Spenna Vesturlanda og Rússa vex 8. desember 2004 00:01
Úkraínska þingið samþykkti í morgun lög sem gera það kleift að halda nýjar kosningar í landinu. Spennan á milli Vesturlanda, Rússlands og stjórnvalda í Úkraínu fer vaxandi og var fundi utanríkisráðherra NATO með utanríkisráðherra Úkraínu frestað í morgun, að sögn heimildarmanna innan NATO, þangað til ný og lögmæt stjórn tekur við völdum í landinu. Nú þykir víst að eitrað var fyrir Viktor Júsjenko, forsetaframbjóðanda stjórnarandstöðunnar, í aðdraganda kosninganna. Læknir hans segir í dag í viðtali við breska dagblaðið Times að Júsjenko hafi verið byrlað eitur. Hann vildi þó ekki staðfesta þetta í viðtali við Reuters og sagði alla möguleika skoðaða en að sérfræðingar í Frakklandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi einblíndu nú á tvö atriði. Í viðtalinu við Times segir læknirinn augljóst að reynt hafi verið að ráða Júsjenko af dögum. Þar segir einnig að það sé aðeins tímaspursmál hvenær læknarnir finna út hvert efnið sé sem orðið hafi þess valdandi að andlit Júsjenko hefur afmyndast á undanförnum mánuðum. Úkraínska þingið samþykkti fyrir stundu lög og stjórnarskrárbreytingar sem heimila að forsetakosningarnar í landinu verði endurteknar. 402 af 450 þingmönnum samþykktu frumvarp sem koma á í veg fyrir að kosningasvindl verði með sama hætti og þegar kosið var í nóvember. Ekkert verður af fundi utanríkisráðherra NATO-ríkjanna með utanríkisráðherra Úkraínu, en hann átti að fara fram á morgun. Ástæðan er stjórnmálaástandið í Úkraínu. Þetta þykir til merkis um versnandi samskipti Vesturlanda við Úkraínustjórn sem er mjög hliðholl Rússum. Heimildarmaður Reuters hjá NATO segir hafa verið ákveðið að bíða þess að ný og lögmæt ríkisstjórn tæki við völdum í landinu. Frestun fundarins séu skilaboð frá NATO-ríkjunum þess efnis að ekki sé litið á núverandi ríkisstjórn sem lögmæta stjórn landsins. Frá sjónarhóli Gryzlovs, forseta rússneska þingsins, er ljóst að einungis ein stjórn er lögmæt og getur viðhaldið heiðarleika í Úkraínu: stjórn undir forystu Viktors Janúkovítsj, sem er hliðhollur Rússum.
Erlent Fréttir Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Sjá meira