Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útiloka ekki sprengjutilræði Lögregla vill ekki útiloka að sprengja hafi sprungið í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi í morgun. Eins er saknað eftir sprenginguna. Þó að lögregla vilji ekki útiloka sprengitilræði er jafnframt talið hugsanlegt að gassprenging hafi orðið. 8.12.2004 00:01
Launahækkanir helsti veikleikinn Stjórn Samtaka atvinnulífsins telur launahækkanir opinberra starfsmanna vera helsta veikleikann í íslenskri efnahagsstjórn á undanförnum árum. Þá þróun verði að stöðva. 8.12.2004 00:01
Mikil elding myrkvaði Grindavík Mikilli eldingu laust niður rétt vestan við Grindavík upp úr klukkan hálftíu í morgun og myrkvaðist bærinn í kjölfarið. Grindvíkingar eru öðrum landsmönnum líklega vanastir að sjá eldingar en þeir líkja þessu ljósafyrirbæri fremur sem eldhnetti en venjulegri eldingu og virðist sem mikið neistaflug kæmi í kjölfarið. 8.12.2004 00:01
Engin von um kísilduftsverksmiðju Allar vonir Mývetninga um kísilduftsverksmiðju í stað Kísiliðjunnar eru úr sögunni því norska undirbúningsfélagið að kísilduftsverksmiðjunni var lýst gjaldþrota í Noregi í gær. Þetta kom fram í máli Valgerðar Sverrisdóttur, viðskipta- og iðnaðarráðherra, á Alþingi í morgun. 8.12.2004 00:01
Yfir 20 manns geta höfðað mál Yfir tuttugu manns eru taldir hafa nægileg gögn í höndunum til að höfða mál á hendur olíufélögunum fyrir að hafa greitt of mikið fyrir eldsneyti undanfarin ár, þegar olíufélögin höfðu með sér samráð um verðið. Neytendasamtökin ætla að styðja málsóknir fólksins, ef til kemur, en hver og einn mun sækja sitt mál. 8.12.2004 00:01
Skemmdist í brotsjó Fjórir brúargluggar brotnuðu og sjór hálffyllti brúna, þegar rækjutogarinn Eyborg fékk á sig brotsjó í hávaðaveðri og stórsjó á Flæmingjagrunni í fyrrinótt. Skipverjarnir þrettán sluppu ómeiddir en nær öll tæki í brúnni eru ónýt og þarf að handstýra skipinu. 8.12.2004 00:01
Spenna Vesturlanda og Rússa vex Úkraínska þingið samþykkti í morgun lög sem gera það kleift að halda nýjar kosningar í landinu. Spennan á milli Vesturlanda, Rússlands og stjórnvalda í Úkraínu fer vaxandi og var fundi utanríkisráðherra NATO með utanríkisráðherra Úkraínu frestað í morgun. 8.12.2004 00:01
Kosningarnar fari fram á 2-3 vikum Óháð nefnd sem fjallar um framkvæmd kosninga í Írak útilokar ekki að kosningarnar fari fram á tveggja til þriggja vikna tímabili. Sem fyrr verður viðmiðunardagurinn þó 30. janúar á næsta ári. 8.12.2004 00:01
Barghouthi býður sig ekki fram Marwan Barghouthi mun ekki bjóða sig fram í forsetakosningum í Palestínu ef teikn verða á lofti um að Mahmoud Abbas muni framkvæma hluti sem falli að hugmyndafræði Barghoutis, verði hann kjörinn forseti. Búist var við harðri baráttu á milli þeirra Abbas, sem Ísraelsmenn og Bandaríkjamenn vilja að verði næsti forseti Palestínu, og hins herskáa Barghoutis. 8.12.2004 00:01
50% fleiri strákar mjög slakir Helmingi fleiri strákar en stúlkur í tíunda bekk eru mjög slakir í stærðfræði. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum PISA-könnunarinnar. Um 6% drengja hafa litla sem enga kunnáttu í stærðfræði en aðeins tæp 3% stúlkna. 8.12.2004 00:01
Vill utandagskrárumræðu um PISA-könnun Niðurstöður PISA-könnunar um námsárangur íslenskra grunnskólabarna kalla á að það verði lyft grettistaki í skólamálum Íslendinga til að koma þjóðinni í fremstu röð í menntamálum. Þetta er mat Björgvins G. Sigurðssonar, fulltrúa Samfylkingarinnar í menntamálanefnd Alþingis. Björgvin hefur óskað eftir utandagskrárumræðu um málið á þinginu. 8.12.2004 00:01
