraskan borgara í í Bagdad í ágúst.Maðurinn sagðist hafa skotið hann til að lina þjáningar hans. Refsingin hefur ekki verið ákveðin, en lögmenn mannsins hafa samið um að hún verði ekki þyngri en tíu ára fangelsi. Annars hefði verið hægt að krefjast lífstíðardóms. 10.12.2004 00:01
Lögregla rannsakar æðiskast Sýslumaðurinn í Dalasýslu hefur óskað eftir því að Ríkislögreglustjóri rannsaki atvikið sem varð á bæ í Dölunum í gær, þegar æði rann á heimilisföðurinn og hann stórskemmdi lögreglubíl embættisins með stjórri hjólaskóflu. 10.12.2004 00:01
Öll starfsemi flutt að Hádegismóum Stjórn Árvakurs, sem gefur út Morgunblaðið, hefur ákveðið að selja allar eignir félagsins í Kringlunni, þar sem blaðið hefur verið til húsa í tuttugu ár og flytja alla starfssemi að Hádegismóum við Rauðavatn, þar sem ný prentsmiðja blaðsins er risin. Söluverð er rúmir tveir milljarðar og er kaupandi fasteignafélagið Klasi. 10.12.2004 00:01
Var hætt kominn þegar gólfið féll Bróðir húsfreyjunnar að Geiteyjarströnd í Mývatnssveit var hætt kominn þegar gólf í fjárhúsinu brast og hann féll ásamt hundrað kindum niður í metra djúpa og ískalda haug- og hlandforina í kjallaranum. 10.12.2004 00:01
Svæðið bara girt af Ólíklegt er að frekar verði aðhafst á jörðinni Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, þar sem miltisbrandseitrun kom upp, annað en að girða smitsvæðið af um alllanga framtíð. Embætti yfirdýralæknis hefur borist upplýsingar um að miltisbrandur leynist í jörð á að minnsta kosti áttatíu stöðum víðs vegar um landið. 10.12.2004 00:01
Allir vilja nýta sér lágan dollar Sögulegt lágmark dollarans tekur á sig ýmis birtingarform. Til dæmis hafa Íslendingar sem starfa í Bandaríkjunum fundið fyrir miklu áreiti skyldmenna, kunningja og samstarfsfólks um það að kaupa hitt og þetta á síðustu vikum. Allir vilja nýta sér lágt gengi dollarans. 10.12.2004 00:01
Berlusconi dæmdur í dag? Búist er við að dómur verði kveðinn upp í dag yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vegna mútumála. Berlusconi, sem er margfaldur milljarðamæringur, er sakaður um að hafa mútað nokkrum dómurum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og þannig keypt sér hagstæðan úrskurð í málum sem snertu Fininvest-veldið hans. 10.12.2004 00:01
Krabbamein í börnum eykst Krabbamein í evrópskum börnum hefur farið hratt vaxandi á undanförnum árum og áratugum. Þetta sýnir ný rannsókn sem birtist í fagtímaritinu The Lancet. Alþjóðleg mistöð fyrir krabbameinsrannsóknir skoðaði tíðni krabbameins í börnum í 19 Evrópulöndum. Í ljós kom að tíðnin jókst um eitt prósent á ári hjá börnum og eitt og hálft prósent hjá unglingum á síðustu þremur áratugum. 10.12.2004 00:01