Fleiri fréttir

Prozac hættulegt börnum

Lyfjaeftirlit Evrópusambandsins telur þunglyndislyfið Prozac hættulegt börnum, þvert á það sem forsvarsmenn lyfjaiðnaðarins í Bretlandi hafa haldið fram. Hátt í 200 þúsund börn og unglingar undir 18 ára aldri taka hin ýmsu þunglyndislyf að staðaldri í Bretlandi og að undanförnu hefur því verið haldið fram að Prozac sé öruggast slíkra lyfja fyrir börn.

Á milli 20 og 40 heimilislausar

Talið er að á milli tuttugu og fjörutíu konur í höfuðborginni séu heimilislausar. Konukot, athvarf fyrir heimilislausar konur var opnað í dag á 80 ára afmæli Rauða Kross Íslands. Athvarfið er rekið af Reykjavíkurdeild Rauða krossins að Eskihlíð 4. Þar eru rúm fyrir átta konur auk hreinlætis- og þvottaaðstöðu.

7 létust í sprengingu í Pakistan

Að minnsta kosti sjö eru látnir og nokkrir slasaðir eftir sprengingu við herjeppa í suð-vesturhluta Pakistan í morgun. Fjögurra kílógramma sprengju var komið fyrir á reiðhjóli og hún sprakk við herjeppann með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið samstundis og nokkrir til viðbótar létust eftir að þeir höfðu verið fluttir á sjúkrahús.

4 slasaðir eftir sprengingu

Fjórir Ísraelsmenn slösuðust í morgun þegar palestínskir uppreisnarmenn skutu með sprengjuvörpu á fjölbýlishús á Gaza-ströndinni í morgun. Að minnsta kosti einn mannanna er í lífshættu.

Kostnaðurinn óeðlilegur?

Fjarskiptayfirvöld Evrópusambandsins hafa hafið rannsókn á því hvort kostnaður símtala úr farsímum á milli landa sé óeðlilega hár. Sem stendur er kerfið þannig að farsímar finna sér samband í símakerfi þess lands sem hringt er í, en eigi að síður er kostnaður símtala úr farsímum á milli landa töluvert hærri en ef hringt er innanlands.

Niðurstaða rannsókna brátt ljós

Forsetaframbjóðandinn úkraínski, Viktor Júsjenkó, fær væntanlega að vita það í dag hvort eitrað hafi verið fyrir honum í aðdraganda forsetakosninganna umdeildu í Úkraínu. Niðurstöður blóðrannsókna á Júsjenkó munu brátt liggja fyrir og kemur þá í ljós hvers vegna útlit stjórnarandstæðingsins hefur tekið stakkaskiptum á aðeins nokkrum vikum.

Fyrrverandi SS-foringi ákærður

Dómstóll í Danmörku hefur gefið út ákæru á 83 ára gömlum fyrrverandi dönskum SS-foringja, sem nú býr í Þýskalandi. Manninum, sem einnig hefur þýskt ríkisfang, er gefið að sök að hafa fyrirskipað morð á dönskum blaðamanni árið 1943.

Ný stjórn í Ísrael

Ný stjórn er í fæðingu í Ísrael sem er sammála um að eftirláta Palestínumönnum Gazasvæðið, og flytja þaðan á brott alla Ísraelsmenn. Vonir um frið hafa glæðst.

Geri sér grein fyrir áhættu

Fjármálaeftirlitið hyggst herða eftirlit með fasteignalánum og útlánum sem fela í sér markaðsáhættu. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að bankarnir verði að gera sér grein fyrir þeim áhættum sem fylgi þeirri þróun sem átt hafi sér stað.

Samningur við Samskip framlengdur

Vegagerðin hefur framlengt samning við Samskip um rekstur Sæfara til næstu tveggja ára en félagið hefur séð um rekstur ferjunnar frá árinu 1996. Sæfari siglir milli Dalvíkur, Grímseyjar og Hríseyjar. Rekstur ferjunnar er sagður hafa gengið vel og flutningar aukist ár frá ár.

