Fleiri fréttir

Varnargarður stenst vatnavexti

Vinnu við að styrkja og breikka varnargarðinn við Kárahnjúkastíflu sem óttast var á tímabili að léti undan er nú lokið.

Aldrei séð meiri fátækt

"Ég hef verið við hjálparstörf í suðurhluta Afríku í fjögur ár og hef aldrei séð jafn mikla fátækt," segir Hjördís Guðbjörnsdóttir hjúkrunarfræðingur en hún er einn þriggja sendifulltrúa Rauða kross Íslands í Darfurhéraði í Súdan. Hjördís sinnir heilsugæslu í Abshok flóttamannabúðunum í norðurhluta Darfur en um 50 þúsund manns eru nú í búðunum og fer fjölgandi.

Ráðherra segir af sér

Dómsmálaráðherra Palestínu, Nahed Arreyes, sagði af sér í gær eftir að hafa verið sviptur lykilvöldum að eigin sögn. Þó hann hafi ekki minnst á Arafat í afsögn sinni er óánægja hans talin stafa vegna þess að Arafat stofnaði hliðstætt ráðuneyti fyrir nokkrum mánuðum og hefur því tögl og hagldir í dómskerfinu.

Írakar veita sakaruppgjöf

Íraska bráðabirgðastjórnin hefur veitt þeim sem hafa framið minniháttar afbrot sakaruppgjöf. Sakaruppgjöfin nær ekki til þeirra sem hafa gerst sekir um manndráp. Vonast er til að þetta verði til þess að lægja ófriðarbálið í landinu.

Sviðsetti eigin aftöku

Myndband sem sýndi arabíska vígamenn taka Bandaríkjamann af lífi og fjölmiðlar um allan heim sögðu frá reyndist vera sviðsett. </font />

Grjót þeyttist við sprengingu

Möl og grjót þeyttust út á þjóðveginn á austanverðu Tjörnesi í nótt þegar sprengisérfræðingar Landhelgisgæslunnar sprengdu í grenndinni tuttugu og fimm kíló af mjög öflugu sprengiefni sem vegfarandi hafði rekist þar á í grennd við þjóðveginn.

Réttað yfir föngum á Guantanamo

Blaðamenn fylgdust í gær í fyrsta sinn með réttarhöldum yfir stríðsföngum Bandaríkjamanna, sem þeir hafa haldið í fangelsinu á Guantanamo flóa á Kúbu án dóms og laga í meira en tvö ár. Myndatökur voru hins vegar ekki leyfðar í réttarsal.

Eldur kviknaði í vörubíl

Tveir menn sluppu ómeiddir þegar eldur kviknaði í vörubíl sem þeir voru á rétt fyrir utan Stykkishólm undir kvöld í gær. Þeir urðu varir við reyk og komu sér strax út úr bílnum en rétt í því urðu vélarhúsið og ökumannshúsið alelda.

Vill afsala sér ríkisborgararétti

Bobby Fisher, fyrrverandi heimsmeistari í skák, vill afsala sér bandarískum ríkisborgararétti að sögn lögmanns hans. Hann er nú í haldi í Japan fyrir að hafa framvísað þar útrunnu vegabréfi, að sögn bandarískra yfirvalda, þegar hann ætlaði að fara frá Japan til Filippseyja nýverið.

Hætta við nýbyggingar

Yfirvöld í Bangladess hafa hætt við fyrirhugaðar nýbyggingar í landinu en munu þess í stað nota fjármagnið til að laga skemmdir eftir mikil flóð sem hafa geisað þar undanfarið. Flætt hefur yfir tvo þriðju hluta landsins og hafa tæplega sjö hundruð manns farist.

Börn aftur í skólann

Börn í Paraguay fóru aftur í skólann í gær eftir þriggja daga þjóðarsorg í kjölfar þess að um 450 manns fórust í bruna í verslunarmiðstöð um síðustu helgi. Meðal hinna látna voru tæplega fimmtíu börn. Að minnsta kosti tuttugu og fimm foreldrar barna í Alþýðuskólanum í Paraguay létust í brunanum.

Tólf ára á Ólympíuleikana

Tólf ára gömul íslensk stúlka, Esther Viktoría Ragnarsdóttir, er á leiðinni á Ólympíuleikana í Aþenu nú í ágúst. Esther vann myndasamkeppnina „Ólympíuleikar ímyndunaraflsins“ sem haldin var á vegum Visa International fyrr á þessu ári en tuttugu og níu börn frá sautján löndum fá að fara á Ólympíluleikana í fylgd forráðamanns í kjölfar þátttöku sinnar í keppninni.      

Fleiri hryðjuverkamenn handteknir

Lögreglan í Bretlandi handtók í gær þrettánda manninn sem grunaður er um aðild að hryðjuverkasamtökum. Handtakan kom í kjölfar handtökuskipunar frá Bandaríkjunum en maðurinn, Babar Ahmad sem er þrjátíu ára gamall, er grunaður um að hafa stundað fjáröflun fyrir hryðjuverk í Tsjetsjeníu og Afganistan frá 1998 til 2003.

Kettir klónaðir

Erfðarvísindafyrirtæki í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hefur í fyrsta sinn klónað tvo ketti en frumgerðin er kötturinn Tahini, köttur forstjóra fyrirtækisins. Markmiðið er að geta klónað gæludýr fyrir fólk sem finnst erfitt að sjá á eftir dýrunum sínum. Að sögn forstjórans ætlar fyrirtækið að klóna fleiri ketti síðar á árinu og verða sex þeirra seldir fyrir 500 þúsund íslenskar krónur hver.

