Hótanir Norðmanna hafa áhrif 13. október 2005 14:31
Íslensku skipin fimm sem voru að síldveiðum við Svalbarða héldu út af norska svæðinu í gærkvöldi. Páll Guðmundsson, útgerðarstjóri Hugins í Vestmannaeyjum, segir að hótanir Normannanna um að setja skipin á svartan lista hafi haft sitt að segja. Á miðnætti tóku í gildi reglur norskra stjórnvalda um einhliða kvótaúthlutun á svæðinu, sem Norðmenn segja nauðsynlegar til að vernda síldarstofninn. Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar sagði Sven Ludvigssen, sjávarútvegsráðherra Norðmanna, að hann vænti þess að allir myndu hlýta ákvörðun norskra stjórnvalda og að engin skip yrðu á svæðinu eftir miðnætti. Að öðrum kosti myndi strandgæslan grípa til aðgerða, og skipin færu á svartan lista. Hingað til hafa Íslendingar ekki viðurkennt rétt Norðmanna til að úthluta kvóta á svæðinu einhliða. Fyrir stuttu lýsti Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ því yfir að Íslendingar myndu fara í hart við Norðmenn ef þeir héldu kröfum sínum til streitu. Nú virðast íslensku skipin hins vegar hafa látið undan kröfum Normannanna. Páll Guðmundsson, útgerðarstjóri Hugins í Vestmannaeyjum, sem gerir út eitt skipanna fimm sem verið hafa á Svalbarða, segir erfitt annað en að taka mark á hótunum norskra stjórnvalda. Guðni Ölversson, fréttaritari Bylgjunnar og Stöðvar 2, í Noregi segir engan vafa leika á því að norska strandgæslan muni hjóla í íslensk skip, ef þau halda áfram að veiða við Svalbarða. Þá hafi verið fjallað um málið í norskum fjölmiðlum. Sé þar lýst yfir ánægju með að Íslendingar hafi siglt út úr verndarsvæði Norðmanna, og ekki hafi komið til átaka. Þá segir hann að Norðmenn líti það alvarlegum augum að fá að vera verndarar Norður Atlantshafsins. Guðni segist fastlega gera ráð fyrir að norsku varðskipin muni hafa afskipti af íslenskum skipum á Svalbarða ef miðað er við fyrri reynslu úr Barentshafinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Innlent Fleiri fréttir Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Sjá meira