Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stakk mann með skærum Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir tvær líkmasárásir og frelsissviptingu í október í fyrra. Hann sótti annan mann í vinnuna og fór með hann nauðugan í bíl, dró hann á hárinu út úr bílnum, sparkaði ítrekað í höfuð hans og stakk hann með skærum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 8.12.2004 00:01
Samgöngur til Eyja í lamasessi Samgöngur til Vestmannaeyja eru í lamasessi og þær þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar segir Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins. Samgönguráðherra segir að niðurstöðu um hugsanlega hafnargerð í Bakkafjöru sé að vænta eftir tvö ár. 8.12.2004 00:01
Staða krónunnar óheppileg Sterk staða krónunnar er óheppileg fyrir þjóðarbúið þegar á heildina er litið að mati Samtaka atvinnulífsins. Launahækkanir opinberra starfsmanna eru langt umfram þróun á almennum vinnumarkaði og greiðsluafgangur ríkissjóðs er of lítill. 8.12.2004 00:01
Sigurinn vís í Úkraínu Sigurinn er vís að mati stjórnarandstöðunnar í Úkraínu eftir að þing landsins samþykkti lög sem tryggja að þjóðin geti valið sér forseta á ný. 8.12.2004 00:01
Kennt verði alla virka daga Menntamálaráðherra segir mikilvægt að kennt verði alla virka daga í grunnskólum landsins til að bæta fyrir nær átta vikna hlé sem varð á kennslu meðan á verkfalli grunnskólakennara stóð. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. 8.12.2004 00:01
Flugfélög sýna Íslandi áhuga Erlend flugfélög hafa verið að skoða möguleikann á að hefja áætlunarflug til Íslands að sögn Höskuldar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra Leifsstöðvar. Aðeins tvö flugfélög eru með áætlunarflug til og frá landinu: Icelandair og Iceland Express. 8.12.2004 00:01
Hætti að reykja og gekk Kínamúrinn Huldar Breiðfjörð ákvað að ganga Kínamúrinn allan vegna þess að hann hætti að reykja. Hann skrifaði bók um gönguförina og fólkið sem hann kynntist. Hann segist ekki enn vera búinn að átta sig á Kína. 8.12.2004 00:01
Beckham-hjónin í stórum hlutverkum David Beckham og Victoria spúsa hans eru án efa átrúnaðargoð en líkast til hafa þau aldrei verið nær guðsímyndinni en einmitt nú. Páfagarði mislíkar stórlega hlutverk þeirra hjóna í fæðingu Krists. 8.12.2004 00:01
Uppsafnaðar skuldir gamla skólans Stjórnendur Tækniháskóla Íslands segja bága fjárhagsstöðu skólans tilkomna vegna uppsafnaðra skulda gamla Tækniskólans sem fallið hafi á herðar Tækniháskólans þegar hann var stofnaður um mitt ár 2002. Í frumvarpi til laga um afnám Tækniháskólans segir að skólinn hafi verið rekinn með halla frá því að hann var stofnaður um mitt ár 2002. 8.12.2004 00:01
Miltisbrandur á Vatnsleysuströnd Þrjú hross hafa á undanförnum dögum drepist úr miltisbrandi á bænum Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd og fjórða hrossinu á bænum hefur verið lógað að því er segir í tilkynningu frá yfirdýralækni og sóttvarnalækni. Sýkinga í fólki sem hefur komist í snertingu við dýrin hefur ekki orðið vart. Ekki er vitað hvernig smitið barst í hrossin en það er í rannsókn. 8.12.2004 00:01
Fór á Vog eftir yfirheyrslur Ungi maðurinn, sem framdi rán í tveimur söluturnum í Vesturborginni með skömmu millibili í fyrrakvöld og var handtekinn með þýfið á sér, fór í vímuefnameðferð á Vog að yfirheyrslum loknum í gærkvöldi. Hann hafði einmitt útskrifað sig sjálfur þaðan í fyrrakvöld, skömmu áður en hann framdi ránin. 7.12.2004 00:01
3 féllu í árásum Palestínumanna Þrír ísraelskir hermenn féllu þegar palestínskir skæruliðar sprengdu sprengju nærri ísraelskri herstöð á Gasa-ströndinni í morgun. Talsmenn palestínskra öryggisyfirvalda segja félaga í Hamas-samtökunum hafa staðið fyrir árásinni. Ísraelsher brást við með því að senda árásarþyrlur á staðinn, og skutu þær á bækisstöðvar skæruliða í hefndarskyni. 7.12.2004 00:01
