Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Börnin aftur í skólann Tugþúsundir barna mæta aftur til skóla á morgun að loknu kennaraverkfalli. Skóli hefst á morgun samkvæmt stundarskrá. Atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara á að vera lokið 8. nóvember. Fræðsluráð Reykjavíkur mælist til þess að þriggja daga vetrarfrí sem átti að hefjast á miðvikudag í flestum grunnskólum Reykjavíkur verði fellt niður. 31.10.2004 00:01
Níu milljarða hækkun Pétur Blöndal, alþingismaður, hafnar því að ríkið sé stikkfrí í kennaradeilunni og bendir á að ef kennarar samþykkja miðlunartillögu ríkissáttasemjara hækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins um níu milljarða. 31.10.2004 00:01
Vill ekki tjá sig um refsingar Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir að samráð olíufélaganna verði ekki liðið en hún vill ekki tjá sig um hvernig refsa beri fyrir samráðið. Rannsókn samkeppnisyfirvalda á meintu samráði olíufélaganna hefur staðið lengi, enda skýrslan sem skilað var löng og ítarleg. 31.10.2004 00:01
Þvinguðu fram hækkanir í Noregi Íslensku olíufélögin þrjú þvinguðu norska olíufélagið Statoil til að hækka olíuverð til íslenskra skipa í Færeyjum svo þau hættu að kaupa olíu þar. Friðrik J. Argrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir ljóst að útgerðafélög hafi tapað miklum fjármunum á samráði olíufélaganna og að nauðsynlegt sé fyrir útgerðarfélögin að kanna bótarétt sinn. 31.10.2004 00:01
Neytendur borga brúsann Formaður Neytendasamtakanna segir að á endanum verði það neytendur sem borgi brúsann vegna samráðs olíufélaganna. Nauðsynlegt sé að láta reyna á bótarétt neytenda. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna segist hryggur yfir því að lesa skýrsluna, hvað brotaviljinn hafi verið einbeittur og hvað brotin hafa staðið lengi. 31.10.2004 00:01
Myndband bin Ladens tvíeggjað sverð Hér er aðalmálið nýja myndbandið frá Usama bin Laden. Á Fox news, sem heldur málstað Bush á lofti, er því nánast haldið fram blákalt að bin Laden hafi verið að hvetja Bandaríkjamenn til að kjósa Kerry......... 31.10.2004 00:01
Eldisþorskur helmingur þorsks Tilraunaeldi á þorski er nú í gangi á fimmtán stöðum víða um land. Á Tálknafirði sjá menn fyrir sér að eftir fimmtán ár verði eldisþorskur helmingur þess þorskafla sem þar verði unnið úr. Við erum á leið að eldiskvíum í Tálknafirði til að fylgjast með því þegar þorskur er fóðraður. 31.10.2004 00:01
Afganistan er stríðssvæði Yfirmaður upplýsingasviðs alþjóða rauða krossins segir samtökin líta á Kabúl og Afhanistan sem stríðssvæði og að íbúar þar geri engan greinarmun á friðargæsluliðum og hermönnum. Yves Daccord, yfirmaður upplýsingasviðs alþjóða rauða krossins, segir Afganistan allt stríðssvæði. Þar sé hættulegt að vera og starfsmenn rauða krossins fari mjög varlega. 31.10.2004 00:01
Öryggið minnkar Öryggisaðstæður í Kabúl í Afganistan hafa versnað til mikilla muna síðustu vikurnar og útlendingar í borginni eru slegnir. Mannræningjar sem halda þremur gíslum krefjast þess að allar erlendar hersveitir hverfi á brott. Að öðrum kosti verði gíslarnir myrtir. 31.10.2004 00:01
Vill afsláttinn burt Pétur Blöndal alþingismaður gagnrýnir þá ákvörðun fjármálaráðherra að hreyfa ekki við sjómannaafslættinum meðan núverandi samningar sjómanna og útvegsmanna eru í gildi. Hann vill afnema afsláttinn strax. 31.10.2004 00:01
Flytja ferskan fisk með flugi Fiskverkendur á Vestfjörðum flytja nú fiskinn úr landi í stórauknum mæli ferskan með flugi frá Keflavík þótt það kosti akstur yfir fjölda fjallvega og ferjusiglingu yfir Breiðafjörð. 31.10.2004 00:01
