Fleiri fréttir

Árekstur á Gjábakkavegi

Árekstur varð á milli rútu og jepplings um klukkan þrjú í dag á Gjábakkavegi. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðum áttum. Selfosslögregla segir tvo af fjórum farþegum jeppans hafa meiðst lítillega, en aðra ekki. Jeppinn er mikið skemmdur en rútan ók af vettvangi full farþegum.

Froskahátíð í Oregon

Árleg froskahátíð var haldin í fjórða sinn í Oregon í Bandaríkjunum í gær. Meðal fastra liða á hátíðinni er froskahlaup, þar sem menn og froskar hoppa saman. Þeir sem ekki áttu frosk gátu leigt þá en markaðsverð á froskaleigunni í Oregon er rúmar 200 krónur.

Blómaganga í Kólumbíu

Hundruð manna tóku þátt í árlegri blómagöngu í Kólumbíu í gær. Gangan er hluti blómahátíðar sem stendur yfir í eina viku. Mann fram af manni hafa Kólumbíumenn útbúið miklar blómaskreytingar í tengslum við hátíðina.

Listasumar í Súðavík

Listasumri í Súðavík var slitið í dag. Síðustu fjóra daga hafa þjóðþekktir og heimsþekktir listamenn tekið þátt í fjölskylduskemmtun með heimamönnum. Listasumarið var sett á fimmtudagskvöld og hefur staðið yfir alla helgina.

Litrík indversk list

Þrír af þekktustu myndlistamönnum Indlands eru staddir hér á landi. Óvenjumikil litagleði ríkir í verkum þeirra sem þeir skýra með því að landið sjálft sé fullt af litum og andstæðum, bæði í landslagi og menningu.

Margir gripir fundist að Hólum

Um tíu þúsund gripir hafa fundist við fornleifauppgröft við Hóla í Hjaltadal í sumar. Sjötíu fornleifafræðingar víða að úr heiminum sóttu ráðstefnu um Hólarannsóknina um helgina. Þetta er þriðja sumar Hólarannsóknar og hefur uppgröfturinn fætt af sér ýmsar merkar niðurstöður.

Par rændi barni í Ástralíu

Ástralskt par rændi þriggja vikna barni frá móður þess, með því að úða piparúða í augu hennar, fyrir utan verslunarmiðstöð í Melbourne í gærkvöldi. Móðirin grátbiðu ræningjana um að skila barninu.

Vill jákvæða kosningabaráttu

Helga Árnadóttir, sem býður sig fram til formanns Heimdallar, segir mikilvægt að kosningabaráttan verði háð á jákvæðum nótum, en mótframbjóðandi hennar fór hörðum orðum um félagið í gær og segir það fámenna valdaklíku.

Fjallað um hlaup í bók Ómars

Í bók Ómars Ragnarssonar, Kárahnjúkar með og á móti, er fjallað um svokölluð hamfarahlaup á svæðinu en þeim fylgja miklir vatnavextir í Jöklu. Skiptar skoðanir eru á því hvort stíflurnar á svæðinu standist slík áhlaup.

Uppreisnarmenn leggja niður vopn

Yfir 200 uppreisnarmenn í Darfúr-héraði í Afríkuríkinu Súdan lögðu niður vopn í dag. Liðsmenn Tora Bora sveitarinnar afhentu yfirvöldum vopn sín við landamærin við Tsjad, en þeir hafa barist ásamt öðrum skæruliðahópum gegn stjórnvöldum í Súdan.

Síðasta mannvirkið vígt

Miðasala á Ólympíuleikana í Grikklandi, sem hefjast á föstudaginn, hefur tekið við sér eftir rólega byrjun. Eitt af síðustu mannvirkjunum var vígt í gær, þriggja kílómetra löng brú sem tengir suðurhluta landsins við meginlandið.

Ráðherra ekki heyrt af óánægju

Heilbrigðisráðherra segist ekki hafa heyrt af óánægju innan SÁÁ með þann þjónustusamning sem er í gildi við ríkið. Stjórn samtakanna hefur gagnrýnt heilbrigðisyfirvöld fyrir að taka engan þátt í kostnaði við meðferð ungra sprautufíkla.