Eldur í háhýsi Mikill eldur braust út í 45 hæða háhýsi í Chicago í gærkvöldi. Eldurinn kviknaði á 29. hæð hússins og tókst að bjarga öllum íbúum hússins. Átján slösuðust þó. Síðast þegar fréttist börðust slökkviliðsmenn enn við eldinn, enda ekki hægt um vik að koma slöngum og öðrum slökkvibúnaði svo hátt upp. 7.12.2004 00:01
Lítrinn niður fyrir 100 krónur Verð á bensínlítranum er komið niður fyrir hundrað krónur lítrinn og þarf að leita aftur í ágústmánuð til að finna sambærilegt verð. Þessu marki var náð eftir að Atlantsolía og sjálfsafgreiðslustöðvar stóru olíufélaganna lækkuðu verðið um nokkrar krónur í gærkvöldi. 7.12.2004 00:01
Lítil samúð vegna föðurmissis Sextán ára stúlka, sem stundar nám við Kongsbakken framhaldskólann i Tromsö, mætti litlum skilningi kennara og skólastjóra skólans er faðir hennar lést á dögunum. Þegar stúlkan mætti ekki í skólann, daginn eftir andlátið, fékk hún skróp skráð á sig í kladdann. 7.12.2004 00:01
Karzai settur í forsetaembætti Hamid Karzai sór í dag embættiseið sem forseti Afganistans. Hann er fyrsti maðurinn sem hefur verið kjörinn til þessa embættis í lýðræðislegum kosningum. Karzai lofaði að koma á friði og umbylta efnahag landsins þannig að hann hætti að byggja á framleiðslu eiturlyfja. 7.12.2004 00:01
Lögreglumenn í lífshættu Kona á fertugsaldri stofnaði lífi og limum tveggja lögregluþjóna í hættu þegar hún ók tvívegis á bíl þeirra á fullri ferð í Reykjavík í gærkvöldi og stakk svo af. Báðir lögreglumennirnir meiddust og lögreglubíllinn, sem var nýr, sterkbyggður Volvo, varð óökufær eftir ósköpin. 7.12.2004 00:01
Blair styður Annan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur lýst stuðningi við Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Bandarísk þingnefnd hefur gagnrýnt Annan harðlega og krafist þess að hann segi af sér. 7.12.2004 00:01
Ótti Rússa ástæðulaus segir Powell Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að ótti Rússa við að Bandaríkjamenn séu að seilast til áhrifa í Úkraínu sé ástæðulaus. Powell sagði að Úkraínumenn eigi skilið heiðarlegar kosningar og að þeir þurfi ekki að velja á milli austurs og vesturs. 7.12.2004 00:01
Fjórðungur kvótans til Vestfjarða 3200 tonna byggðakvóta var úthlutað í gær. Rúmur fjórðungur alls byggðakvótans fer til Vestfjarða. Eins og oft áður var ný aðferð notuð við úthlutun byggðakvótans í ár. Sá háttur var hafður á að sveitarfélögin óskuðu eftir byggðakvóta og urðu bæði að uppfylla viss skilyrði og færa rök fyrir þörfinni. 7.12.2004 00:01
Litlar vangaveltur um breytingar Stjórnarandstaðan virðist lítið hafa velt fyrir sér hugsanlegum breytingum á stjórnarskránni en forsætisráðherra óskaði tilnefninga í stjórnarskrárnefnd í gær. Þingmaður Samfylkingar segir að tryggja verði, hér eftir sem hingað til, að hægt sé að bera undir þjóðina ákvarðanir Alþingis. 7.12.2004 00:01
Ökumaðurinn líklega fundinn Lögreglan í Keflavík telur sig vera búna að finna manninn sem ók niður konu í Sandgerði fyrir tæpri viku og stakk af. Konan var á leið heim til sín að loknum vinnudegi þegar ekið var á hana á Strandgötu. Hún slasaðist talsvert, var rænulítil þegar að var komið og var hún flutt á slysadeild Landspítalans og síðan lögð inn á spítalann. 7.12.2004 00:01
Síðasti öruggi skiladagur á morgun Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólakort til landa utan Evrópu er morgundagurinn, miðvikudagurinn 8. desember, samkvæmt tilkynningu Íslandspósts. Viku síðar, eða miðvikudaginn 15. september, þarf að skila síðustu kortunum sem eiga að fara til Evrópulanda. 7.12.2004 00:01
