Þvinguðu fram hækkanir í Noregi 31. október 2004 00:01
Íslensku olíufélögin þrjú þvinguðu norska olíufélagið Statoil til að hækka olíuverð til íslenskra skipa í Færeyjum svo þau hættu að kaupa olíu þar. Friðrik J. Argrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir ljóst að útgerðafélög hafi tapað miklum fjármunum á samráði olíufélaganna og að nauðsynlegt sé fyrir útgerðarfélögin að kanna bótarétt sinn. Sjávarútvegsfyrirtæki eru líklega stærsti einstaki viðskiptavinahópur olíufélaganna og hefur landssamband þeirra um árabil gangrýnt verðlagningu á eldsneyti og talið óeðlilega háa miðað við verð í nágrannalöndunum, að því er fram kemur í skýrslu Samkeppnisstofnunar. Útgerðin hefur því ítrekað reynt að knýja fram lækkun. Friðrik segist sleginn yfir skýrslunni, enda viðist margir mætir menn hafa misst fótana í þessu máli. Næsta skref hjá þeim sé að reyna að ná trausti viðskiptavina sinna á nýjan leik. Friðrik segir ómögulegt að segja hversu miklu útgerðin hefur tapað á samráði olíufélaganna, en ljóst sé að það sé mikið fé. Meðal þess sem útgerðin hefur reynt til að lækka eldsneytiskostnað sinn er að láta skip sín taka olíu erlendis. Í skýrslunni kemur fram að útvegsmenn hafi núið olíufélögunum því um nasir að olíuverð á Íslandi væri mun hærra en í Færeyjum og sýni gögn málsins að þeirri gagnrýni hafi verið illa tekið. Viðbrögð olíufélaganna voru að þrýsta á um hærra eldsneytisverð fyrir íslensk skip í Færeyjum. Aðgerðir íslensku olíufélaganna beindust að Statoil og Shell, sem bæði stunda olíusölu í Færeyjum og fram kemur að á fundi félaganna þriggja með fulltrúa Statoil í október 2001, hafi íslensku olíufélögin hótað Statoil, sem á í viðskipti við þau, að hætta viðskiptum við félagið ef það beitti sér ekki fyrir verðhækkun á eldsneyti til íslenskra fiskiskipa í Færeyjum. Statoil féllst á þetta og Skeljungur fylgdist með þeirri framkvæmd. Friðrik segir þetta vera hlut sem engann hefði grunað, en hann viti ekki hvort íslensku skipin hafi greitt hærra verð en önnur skip eftir hótanirnar. Skýrslan sé viðamikil og það þurfi að fara í gegnum hana. Friðrik segist sannfærður um að viðskiptahættir sem þessir heyri sögunni til, en að útgerðarfélögin hljóti að kanna bótarétt sinn. Þetta séu mál sem menn hljóti að skoða, enda verði menn að sækja sínar skaðabætur ef þeir eigi þær.
Fréttir Innlent Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Sjá meira