Vilja öll Norðurlönd í ESB

Leiðtogar norrænna jafnaðarmanna funduðu í Viðey um helgina. Þeir stefna að því að öll ríki Norðurlandanna verði hluti af Evrópusambandinu og að þróaðar verði hugmyndir um sérstakt fiskveiðistjórnarsvæði í Norður-Atlantshafi, ekki síst vegna hagsmuna Íslendinga.

Hörð átök í Najaf

Bandarískar herþyrlur skutu á sjíta múslima í íröksku borginni Najaf í dag, nokkrum klukkustundum eftir að írakski forsætisráðherrann hafði hvatt uppreisnarmenn til að leggja niður vopn. Hann fór óvænt í stutta heimsókn til borgarinnar í dag, en þar hafa geisað hörð átök í fjóra daga.

Uppreisnarmenn rændu Írana

Uppreisnarmenn í Írak segjast hafa rænt írönskum stjórnarerindreka. Írönsk yfirvöld hafa staðfest að starfsmanns þeirra sé saknað en hafa ekki gefið upp hvort þau telja að honum hafi verið rænt. Maðurinn hvarf á miðvikudag í síðustu viku þegar hann var á leið til Karbala frá Bagdad.

Dreifa lyfjum vegna geislunar

Ísraelsk yfirvöld dreifa lyfjum til varnar veikindum vegna geislavirkni í byggðarlögum nálægt kjarnaofnum sínum. Þetta er gert í því skyni ef ofnarnir munu leka. Lyfin hafa hingað til verið í vörslu yfirvalda en ákveðið var að þeir sem búa næst ofnunum eigi að hafa þau við höndina til að stytta viðbragðstímann ef eitthvað kemur upp á.

Davíð líklega útskrifaður á morgun

Búist er við að forsætisráðherra verði útskrifaður af sjúkrahúsi á morgun. Hann þarf ekki að undirgangast geisla- eða lyfjameðferð vegna þeirra illkynja æxla sem fjarlægð voru. Líklegast er talið að hann taki sæti í ríkisstjórn á ný.

Límdi sig við kærustuna

Þýskur maður sem stendur til að framselja frá Spáni til Þýskalands límdi sig við kærustu sína til að fresta fyrirtöku málsins og vekja athygli á því.

Stunginn í Hafnarstræti

19 ára piltur var stunginn með hnífi í Hafnarstræti í Reykjavík um klukkan fimm í morgun. Hann var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. Meiðsli hans voru ekki talin það alvarleg að ástæða þætti til að leggja hann inn.

Opinber heimsókn forsætisráðherra

Opinber heimsókn forsætisráðherra Finnlands, Matti Vanhanen, hingað til lands hefst í dag. Hún hefst með hádegisverði í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu en eftir hádegi verður farið með Vanhanen og eiginkonu hans í skoðunarferð til Nesjavalla og Þingvalla.

Vilja afnema 24. ára reglu

Héraðsformenn danska Sósíaldemókrataflokksins vilja afnema eða milda svokallaða tuttugu og fjögurra ára reglu í útlendingalögum. Reglan er sams konar og sú sem rædd var hér á landi þegar til umræðu var beyting á útlendingalögum á Alþingi.

Hryðjuverkamenn gefa út geisladisk

Hryðjuverkasamtök undir stjórn Jórdanans al-Zarqawi, hafa gefið út margmiðlunardisk, þar sem múslimar eru hvattir til vopna í baráttunni gegn krossförum í Írak, eins og það er orðað. Á tölvugeisladiskinum, sem er 45 mínútur að lengd, er einnig hótað að drepa forsætisráðherra íröksku bráðabirgðastjórnarinnar.

Óttast fjölgun kúariðu í mönnum

Breskir vísindamenn óttast að kúariða í mönnum, eða Kreuzfeld Jakobs veikin, breiðist út í mönnum á næstunni með áður óþekktum hraða. Nýjar rannsóknir sýna að sjúkdómurinn getur smitast í gegnum blóðgjafir og einnig hefur komið í ljós að mun fleiri genategundir eru móttækilegar fyrir sjúkdómnum en áður var talið.

Myndband með aftöku birt

Myndband af því þegar bandarískur gísl var hálshöggvinn af mannræningjum í Írak, var birt í morgun, á vefsíðu samtaka tengdum al-Qaeda. Á myndbandinu segir ungur maður að hann heiti Benjamin Ford og sé frá San Fransisco. Hann segir að verði bandarískir hermenn ekki kallaðar frá Írak verði þeir allir aflífaðir á þennan hátt.

