Erlent

Uppreisnarmenn fá sakaruppgjöf

Á næstu 30 dögum geta Írakar sem stutt hafa uppreisnarmenn fengið sakaruppgjöf. Þetta hefur verið tekið í lög og með þessu eiga minniháttar glæpamenn að geta hafið siðsamlegt líf á ný. Þeir sem geta sótt um sakaruppgjöf eru þeir sem versla með léttari vopn og sprengiefni auk þeirra sem hafa fjármagnað uppreisn að einhverju leiti. Stórglæpamenn eins og morðingjar, nauðgarar og þeir sem hafa ráðist á opinberar byggingar fá ekki sakaruppgjöf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×