Óska eftir stöðumælum

Íbúar við Bárugötu, Ránargötu eða Öldugötu í Reykjavík hafa óskað eftir því við Bílastæðasjóð að settir verði stöðumælar í göturnar til að auka aðgengi að bílastæðum á daginn.

Þrisvar til útlanda

Skattabreytingar ríkisstjórnarinnar færa fjögurra manna fjölskyldu með alls 24 milljónir í árstekjur og 40 milljóna hreina eign tæpar 1,8 milljónir í vasann. Fyrir það getur fjölskyldan keypt jeppa eða farið þrisvar til útlanda </font /></b />

Mikið óöryggi í Írak

Vladimir Pútín segir ástandið í Írak enn of slæmt til þess að rússnesk fyrirtæki treysti sér til þess að halda úti starfsemi þar. Hann segir rússnesk fyrirtæki tilbúin til þess að halda til Írak á nýjan leik um leið og viðeigandi öryggisráðstafanir hafi verið teknar, en sem stendur sé ástandið of ótraust.

Innlagnir vegna aukaverkana

Þunglyndislyf geta valdið örlyndi og hegðunartruflunum hjá börnum og unglingum á fyrstu stigum meðferðar. Í alvarlegustu tilvikunum getur innlögn verið nauðsynleg, meðan jafnvægi er að komast á líðanina, segir yfirlæknir á BUGL. </font /></b />

Dæmdur í 15 mánaða fangelsi

Maður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot, tilraun til fjársvika og fjársvik, þjófnað, hylmingar og vopnalagabrot. Það var Héraðsdómur Reykjaness sem kvað upp dóminn.

Eftirlit með ræktunarhundum

Þetta er meðal breytinga á reglum um hundahald í Reykjavík, sem samþykktar hafa verið hjá Umhverfis og heilbrigðisnefnd.

Leitað að léttari rifflum

Íslenska friðargæslan leigir öll vopn sem sveitin notar. Hún leitar nú að léttari rifflum en notaðir hafa verið til þessa því þeir þykja of stórir og of kraftmiklir. Hecler og Koch riflarnir sem friðargæslan notar núna eru stórir og fyrirferðamiklir að sögn Arnórs Sigurjónssonar, yfirmanns friðargæslunnar.

Berlusconi sýknaður

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, var síðdegis í dag sýknaður af ákæru um mútugreiðslur. Annar liður ákærunnar um mútugreiðslur var látinn niður falla þar sem of langt er liðið frá meintum brotum. Berlusconi var sakaður um að hafa mútað dómurum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og þannig keypt sér hagstæðan úrskurð í málum sem snertu Fininvest-veldi hans.

Eru að drukkna í óskum um kaup

Íslendingar, sem búa í Bandaríkjunum eru að verða gráhærðir yfir kvabbi, að heiman, um að kaupa þetta og kaupa hitt. Það er lágt gengi dalsins, sem veldur þessu fjarstýrða innkaupaæði.

Nýr skóli í Norðlingaholti

Nýr 350 nemenda grunnskóli í Norðlingaholti verður tekinn í notkun næsta haust. Skólinn mun fyrst um sinn vera með kennslu í færanlegu húsnæði. Stefán Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs, segir ekki ákveðið hvenær framkvæmdir við sjálfa skólabygginguna hefjist.

Tjónið nemur einni milljón

Tjónið sem varð í fjárhúsunum við bæinn Víðihlíð við Mývatn á fimmtudaginn nemur líklega allt að einni milljón króna. Bóndinn telur að tryggingarnar bæti ekki nema lítinn hluta tjónsins. </font /></b />

Fréttblaðið mest lesið

Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup. Að meðaltali lesa 68,5 prósent fólks blaðið daglega sem er nákvæmlega sama hlutfall og sagðist lesa blaðið í könnun Gallup fyrir mánuði síðan.