Vill halda afslættinum "Þetta er kjarasamningsatriði og við það verður að standa," segir Guðmundur Halllvarðsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. 31.10.2004 00:01
Vill afnema sjómannaafsláttinn Ég hefði viljað sjá sjómannaafsláttinn felldan niður af þeirri einföldu ástæðu að ég er þeirrar skoðunar að allir eigi að greiða jafn hátt skatthlutfall, burt séð frá þeim störfum sem menn vinna" segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. 31.10.2004 00:01
Mógúll mætir á umferðarþing Max Mosley, forseti alþjóðasambands akstursfélaga, verður í hópi ræðumanna á Umferðarþingi sem haldið verður undir lok mánaðarins. Mosley hefur gengt starfinu í rúman áratug en var áður ökuþór í Formúlu 2 kappakstrinum og rak síðar eigið keppnislið í Formúlu 1. 31.10.2004 00:01
Anna Pálína Árnadóttir látin Anna Pálína Árnadóttir söngkona lést á heimili sínu að morgni laugardagsins 30. október, 41 árs að aldri. Anna Pálína háði æðrulausa baráttu við krabbamein í fimm ár. Hún flutti fyrirlestra um lífið með sjúkdómnum og fyrr á þessu ári kom út eftir hana bókin Ótuktin um sama efni. 31.10.2004 00:01
Skattaafsláttur forsenda samninga Sérstökum skattaafslætti sjómanna var komið á fyrir hálfri öld til að laða fleiri Íslendinga á sjóinn. Loforð fjármálaráðherra nú gengur gegn ársgömlu frumvarpi hans um niðurfellingu afsláttarins. </font /></b /> 31.10.2004 00:01
RÚV hirti bíl af hágrátandi börnum Auður Hrafnsdóttir og Eggert Sigurbergsson eru í áfalli eftir að hafa ríkisútvarpið tók af þeim fjölskyldubílinn vegna skuldar á afnotagjöldum upp á 26 þúsund krónur. Börn þeirra hafi hágrátið þegar kranabíll og lögreglubíll fjarlægði bílinn þar sem hann stóð fyrir framan hús fjölskyldunnar þrátt fyrir að þau hafi verið búin að semja um greiðslu. 31.10.2004 00:01
Börn handtekin í dópbæli í Vogunum Lögreglan í Reykjavík lagði hald á meint þýfi og fíkniefni í húsleit í kjallaraíbúð á Langholtsvegi um helgina. Drengur fæddur árið 1987 er skráður fyrir íbúðinni. Foreldrar hans búa erlendis. Nágrannar segja stöðugan straum af ungum krökkum hafa aukist í verkfallinu. Lögreglan hefur haft afskipti að stelpum allt niður í þrettán ára í íbúðinni. 31.10.2004 00:01
Eiginmaður svindlaði á ráðuneytinu Olíufélögin beittu dómsmálaráðuneytið ólögmætu samráði segir Samkeppnisstofnun. Sólveig Pétursdóttir var dómsmálaráðherra á þeim tíma. Kristinn Björnsson, eiginmaður Sólveigar og fyrrum forstjóri Skeljungs, tók þátt í brotunum samkvæmt Samkeppnisstofnun. Sólveig segist ekki hafa grunað eiginmann sinn um græsku. Hún viti ekkert um "meint" samráð olíufélaganna. 31.10.2004 00:01
Bílbeltin björguðu Tveir bílar ultu, svo að segja á sömu mínútunni, í umdæmi lögreglunnar á Hvolfsvelli um sjö leytið í gær. 31.10.2004 00:01
Júshtsjenko fékk flest atkvæði Stjórnarandstæðingurinn Viktor Júshtsjenko hlaut flest atkvæði allra frambjóðenda í úkraínsku forsetakosningunum samkvæmt útgönguspám. Hann náði þó ekki helmingsfylgi og því þarf að kjósa aftur á milli tveggja efstu. 31.10.2004 00:01
Arafat á batavegi Jasser Arafat, forseti heimastjórnar Palestínumanna, er á batavegi að sögn talsmanns hans en ekkert hefur þó verið gefið út um hvað það var sem hrjáði forsetann að öðru leyti en því að staðhæft er að hann er ekki með hvítblæði. Í gær hringdi hann í samstarfsmenn sína í Palestínu, las skeyti sem þjóðarleiðtogar sendu honum og mataðist. 31.10.2004 00:01