Vopnasölubanni Kína ekki aflétt Evrópusambandið mun ekki aflétta vopnasölubanni á Kína enn um sinn, að sögn Bens Bots, forseta Evrópusambandsins. Hann segir þó að vonast sé til þess að banninu verði aflétt á næsta ári. Bæði Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Jacques Chirac, forseti Frakklands hafa lýst því yfir að þeir vilji að banninu verði aflétt sem fyrst. 8.12.2004 00:01
Þrumur og eldingar í höfuðborginni Þrumur og eldingar hafa gert vart við sig meðfram allri suðurströnd landsins í dag. Að sögn Þórðar Arasonar hjá Veðurstofunni hafa eldingar sést á höfuðborgarsvæðinu síðan klukkan tíu í morgun. Undanfarna viku hefur verið mikið um þrumur og eldingar suður af landinu en fyrst í dag hefur þeirra orðið vart að einhverju ráði á landi. 8.12.2004 00:01
Blair vill ekki rannsókn í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur hafnað kröfum um að hann setji á fót óháða rannsókn á því hve margir óbreyttir borgarar hafi látið lífið í Írak síðan ráðist var inn í landið. Hópur fyrrverandi sendiherra, fræðimanna, auk biskups og herforingja sendu Blair í dag áskorun þess efnis að hann setti slíka rannsókn af stað. 8.12.2004 00:01
Andspyrnan fjármögnuð frá Sýrlandi Vígamenn í Írak njóta mun meiri stuðnings frá Írak en áður var talið, að sögn bandarískra leyniþjónustumanna sem Washington Post ræddi við. Þeir segja að fyrrum stuðningsmenn Saddams Hussein hafi fundið sér hæli í Sýrlandi og noti það til að dæla peningum til vígamanna og veita þeim annan stuðning. 8.12.2004 00:01
Föngum misþyrmt eftir Abu Ghraib Bandarískir hermenn héldu áfram að misþyrma föngum í Írak eftir að komið var upp um fangamisþyrmingar í Abu Ghraib-fangelsi síðasta vor. Þetta kemur fram í skjölum sem gerð voru opinber í fyrradag að kröfu bandarísku mannréttindasamtakanna American Civil Liberties Union. 8.12.2004 00:01
Geta greint smit mun fyrr en áður Vísindamenn í Hong Kong segjast hafa þróað aðferð til að greina fuglaflensusmit í mönnum mun fyrr en áður. Nú sé hægt að greina það á fáeinum klukkustundum en gömlu prófin voru þess eðlis að það tók nokkra daga og upp í viku að greina smit. 8.12.2004 00:01
Tveir slösuðust í sprengingu Tveir slösuðust og eins er saknað eftir sprengingu í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi. "Við leitum að eiganda íbúðarinnar, við vitum ekki hvort hann var heima hjá sér þegar sprengingin varð," sagði Björn Pihlblad, talsmaður lögreglunnar. 8.12.2004 00:01
Einn stjóri yfir allar stofnanir Bandaríkjaþing hefur samþykkt víðtækustu breytingar á yfirstjórn og starfsemi njósna- og lögreglustofnanna Bandaríkjanna frá stofnun bandarísku leyniþjónustunnar CIA skömmu eftir lok seinni heimsstyrjaldar. 8.12.2004 00:01
Bandaríkin styrkja Palestínumenn Bandaríkjastjórn hyggst veita Palestínumönnum tuttugu milljónir Bandaríkjadala í styrk vegna slæmrar fjárhagsstöðu palestínsku þjóðarinnar. Talsmaður innan Bandaríkjastjórnar segir að þetta verði vonandi til þess að fleiri þjóðir fylgi í kjölfarið. 8.12.2004 00:01
Saumuðu að Rumsfeld Bandarískir hermenn í Kúveit sem hlýddu á ræðu á ræðu Donalds Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, áður en þeir héldu af stað til Íraks saumuðu að ráðherranum í fyrirspurnum og voru auðheyrilega ósáttir við eitt og annað sem tengist því hvernig hernaðaraðgerðum er háttað í Írak þó að þeir hafi ekki sett sig upp á móti stríðinu sjálfu. 8.12.2004 00:01
