Svæðið bara girt af 10. desember 2004 00:01
Ólíklegt er að frekar verði aðhafst á jörðinni Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, þar sem miltisbrandseitrun kom upp, annað en að girða smitsvæðið af um alllanga framtíð. Embætti yfirdýralæknis hefur borist upplýsingar um að miltisbrandur leynist í jörð á að minnsta kosti áttatíu stöðum víðs vegar um landið. Miltisbrandur, lífshættulegur og bráður smitsjúkdómur, getur sýkt öll dýr með heitt blóð. Orsökin er baktería, sem myndar afar lífseig dvalargró, en þau geta lifað lengi í jörð, jafnvel svo öldum skipti. Ekki þykir ráðlegt að raska frekar við jörðinni á Vatnsleysuströnd en niðurstöðu úr rannskókn á sýnum sem tekin voru við bæinn er enn beðið. Svæðið sem hrossin fundust á verður afgirt og merkt sérstaklega. Vegna lífsseiglu bakteríunnar má búast við að svo verði um ófyrirsjáanlega framtíð. Þá hefur ekki þótt ástæða til að taka sýni úr jörðum í nágrenni við Sjónarhól. Enginn ábúandi hefur verið á Sjónarhóli síðustu þrjá áratugi. Þó nokkrir hafa sýnt áhuga á að kaupa jörðina, en alls óvíst þeir séu enn jafn áhugasamir eftir að militsbrandseitrunin uppgötvaðist. Embætti yfirdýralæknis minnti nýlega á og varaði við smithættu í jörð, vegna hræja af dýrum sem drápust úr militsbrandi á árum áður. Miltisbrandssmits hefur ekki orðið vart síðustu fjörutíu ár eða þar til hrossin á Sjónarhóli drápust af völdum hans fyrir fáeinum dögum. Embættið hefur skorað á sveitastjórnir að hefja athugun á því hvort sögur eða nákvæmar upplýsingar séu til um miltisbrandstilfelli og á síðustu dögum hafa á þriðja tug ábendinga borist, víðs vegar af landinu. Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir stefnt að því að staðirnir verði kortlagaðir, svo þeir sem þurfi að raska við jörð geti gert sér grein fyrir hvort um smitsvæði gæti verið að ræða. Yfirdýralæknir tekur þó fram að verkið verði kostnaðarsamt og að auka fjárveitingu þurfi til að gangast í það, svo vel sé. Þeim eindregnu tilmælum er bent til eigenda skepna sem verða sjálfdauðar, að kalla til dýralækni og hreyfa ekki við hræjunum ef grunur leikur á að um miltisbrandseitrun sé að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Fleiri fréttir Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Sjá meira