Rændir af mönnum í löggubúningi

Tveir mexíkóskir myndatökumenn segja að þrír menn hafi rænt sig í Aþenu í Grikklandi í gærkvöldi, og að ræningjarnir hafi dulbúið sig sem lögreglumenn. Myndatökumennirnir voru stöðvaðir af þremur mönnum sem töluðu spænsku og báðu um skilríki.

Eldur í hlöðu í Hólmatungu

Eldur kom upp í hlöðu í Hólmatungu í Jökulsárhlíð laust fyrir klukkan átta í morgun. Slökkvilið Vopnafjarðar og Egilsstaða voru kvödd á staðinn ásamt björgunarsveitarmönnum. Eldurinn kom upp í ópökkuðum heyrúllum í hlöðunni og gekk afar erfiðlega að slökkva eldinn að sögn Egilsstaðalögreglu.

Gert að loka al-Jazeera í Bagdad

Írakska bráðabirgðastjórnin hefur skipað sjónvarpsstöðinni al-Jazeera að loka útibúi sínu í Bagdad í mánuð. Innanríkisráðuneytið greindi frá þessu í morgun og segir þetta gert til að koma í veg fyrir að arabíska sjónvarpsstöðin sýni myndir af gíslatökum, sem sé hvetjandi fyrir mannræningja. Höfuðstöðvar al-Jazeera eru í Qatar.

Gay Pride gangan í dag

Búist er við um 20 þúsund manns í miðbæ Reykjavíkur í dag þegar gleðiganga Hinsegin daga fer niður Laugaveginn. Hinsegin dagar, eða Gay Pride, eru haldnir hátíðlegir víða um heim um þetta leiti árs. Hápunkturinn hér á landi er Gleðigangan niður Laugaveg,

SÁÁ segir ástandið óviðundandi

Heilbrigðisyfirvöld taka engan þátt í kostnaði við meðferð ungra sprautufíkla, sem háðir eru ópíumefnum eins og morfíni og heróíni, og sækja meðferð á göngudeild við Sjúkrahúsið Vog. SÁÁ segir ástandið óviðunandi.

Fiskidagurinn mikli á Dalvík í dag

Fiskidagurinn mikli er haldinn með pompi og pragt á Dalvík í dag. Þetta er í fjórða sinn sem Dalvíkingar halda þennan dag á hafnarsvæðinu. Júlíus Júlíusson er einn af skipuleggjendum hátíðarinnar. Hann segir að allt gangi eins og í fallegu ævintýri, logn og sól sé á Dalvík í dag og allir séu glaðir.

Búist við auknum flóðum

Búist er við að flóðin í Jöklu aukist eftir helgi. Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar við Kárahnjúkavirkjun segir að ástandið eystra sé þó gott núna miðað við síðustu daga. Hann segir að talsvert hafi sjatnað í ánni. Minna væri í henni í gær en í fyrradag og minna í dag en í gær.

Falsaði eigin aftöku

Tuttugu og tveggja ára Bandaríkjamaður falsaði myndband sem sýndi hann hálshöggvinn af mannræningjum í Írak. Sjálfur segist hann hafa notað gerviblóð og að um grikk hafi verið að ræða. Írakska bráðabirgðastjórnin hefur lokað útibúi arabískrar sjónvarpsstöðvar, vegna birtinga slíkra myndbanda.

Sex lík í íbúð í Flórída

Sex lík fundust á heimili í Flórída í Bandaríkjunum í gær og gengur morðinginn laus. Farið var að grennslast fyrir í íbúðinni eftir að einn íbúanna mætti ekki til vinnu. Fjórir menn og tvær konur, á aldrinum 18 til 30 ára, fundust látin og segir lögreglan að fólkið hafi ekki framið sjálfsmorð.

Bakteríusýking völd að dauða 189

Slæm bakteríusýking hefur herjað á sjúkrahús og hjúkrunarheimili í Kanada á undanförnum mánuðum og er talið að 189 dauðsföll á 18 mánuðum, megi rekja til hennar, segir á fréttavefsíðu BBC í dag.

Ekkert að bremsunum

Ekkert var að öryggisbúnaði vörubifreiðarinnar sem fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal fyrr í vikunni. Tæknifræðingar Frumherja hafa rannsakað bifreiðina og að sögn Jóhannesar B. Björgvinssonar, lögregluvarðstjóra í Búðardal, var hemlabúnaður bílsins nýlegur, þrátt fyrir að dregist hefði að fara með bílinn í endurskoðun.