Helmingsstækkun á BUGL Nú hillir undir að hafin verði bygging húsnæðis fyrir geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga, að sögn Ólafs Ó. Guðmundssonar, yfirlæknis á barna- og unglingageðdeildnni við Dalbraut. Er það í fyrsta skipti í Íslandssögunni sem húsnæði er byggt hér á landi beinlínis fyrir þá þjónustu. 8.12.2004 00:01
Dregið úr völdum forseta Úkraínska þingið samþykkti í gær að draga úr völdum forsetans og ruddi þar með úr vegi einni hindrun í deilum stjórnar og stjórnarandstöðu um framtíð Úkraínu og framkvæmd forsetakosninganna 26. desember. Þingið samþykkti einnig að víkja yfirkjörstjórn landsins frá og skipa aðra í hennar stað til að sjá um framkvæmd kosninganna. 8.12.2004 00:01
Geta gift sig fjórtán ára Drengir og stúlkur í rússneska héraðinu Oriol geta gengið í hjónaband fjórtán ára. Annars staðar í Rússlandi getur fólk gengið í hjónaband frá átján ára aldri en þingmenn á þingi héraðsins samþykktu nýlega löggjöf þar sem giftingaraldur er fjórum árum lægri en annars staðar í landinu. 8.12.2004 00:01
Fuglaflensa í fleiri dýrategundir Nýjustu rannsóknir benda til þess að fuglaflensuveiran sé að færa út kvíarnar. Hún er farin að leggjast á spendýr af kattakyni. Eitt tilfelli um smit milli manna hefur verið tilkynnt frá Taílandi, en það hefur ekki fengist staðfest. </font /></b /> 8.12.2004 00:01
Fékk verðlaun ársins Íslenska fyrirtækið 3-Plus fékk verðlaun ársins hjá Mattel, stærsta leikfangafyrirtæki í heimi. 3-Plus framleiðir og markaðssetur þroskaleikfang á vegum Fisher Price í Bandaríkjunum og Evrópu. 8.12.2004 00:01
Gagnrýnir viðbrögð yfirvalda Bóndi á næsta bæ við Sjónarhól þar sem þrjú hross drápust úr miltisbrandi gagnrýnir starfshætti yfirvalda. Honum var ráðlagt af öðrum bónda að verða sér úti um sýklalyf eftir að hafa snert eitt hræið. Grafa sem var notuð við að urða eitt hrossanna er nú austur í Þingvallasveit. 8.12.2004 00:01
Tækifæri til að gera betur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra telur að íslenskir unglingar komi ágætlega út úr niðurstöðum Pisa-könnunarinnar í stærðfræði, lestri og náttúruvísindum. 8.12.2004 00:01
Dæmdur fyrir tvær líkamsárásir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítugan mann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Þá var maðurinn einnig dæmdur til greiðslu 260 þúsund króna sektar og ökuleyfissviptingar í þrjú fyrir að keyra ítrekað undir áhrifum áfengis.</font /> 8.12.2004 00:01
Launamunur upprættur á 2-3 árum? Árni Magnússon félagsmálaráðherra telur mögulegt að uppræta launamun kynjanna hjá hinu opinbera á næstu tveimur til þremur árum. 8.12.2004 00:01
Dæmdir fyrir morð á 5 ára stúlku Sjö rússneskir unglingspiltar voru í dag dæmdir í allt að tíu ára fangelsi fyrir að myrða fimm ára gamla stúlku af sígaunaættum. Þessi hroðalegi atburður átti sér stað í St. Pétursborg í september sl. þegar piltarnir réðust að hópi sígaunastúlkna, vopnaðir öxum, hnífum, járnrörum og keðjum. 8.12.2004 00:01
Íslensk hrefna í hitabeltinu Íslensk hrefna er nú stödd í hitabeltinu samkvæmt frétt á vef Hafrannsóknarstofnunar. Þann 17. nóvember bárust merki um gervitungl frá hrefnu sem merkt hafði verið í Faxaflóa 27. ágúst og voru það fyrstu upplýsingarnar sem bárust frá því dýri. Hrefnan var þá stödd yfir Mið-Atlantshafshryggnum, um 500 sjómílur vestur af Norður-Spáni. 8.12.2004 00:01