Ríkislögreglustjóri rannsakar

Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík fór vestur í Saurbæjarhrepp í Dölum í gær til að rannsaka vettvang atviks sem varð þar í fyrradag. Þá eyðilagði maður lögreglubíl með hjólaskóflu þegar gert var hjá honum fjárnám og einnig leikur grunur á að hann hafi reynt að kveika í íbúðarhúsi sínu.

Útiloka ekki íkveikju

Lögreglurannsókn vegna brunans á Sauðarkróki um síðustu helgi þar sem ungur maður lést hefur litlu skilað enn sem komið er. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir að beðið sé eftir niðurstöðum úr sýnatöku tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík.

Norðursnjáldri í Kelduhverfi

Norðursnjáldri fannst í landi bæjarins Fjalla í Kelduhverfi. Þetta er annar hvalurinn á aðeins einum mánuði sem rekur þar á land. Hlynur Ármannsson, líffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, segir hvalinn líklega ungt kvendýr.

Áhyggjur vegna fasteignaskatts

Verði kirkjum gert að greiða fasteignagjöld kemur það væntalega í hlut þeirra rúmlega 280 safnaða að greiða þau, segir Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs þjóðkirkjunnar.

Bílveltur

Flutt með sjúkrabíl Kona, ökumaður bíls, slasaðist við bílveltu á Suðurlandsvegi á móts við bæinn Mæri. Hún var flutt ásamt farþega með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina á Selfossi.

Gjöld hækka í Mosfellsbæ

Framsóknarmenn í Mosfellsbæ gagnrýna að skuldir á hvern bæjarbúa verði komnar yfir 600 þúsund og að heildarskuldir bæjarins verði um 4,3 milljarðar króna á næsta ári.

Verðið lækkar með aukinni notkun

Ríkisvaldið hefur ekki uppi ráðagerðir um að beita sér fyrir breytingum á verði gagnaflutninga um Farice sæstrenginn. Forsvarsmenn fyrirtækisins benda á að verð gagnaflutninga um strenginn muni lækka með auknum viðskiptum.

Sæstrengir í stuttu máli

Sæstrengirnir tveir sem til landsins liggja tryggja stafræna gagnaflutninga til og frá landinu. Strengirnir eru í raun fjöldi ljósleiðara sem lagðir eru saman í þykkum kapli, en um ljósleiðarana fara svo hvers konar stafræn gögn, sama hvort þar er um að ræða hljóð- eða myndsendingar, eða gagnastreymi Internetsins.

Hvetur til aukinna matvælavarna

Bandaríkjamenn eyða næstum tug milljarða á ári í að verja matvæli hryðjuverkaárásum. Hættan á slíkum árásum er hins vegar nær engin. Forstjóri Bandarísku lyfjamálastofnunarinnar (FDA) segir sömu rök gilda um viðbúnaðinn og um varnir gegn kúariðu.

Stórum veiðisvæðum lokað

Talið er að ákvörðun Evrópusambandsins um að loka stórum veiðisvæðum í Norðursjó, Írlandshafinu og út af vesturströnd Skotlands muni leiða til sextíu prósenta samdráttar í síldveiðum, 34 prósenta í þorskveiðum og 27 prósenta samdráttar í makrílveiðum.

Eigendur sjávarjarða vilja fiska

Samtök eigenda sjávarjarða ætla að stefna ríkinu til að fá aftur útróðrarrétt. Ómar Antonsson, formaður samtakanna, segir að eigendur sjávarjarða hafi haft þennan rétt frá ómunatíð og hafi meðal annars greitt af því fasteignagjöld.