Menntun foreldra áhrif á námsgetu Menntun foreldra er meðal þeirra þátta sem hefur áhrif á námsgetu nemenda. Íslenskar stúlkur eru mun betri en piltar í stærðfræði samkvæmt alþjóðlegri könnun, ólíkt því sem þekkist annars staðar. 7.12.2004 00:01
Farþegum fjölgaði um rúm 20% Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um rúm 20% í nóvember miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 89 þúsund farþegum í fyrra í rúma 107 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 20% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar um tæp 25%. 7.12.2004 00:01
Smokkur í nöfnum Kóreumanna Heilbrigðisyfirvöld í Suður-Kóreu hafa hætt við að reyna að finna kóreskt orð yfir smokka. Kóreumenn hafa um áratuga skeið notað engilsaxneska orðið <em>condom</em> yfir smokka. Heilbrigðisnefnd sem berst gegn alnæmi fékk þá snjöllu hugmynd að finna kóreskt orð yfir þetta þarfaþing og lýsti eftir hugmyndum. 7.12.2004 00:01
200 milljónir verða til skiptanna Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn fær um 200 milljónir íslenskra króna í fjárveitingu á næsta ári. Þá mun stjórn sjóðsins leggja áherslu á að styrkja framleiðslu og dreifingu á hljóð- og myndverkum af miklum gæðum, ýta undir samstarf norrænna kvikmyndagerðarmanna og styrkja framleiðslu og dreifingu á gæðakvikmyndum fyrir börn, að því er segir í tilkynningu. 7.12.2004 00:01
Áskorun frá Þjóðverjum Þýska mannréttindastofnunin hefur sent Alþingi áskorun þess efnis að ekki verði hætt fjárstuðningi við Mannréttindaskrifstofu Íslands. Segir meðal annars að þýska mannréttindastofnunin hafi af því þungar áhyggjur að fjárskortur myndi hamla starfi mannréttindaskrifstofunnar. 7.12.2004 00:01
Barghouti íhugar að hætta við Marwan Barghouti, herskár leiðtogi úr röðum Palestínumanna og frambjóðandi í forsetakosningum í Palestínu, íhugar að hætta við framboð. Barghouti situr í fangelsi í Ísrael en hann var sakfelldur fyrir fimm morð. Hann er hins vegar mjög vinsæll meðal Palestínumanna, einkum yngri, herskárri Palestínumanna. 7.12.2004 00:01
Bandaríkin og Rússland deila Ágreiningur Bandaríkjanna og Rússlands kom í veg fyrir að niðurstaða fengist um kosningaeftirlit á fundi utanríkisráðherra Samtaka um öryggi og samvinnu í Evrópu. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir Vesturlönd leggja annan mælikvarða á kosningar í fyrrverandi Sovétlýðveldum en heima hjá sér. 7.12.2004 00:01
Norrænt sendiráð í Páfagarði? Ætlar sænska ríkisstjórnin að hafa frumkvæði að því að setja upp sendiráð með öðrum norrænum ríkjum í Páfagarði? Sænski þingmaðurinn Agne Hansson vildi fá svar við þessu í fyrirspurnartíma í sænska þinginu. Vegna sparnaðaraðgerða lögðu Svíar niður sendiráð sitt í Páfagarði á árinu 2001. 7.12.2004 00:01
Nafn piltsins sem lést Pilturinn sem lést í húsbrunanum á Sauðárkróki á laugardag hét Elvar Fannar Þorvaldsson og var 21 árs gamall. Hann var til heimilis í húsinu sem brann að Bárustíg 14. Elvar var ókvæntur og barnlaus. 7.12.2004 00:01
Dæmdur í 15 mánaða fangelsi Tvítugur karlmaður var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Tólf mánuðir eru skilorðsbundnir til þriggja ára. Málsatvik eru þau að árásarmaðurinn stakk annan mann fjórum sinnum með hnífi, í áflogum utan við skemmtistaðinn Broadway, svo af hlutust fjögur 2-8 sentímetra djúp sár. 7.12.2004 00:01
Kosningar í Írak ekki mögulegar Pútín Rússlandsforseti segist ekki getað ímyndað sér hvernig kosningar eiga að geta heppnast í Írak eða hvernig frjálsar kosningar eigi að fara fram í hersetnu landi. Hann sagði þetta á fundi með Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, í Moskvu fyrir stundu. 7.12.2004 00:01