Annir við leyfisveitingu Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir mikilli aukningu í útgáfu tóbakssöluleyfa á næsta ári. Undanfarin ár hefur hún gefið út um 40 leyfi á ári, en á næsta ári er reiknað með að þau verði 200. 8.12.2004 00:01
Elding slær út Grindavík Eldingu sem sló niður í tengivirki við stjórnstöð Hitaveitu Suðurnesja í Grindavík varð þess valdandi að rafmagnslaust varð í bænum um hálft tíu leytið í gær. Einn íbúi Grindavíkur sagði að miklar sprengingar hafi orðið þegar eldingunni laust niður. 8.12.2004 00:01
Kærir olíufélag Tæplega þrjátíu einstaklingar hafa haft samband við Neytendasamtökin og lýst yfir áhuga á þátttöku í skaðabótamáli gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs. 8.12.2004 00:01
Vilja fá veiðileyfagjaldið Sveitastjórar átta sjávarbyggða hafa lagt til við þingmenn og ráðherra að veiðigjald á kvóta renni til byggðanna og skuldir þeirra í félagslegu íbúðakerfinu verði afskrifaðar. Þeir hittu formenn þingflokkanna, Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Árna Magnússon félagsmálaráðherra að máli í gær og óskuðu eftir viðræðum við ríkisvaldið um tillögurnar. 8.12.2004 00:01
Skuldir eiga að lækka Í fjárhagáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár er gert fyrir lækkun skulda borgarsjóðs og engum nýjum langtímalánum. Oddviti sjálfstæðismanna segir helst líta út fyrir að óskhyggja ráði ferðinni í áætlunum borgarinnar. 8.12.2004 00:01
Styrkur hækkaður Digital Ísland truflaði útsendingar Ríkissjónvarpssins og Skjás Eins, þegar útsendingar hófust. 8.12.2004 00:01
Vinna hafin að skipulagi Vatnsmýri Vinna að heildarskipulagi Vatnsmýrar er að hefjast aftur eftir um tveggja ára hlé. Skipulagsnefnd Reykjavíkur hefur skipað stýrihóp til að halda utan um skipulagið. 8.12.2004 00:01
Einn handtekinn Einn maður var handtekinn í fyrrakvöld vegna húsbrots í Fossvogi í síðustu viku. Hann gaf sig ekki fram til skýrslutöku og brá lögreglan þá á það ráð að handtaka manninn. Hann gisti í fangageymslu lögreglunnar yfir nótt. 8.12.2004 00:01
Þrjú hross drápust úr miltisbrandi Þrjú hross hafa drepist úr miltisbrandi á bænum Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd. Bærinn hefur verið girtur af og öllum sem komið hafa nálægt hrossunum gefin sýklalyf. Miltisbrandur er bráðdrepandi baktería. 8.12.2004 00:01
Gert upp milli útgerða Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gagnrýnir á vefsíðu að úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa sé í höndum sveitarfélaganna sjálfra en ekki sjávarútvegsráðuneytisins. 8.12.2004 00:01
Rannsaka Öskju enn Rannsókn vegna skemmda á nýlegu náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, Öskju, stendur enn yfir. Niðurstöðu rannsóknarinnar var að vænta í september. 8.12.2004 00:01
Óvissa um orsök sprengingarinnar Algjör óvissa er um hvað olli kröftugri sprengingu í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi í nótt. Lögregla segir að maðurinn sem bjó í íbúðinni þar sem sprengingin varð sé grunaður um að hafa stolið bókum fyrir margar milljónir króna af konunglega bókasafninu í Stokkhólmi. 8.12.2004 00:01
Trygg framtíð Orkubúsins Starfsemi Orkubús Vestfjarða verður frekar efld en að dregið verði úr henni og störfum fækkað ef breytingar verða á rekstrinum. 8.12.2004 00:01