Íranar herða baráttuna Írönsk stjórnvöld verða að hefja auðgun úraníums á nýjan leik samkvæmt þingsályktunartillögu sem þingmenn á íranska þinginu samþykktu einróma. Auðgað úraníum má nota til framleiðslu kjarnorkuvopna en Íranar segjast aðeins ætla að nota það til friðsamlegra nota. 31.10.2004 00:01
Stjórnin á hálum ís Spænska stjórnin kann að brjóta gegn stjórnarskrá landsins með því að bera stjórnarskrá Evrópusambandsins undir þjóðaratkvæði án þess að athuga fyrst hvort samþykkt hennar samræmist spænsku stjórnarskránni. Þannig hljómar viðvörun ráðgjafarnefndar sem hvetur stjórnvöld til að kanna stöðuna áður en lengra er haldið. 31.10.2004 00:01
Mikilvægustu kosningar ævinnar Þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum álíta forsetakosningarnar á morgun þær mikilvægustu sem þeir hafa tekið þátt í á ævinni. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir fréttastofuna ABC. 31.10.2004 00:01
Hundrað þúsund Írakar látnir Um hundrað þúsund Írakar hafa látist af völdum innrásarinnar í Írak og eftirleiks hennar samkvæmt rannsókn vísindamanna sem læknaritið Lancet greinir frá. 31.10.2004 00:01
Óánægja kraumar í kennurum "Það er mikill hiti í okkur og kraumandi óánægja," segir kennari í Rimaskóla, sem segist hiklaust ætla að segja upp starfi sínu í vor verði þessi miðlunartillaga samþykkt. 31.10.2004 00:01
Hlýnun jarðar eykst mikið Loftslagsbreytingar eru að mestu af völdum manna samkvæmt nýrri rannsókn sem 300 vísindamenn frá átta ríkjum tóku þátt í. Frá þessu greindi bandaríska dagblaðið The New York Times sem komst yfir skýrsluna sem átti ekki að birta fyrr en í næstu viku, að sögn vegna þess að bandarísk stjórnvöld vildu ekki að hún birtist fyrr en eftir kosningar. 31.10.2004 00:01
Engin laun til kennara Þótt kennarar í grunnskólum, sem verið hafa í verkfalli, mæti til vinnu sinnar þessa viku fá þeir engin laun útborguð um þessi mánaðamót. 31.10.2004 00:01
Alfreð vill enn Þórólf Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarmanna í borgarstjórn, segir fréttir um afskipti Þórólfs Árnasonar borgarstjóra af samráði olíufélaganna engu breyta í mati sínu á því að Þórólfur eigi að taka að sér að verða pólitískur leiðtogi R-listans í næstu sveitarstjórnarkosningum. 31.10.2004 00:01
Óvíst hvernig bæta á skaðann "Við vitum ekkert hvernig eða hvort á að bæta börnum upp þennan tíma sem fallið hefur úr," segir Hanna Hjartardóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands. 31.10.2004 00:01
Mikilvægustu kosningar ævinnar Þrír af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum álíta forsetakosningarnar á morgun þær mikilvægustu sem þeir hafa tekið þátt í á ævinni. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir fréttastofuna ABC. 31.10.2004 00:01
Gæti vart verið jafnara Fjórar kannanir á fylgi forsetaefnanna George W. Bush og John Kerry sem birtar voru í gær sýna þá hnífjafna, þar af þrjár sem allar mæla þá báða með 48 prósenta fylgi. Það er því ljóst að það stefnir í einhverjar mest spennandi forsetakosningar í sögu Bandaríkjanna enda gæti staðan vart verið jafnari. 31.10.2004 00:01
Annar samningur fyrir félagsdómi Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir Sólbakssamningana sem liggja nú sem gögn fyrir félagsdómi vera allt aðra en þá sem styrr stóð um í september. 31.10.2004 00:01
Viljum heim til fjölskyldna okkar "Við viljum öll fara heim til fjölskyldna okkar," sagði Angelito Nayan, sendimaður Filippseyja í Afganistan, í myndbandi sem afganskir gíslatökumenn sendu til fjölmiðla í gær. Nayan er einn þriggja starfsmanna Sameinuðu þjóðanna sem gíslatökumenn hnepptu í gíslingu. Hinir eru Annetta Flanigan frá Norður-Írlandi og Shqipe Habibi frá Kosovo. 31.10.2004 00:01
