Erlent

Danir gegn veggjakroti

Dönsku ríkisjarnbrautirnar eru að opna nýja þjónustumiðstöð, meðal annars til þess að reyna að hafa við veggjakroturum, sem virðast hafa sérstakt dálæti á járnbrautarvögnum. Að meðaltali ná starfsmenn járnbrautanna að hreinsa 455 vagna af veggjakroti á mánuði, en það dugar ekki til. Því hefur verið ákveðið að opna nýja þjónustumiðstöð, til þess að bera krotarana ofurliði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×