Eldur í íbúð á Kleppsvegi Eldur kviknaði í íbúð á Kleppsvegi á fjórða tímanum. Eldurinn reyndist loga í feiti í potti og upp á innréttingu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og vinnur slökkviliðið nú að reykræstingu. Einn íbúi var fluttur á slysadeild. 7.12.2004 00:01
Þúsundasti hermaðurinn fallinn Þúsundasti bandaríski hermaðurinn er fallinn í átökum í Írak samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hersetuliðinu. Hann féll þegar skotárás var gerð á hersveit hans sem var í eftirlitsferð. Alls hafa hátt í þrettán hundruð hermenn týnt lífi í Írak, þar af dágóður hluti í slysum af ýmsu tagi. 7.12.2004 00:01
1420 hitaeininga skrímslisborgari Aðdáendur misgeðslegra skyndibita geta nú glaðst því bandaríska skyndibitakeðjan Hardee´s hefur kynnt nýjan borgara sem heitir hvorki meira né minna en „Monster Thickburger“, sem réttast væri að nefna „Skrímslisborgara“. Ástæða þessarar girnilegu nafngiftar er augljós: borgarinn inniheldur hundrað og sjö grömm af fitu og er heilar 1420 kalóríur. 7.12.2004 00:01
Fjölmenni við útför Sigurðar Útför Sigurðar Geirdal, bæjarstjóra í Kópavogi, var gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Fjölmenni var við útförina, þar á meðal Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. 7.12.2004 00:01
Ætlaði að drepa dreng úti á götu Maður undir áhrifum eiturlyfja hélt hnífi að hálsi níu ára drengs í fjórar klukkustundir í Bangkok, höfuðborg Taílands, í dag. Maðurinn, sem er fjörutíu og fimm ára gamall byggingaverkamaður, virtist skyndilega missa stjórn á sér, greip níu ára dreng sem var á leið heim úr skólanum og hélt stórum, hárbeittum hníf að hálsi hans. 7.12.2004 00:01
Láta rannsaka kosningarnar Demókrataflokkurinn hefur ákveðið að hefja rannsókn á því hvernig staðið var að framkvæmd bandarísku forsetakosninganna í Ohio, en niðurstaðan þar réði úrslitum um að repúblikaninn George W. Bush bar sigurorð af demókratanum John Kerry. 7.12.2004 00:01
Svartsýni um framtíð Írak Ástandið í Írak fer versnandi og óvíst hvort það batnar nokkuð í náinni framtíð. Þetta er mat fyrrum stöðvarstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA í skeyti sem hann sendi yfirmönnum sínum seint í síðasta mánuði, skömmu áður en hann lét af embætti. Þessu greindi dagblaðið The New York Times frá í gær. 7.12.2004 00:01
Ærðist og keyrði bræður niður Kona keyrði tvo bræður á táningsaldri niður og reyndi að keyra yfir þann þriðja eftir að golfbolti sem þeir voru að leika sér með á bílastæði verslunarmiðstöðvar í Flórída lenti á bíl hennar. 7.12.2004 00:01
Fann leyniskjöl á víðavangi Breskur vörubílstjóri stóð skyndilega uppi með allar upplýsingar um öryggisviðbúnað vegna komu Pervez Musharraf, forseta Pakistan, til London þegar hann fann möppu á götu í London. Dagblaðið Daily Mirror greindi frá þessu í gær eftir að maðurinn sem fann skjölin kom þeim til blaðsins. 7.12.2004 00:01
Vilja nýja rannsókn á Estoniaslysi Eistneskir stjórnmálamenn kröfðust þess að ný rannsókn yrði hafin á atburðunum sem leiddu til þess að ferjan Estonia sökk árið 1994. Kröfuna settu þeir fram eftir að upplýst var að ferjan hefði skömmu fyrir sjóferðina örlagaríku verið notuð til að flytja sovésk hergögn. 7.12.2004 00:01
Tilræðið var sjálfsmorðstilraun Tilræðið við Jacques Chirac Frakklandsforseta á þjóðhátíðardegi Frakka 2002 var líklega frekar tilraun til sjálfsmorðs en tilraun til að ráða forsetann af dögum. Þetta sagði lögreglumaðurinn Florence Adam á öðrum degi réttarhalda yfir Maxime Brunerie sem dró upp riffil og skaut að bílnum sem flutti forsetann. 7.12.2004 00:01
Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Mig langaði ekkert í afsökunarbeiðni frá honum“ Innlent