Skandall í ólympíunefndinni

Búlgarskur meðlimur Alþjóðaólympíunefndarinnar var í dag leystur frá störfum tímabundið, vegna ásakana um spillingu, sem komu fram í breskum heimildaþætti. Hann segist hafa spilað með í þeirri von að geta upplýst um mútutilraun.

Nýr jarðbor tekinn í notkun

Jarðboranir hafa tekið í notkun nýjan hátæknibor sem er sá stærsti hér á landi. Kaupverðið ásamt fullum búnaði er um 600 milljónir íslenskra króna. Í tilkynningu frá Jarðborunum segir að kaupin á bornum komi til vegna vaxandi verkefna innanlands sem utan og mikilvægi þess að standast fjölþjóðlega samkeppni.

Uppreisnarmenn fá sakaruppgjöf

Á næstu 30 dögum geta Írakar sem stutt hafa uppreisnarmenn fengið sakaruppgjöf. Þetta hefur verið tekið í lög og með þessu eiga minniháttar glæpamenn að geta hafið siðsamlegt líf á ný. Þeir sem geta sótt um sakaruppgjöf eru þeir sem versla með léttari vopn og sprengiefni auk þeirra sem hafa fjármagnað uppreisn að einhverju leiti.

Aldrei jafn margir á Gay-pride

Talið er að um 40.000 þúsund manns séu samankomnir í miðborg Reykjavíkur á hátíðahöldum Hinsegin daga. Fyrr í dag gengu þúsundir manna í skrúðgöngu frá Hlemmi og niður á Lækjartorg þar sem hátíðardagskrá hefur staðið yfir síðan rúmlega fjögur.

Saman á ný eftir 7 ára fangelsi

Kennslukonan Mary Kay Letourneau  hefur fengið leyfi dómara í Seattle í Bandaríkjunum til að hitta sinn heittelskaða Vili Fualaau eftir sjö ára aðskilnað. Mary Kay er 43 ára og vakti ástarsamband hennar við Fualaau heimsathygli þegar það hófst fyrir 8 árum. Þá var hann einungis 13 ára gamall og nemandi Mary Kay. Hún varð ólétt og ól honum dóttur.

Sprengjur í ferðamannabæjum Spánar

Tvær litlar sprengjur sprungu í ferðamannabæjum á norðurströnd Spánar í dag. Engin meiðsl urðu á fólki en svo virðist sem ETA, hryðjuverkasamtök baskneskra aðskilnaðarsinna standi á bak við tilræðin og séu þar með að vakna til lífsins á ný.

Mótorhjólahundur léttir lundu

Chihuahua hundur á mótorhjóli léttir sjúklingum vistina, á sjúkrahúsi í Ohio í Bandaríkjunum. Hundurinn heitir Bangsi og fer um ganga spítalans á leikfangahjóli, sem er eftirlíking af Harley Davidson mótorhjóli.

Höfrungar stranda í Flórída

Um 30 höfrungar strönduðu á Palm Beach í Flórída í gær. Þeir strönduðu reyndar í annað sinn en áður höfðu hjálpsamir starfsmenn og gestir annars staðar á baðströndinni komið þeim á flot á ný. Höfrungarnir syntu um sex kílómetra leið norður með ströndinni en leituðu svo í land aftur.

Frakkar búa sig undir mikinn hita

Frakkar undirbúa sig fyrir væntanlega hitabylgju, en í fyrra létust um fimmtán þúsund manns vegna mikilla hita. Sérfræðingar hafa áhyggjur af því að ekki verði hægt að nýta um þriðjung sjúkraplássa vegna sumarfría í landinu. Í ágúst í fyrra fór hiti oft upp fyrir 40 gráður og spáð er svipaðri hitabylgju á næstunni.

Aðsóknarmet á fiskidegi

Aðsóknarmet var sett á Fiskideginum mikla á Dalvík í dag. Um þrjátíu þúsund manns voru á staðnum og framkvæmdastjórinn segir það aldrei hafa staðið tæpara með að eiga mat ofan í alla. Fiskidagurinn á Dalvík var haldinn í fjórða sinn. Fiskverkendur í Dalvíkurbyggð standa að þessum fjölskyldudegi

Sjá næstu 50 fréttir