Ameríkanar á slóð gamalla sanninda

Bandarískir vísindamenn þykjast hafa fundið nýjan sannleik varðandi eldingar í gosstrók eldgosa. Íslenskur vísindamaður hjá Veðurstofu Íslands telur kollega sína ef til vill hafa gleymt gömlum sannindum um rafhleðslu gufu sem myndast við hvellsuðu.

Ljósagangur af eldingum síðustu daga

Síðustu daga hefur gengið mikið þrumuveður suður og suðaustur af landinu. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur á sérþjónustudeild veðursviðs Veðurstofunnar, segir mesta veðrið hafa verið á fimmtudag.

Sameining MS og MBF

Sameining Mjólkurbús Flóamanna (MBF) og Mjólkursamsölunnar (MS) er á dagskrá, að því er fram kemur í fulltrúaráðum félaganna. Taka á ákvörðun um málið í mars.

Skráningargjöldin hækkuð

Frumvarp menntamálaráðherra, um að hækka skrásetningargjöld ríkisháskólanna, var samþykkt á Alþingi í dag. Skattalækkunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar verður afgreitt í kvöld en að fundi loknum fara þingmenn í jólaleyfi.

Vill að Mörður læri mannasiði

Gunnar I. Birgisson formaður menntamálanefndar vill að Mörður Árnason alþingismaður sæki námskeið í mannasiðum. Hann hefur kvartað við forseta Alþingis undan dónaskap þingmannsins við gesti nefndarinnar. Mörður segist ekki kannast við að hafa verið dónalegur. Hann vill að Gunnar Birgisson sæki námskeið í lýðræði.

Bændur ósáttir

Það var kurr í mörgum bændum þegar Óbyggðanefnd kvað, í dag, upp úrskurði í níu málum sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.

Gagnabanki um mænuskaða

Heilbrigðisráðherra undirritaði, í dag, samning við Auði Guðjónsdóttur, hjúkrunarfræðing, um stofnun alþjóðlegs gagnabanka um mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, kom að þessu máli eftir að dóttir hennar, Hrafnhildur Thoroddsen lamaðist fyrir neðan mitti, eftir umferðarslys, árið 1989.

Misboðið vegna ofsókna

Pashar Almoallem og Þórkatla Jónsdóttir hafa verið hamingjusamlega gift í fimm ár og búsett allan þann tíma hér á landi. Hann er sýrlenskur og hún íslensk. Útlendingaeftirlitið kannar nú hvort hjónaband þeirra sé málamyndahjónaband.

Konukot opnað

Konukot, næturheimili fyrir heimilislausar konur var formlega opnað í dag á áttatíu ára afmæli Rauða krossins. Talið er að tuttugu til þrjátíu konur í Reykjavík eigi hvergi höfði sínu að halla í borginni. Í Konukoti fá þær athvarf á nóttunni og geta notað hreinlætis- og þvottaaðstöðu. 8-10 konur í einu geta fengið inni í Konukoti.

Friður er forsenda uppbyggingar

Hálft annað ár er liðið síðan ráðist var á Írak og ógnarstjórn Saddams steypt af stóli. Engu að síður er enn róstusamt í landinu og talsvert vantar upp á að þjóðlíf komist í eðlilegt horf.

Þorsti og hungur hlutskiptið

400 milljónir barna hafa ekki aðgang að hreinu vatni og um 100 milljónir búa við alvarlega vannæringu. Á meðan við undirbúum gleðileg jól hafa yngstu íbúar fátækustu landanna fátt til að hlakka til.

Frumkvæðið var okkar

"Frumkvæðið kom frá okkur um að þetta væri nauðsynlegt, eftir að við fengum mjög dökka skýrslu um ástand fiskstofnanna í árslok 1983," segir Kristján Ragnarsson, sem var formaður og framkvæmdastjóri Landssambands útvegsmanna um árabil. "Svo lengi sem ég var formaður LÍÚ talaði ég fyrir því að við ættum að fara að ráðleggingum fiskifræðinga."

Sjá næstu 50 fréttir