Innlent

Eldisþorskur helmingur þorsks

Tilraunaeldi á þorski er nú í gangi á fimmtán stöðum víða um land. Á Tálknafirði sjá menn fyrir sér að eftir fimmtán ár verði eldisþorskur helmingur þess þorskafla sem þar verði unnið úr. Við erum á leið að eldiskvíum í Tálknafirði til að fylgjast með því þegar þorskur er fóðraður. Það á að gefa honum loðnu og hún er færð þorskinum samanfrosin í stórum stykkjum til þess að stærstu og gráðugustu þorskarnir klári ekki alla loðnuna áður en hinir komast að. Þannig er reynt að tryggja allir fiskarnir fái svipað að éta og vaxi álíka hratt því ef þeir verða misstórir fara stærri þorskar að éta þá minni. Þorskurinn er nefnilega sagður eitthvert grimmasta rándýr sjávarins og hamagangurinn í eldiskvínni þegar hann ræðst á loðnuna segir sína sögu. Fyrirtækin Þórsberg á Tálknafirði og Oddi á Patreksfirði standa saman að þorskeldinu í nafni fyrirtækisins Þórodds. Þessi þorskur er í svokölluðu áframeldi sem þýðir að hann er veiddur í snurvoð úti á hafi sem smáþorskur en síðan fóðraður áfram í kvíum upp í sláturstærð. Jón Örn Pálsson, sjávarútvegsfræðingur segist telja að aðeins verði haldið áfram með áframeldi í örfá ár. Framtíðin liggi í kynbættum seyðum. Í öðrum kvíum er verið að fóðra þorskseiði en þau fá þurrfóður í kögglum að éta. Heita vatnið í Tálknafirði kemur sér vel í uppeldi seiðanna. Jón Örn segir klárlega um framtíðaratvinnugrein að ræða á þessu svæði. Um fjögur þúsund tonn af þorski berast nú á land á Tálknafirði sem veidd eru í hafi. Tálknfirðingar vonast til að þegar fram líða stundir takist þeim með þorskeldi að tvöfalda þetta magn sem kallar á fjölda starfa. Jón Örn segist telja að á milli 10-15 manns muni vinna beint við þetta og 40-50 allt í allt í vinnslunni. Þetta sé því ein af forsendunum fyrir byggð á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×