Erlent

Rifist um Osama?

Myndband með Osama bin Laden, þar sem hann hótar frekari hryðjuverkaárásum, hefur valdið uppnámi í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. John Kerry sakaði George Bush um að eiga sök á því að bin Laden gengur enn laus, þar sem hann hafi falið afgönskum hermönnum að hafa uppi á honum. Bush svaraði því til að þetta væri hinn ómerkilegasti málflutningur, og til skammar að nota helsta óvin Bandaríkjanna til þess að koma höggi á forseta landsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×