Segja Shell vera óvin fólksins Olíurisinn Royal Dutch/Shell er óvinur nígerískrar alþýðu sögðu forystumenn verkalýðsfélaga þegar þeir boðuðu allsherjarverkfall um miðjan mánuðinn. Þeir sögðu að markmiðið nú væri að stöðva olíuútflutning. 31.10.2004 00:01
Dýrasta kosningabarátta sögunnar Stóru flokkarnir hafa slegið öll fyrri met í fjárútlátum í aðdraganda kosninganna sem fara fram á morgun. Þeir hafa þegar varið meira en fjörutíu milljörðum króna í auglýsingar einar sér og er það þrefalt hærri fjárhæð en flokkarnir notuðu til að kaupa auglýsingar í forsetakosningunum fyrir fjórum árum. 31.10.2004 00:01
Íslendingur kosinn forseti Andrés Jónsson, formaður ungra jafnaðarmanna, var í gær kosinn forseti Norðurlandaráðs æskunnar á þingi þess í Stokkhólmi eftir all snarpa kosningabaráttu. "Ég vildi upphaflega stuðla að því að fulltrúi frá Vestur-Norðurlöndum kæmist í stjórn, en svo fór að það var skorað á mig að gefa kost á mér til formennsku." 31.10.2004 00:01
Ekki ákveðið að afnema afsláttinn Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir að lýsa yfir því að sjómannaafsláttur verði til ársins 2008 í tengslum við kjarasamninga sjómanna. Hann segir ekki hægt að bera þetta saman við afskiptaleysi ríkisins af kennaradeilunni. 31.10.2004 00:01
Ísland í hlutverki áheyrnarfulltrú Norðurlandaþjóðirnar í Evrópusambandinu og Eystrasaltsríkin funduðu sérstaklega í tengslum við Norðurlandaráðsþingið í Stokkhólmi. "Kysum að þetta væri ekki svona," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Ísland lýkur forystu í Norðurlandasamstarfi á þinginu sem hefst í dag. 31.10.2004 00:01
Samningur í dag Tímamótasamningur verður undirritaður hjá ríkissáttasemjara í dag þegar sjómenn og útvegsmenn skrifa undir nýjan kjarasamning. Þetta er í fyrsta skipti í tíu ár sem þessir aðilar komast að samkomulagi um kaup og kjör, án þess að grípa verði til lagasetningar stjórnvalda. 30.10.2004 00:01
Rifist um Osama? Myndband með Osama bin Laden, þar sem hann hótar frekari hryðjuverkaárásum, hefur valdið uppnámi í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. John Kerry sakaði George Bush um að eiga sök á því að bin Laden gengur enn laus, þar sem hann hafi falið afgönskum hermönnum að hafa uppi á honum. 30.10.2004 00:01
Náðust eftir stuld á skjávörpum Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í raftækjaverslun í austurborg Reykjavíkur í nótt, náðust á flótta eftir að bíll sem þeir óku hafnaði í húsagarði í Fossvogi. Til þeirra sást á innbrotsstað en þar tókst þeim að stela sjö skjávörpum áður en þeir flúðu af vettvangi. Lögreglan hélt í humátt á eftir flóttabílnum en eftirförinni lauk eftir skamma stund. 30.10.2004 00:01
Sjö handteknir fyrir fíkniefnahald Lögreglan í Reykjavík gerði áhlaup í gærkvöldi inn í hús við Langholtsveg sem grunur lék á að væri það sem kallað er fíkniefnagreni. Sá grunur reyndist á rökum reistur því í húsinu fundust bæði fíkniefni og nokkuð af hlutum sem taldir eru þýfi. Sjö manns voru handteknir í húsinu og verða þeir yfirheyrðir í dag. 30.10.2004 00:01
Danir gegn veggjakroti Dönsku ríkisjarnbrautirnar eru að opna nýja þjónustumiðstöð, meðal annars til þess að reyna að hafa við veggjakroturum, sem virðast hafa sérstakt dálæti á járnbrautarvögnum. Að meðaltali ná starfsmenn járnbrautanna að hreinsa 455 vagna af veggjakroti á mánuði, en það dugar ekki til. 30.10.2004 00:01