Vinna liggur enn niðri

Hættuástand skapaðist við Kárahnjúkavirkjun í gærkvöldi þegar vatn úr Jöklu fór að streyma í gegnum varnarstífluna sem á að verja vinnusvæðið ofan í gljúfrinu. Starfsmenn yfirgáfu svæðið í skyndingu og liggur vinna enn niðri vegna vatnsaga. Nokkru síðar var þar orðið fjögurra metra djúpt vatn.

Sharon gefur líklega eftir

Aríel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, ætlar líklega að gefa Gaza-svæðið eftir til Palestínumanna og þess í stað að efla landnemabyggðir á Vesturbakkanum. Ísraelski herinn hefur að hluta dregið sig frá norður Gaza-svæðinu og Sharon heldur fast í áætlanir um að leggja niður landnemabyggðir á svæðinu.

Mannleg reisn með vasapeningum

Rauði krossinn telur hælisleitendur hér á landi frekar viðhalda mannlegri reisn fái þeir úthlutað vasapeningum sem var hætt að úthluta þegar Reykjanesbær tók við umsjá hælisleitenda af Rauða krossinum. Félagsmálastjóri Reykjanesbæjar segir koma til greina að setja einhver skilyrði fyrir greiðslu vasapeninga.

Stöðugir bardagar í Írak

Einn bandarískur hermaður lést og 15 særðust í árásum uppreisnarmanna í Bagdad í Írak í gærkvöldi. Hermenn berjast nú við árásarmenn á nokkrum stöðum í Írak og ekkert lát er á árásum.

Eins konar síldarævintýri

Síld veður nú í yfirborði sjávar víða fyrir norðan land en slíkt hefur ekki gerst áratugum saman. Að sögn Sverris Ólafssonar á trillunni Gyðu Jónsdóttur stekkur síldin í hundruða þúsunda tali upp úr yfirborðinu og lætur sig detta niður á hliðina þannig að til að sjá er eins og sjórinn kraumi.

74 ára maður tekinn af lífi

Sjötíu og fjögurra ára gamall maður var tekinn af lífi í Alabama-ríki í Bandaríkjunum í gær. Hann er elsti maður sem tekinn hefur verið af lífi þar í landi síðan dauðarefsingar voru leiddar í lög á ný árið 1976. Maðurinn, sem hét James Hubbard, myrti 62 ára gamla konu fyrir tuttugu og sjö árum, þá 47 ára gamall.

Rás 1 og 2 lágu niðri

Bilun í spennugjafa í útsendingarborði Rásar 2 í morgun varð til þess að útsendingar beggja rása Ríkisútvarpsins lágu niðri í fimmtán mínútur á höfuðborgarsvæðinu. Deildarstjóri hljóðdeildar RÚV telur ekki þörf á frekari aðgreiningu rafkerfisins. Útsendingarrofið hefði verið minna ef rafmagn hefði farið af öllu húsnæðinu.

114 húsbílar í hópferð

Á þriðja hundrað útlendinga á 114 húsbílum eru lagðir upp í þriggja vikna hópferð um landið og er stefnt að því að efna til svona ferða árlega. Fólk og bílar komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í gær og í gærkvöldi var safnast saman á knattspyrnuvellinum í Fellabæ þar sem fólkið gisti í bílum sínum.

Bannað að brosa í vegabréfum

Þeim sem hyggjast sækja um vegabréf í Bretlandi er nú bannað að brosa svo það sjáist í tennurnar á vegabréfsmyndum. Stofnunin sem sér um útgáfu vegabréfanna segir að með þessu sé verið að fara eftir nýjum bandarískum stöðlum sem banna mönnum að brosa út að eyrum. Ástæðan er sú að bros getur villt fyrir öryggismyndavélum og landamæravörðum.

Vann 2,5 milljarða í lottóinu

Stærsta lottóvinningi í Bretlandi og á Írlandi fyrr eða síðar var úthlutað í borginni Belfast á Norður-Írlandi í dag. Vinningsupphæðin var tveir og hálfur milljarður íslenskra króna og féll hann í hlut 58 ára gamallar konu sem er gift og á tvær uppkomnar dætur.

Án bóta í sex áratugi

Tæpum 60 árum eftir að kjarnorkusprengjum var varpað á Hiroshima og Nagasaki þjást sum eftirlifandi fórnarlömb árásanna enn án þess að fá nokkrar bætur eða aðstoð.

Fá að bera vopn á ný

Ísraelsk stjórnvöld hafa samþykkt að palestínskir lögreglumenn fái að bera vopn. Það hafa þau bannað síðustu þrjú árin. Shaul Mofaz, varnarmálaráðherra Ísraels, samþykkti breytinguna til að hjálpa Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, að koma á röð og reglu á svæðum Palestínumanna.

A-Evrópumenn streyma til Danmerkur

Fleiri Austur-Evrópubúar hafa sótt um atvinnuleyfi í Danmörku í maí, júní og júlí eftir að tíu ný ríki fengu aðild að Evrópusambandinu fyrsta maí. Danska dagblaðið Jyllands posten greinir frá því í dag að tvö þúsund Austur-Evróubúar hafi sótt um atvinnuleyfi og fara flestir í landbúnaðarstörf.

Niðurstaða skoðunar send lögreglu

Lögreglunni í Búðardal verður í dag send niðurstaða skoðunar sérfræðinga Frumherja á bremsubúnaði vörubílsins sem gjöreyðilagðist þegar hann fór fram af einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal á þriðjudaginn. Jón Hjalti Ásmundsson, tæknistjóri ökutækjasviðs Frumherja, skoðaði bílinn í gær ásamt skoðunarmanni í Borgarnesi.

Al-Sadr neitar miklu mannfalli

Talsmaður sjítaklerksins Moqtada al-Sadr neitar þeim fréttum Bandaríkjamanna að þrjú hundruð írakskir uppreisnarmenn hafi fallið í tveggja daga bardögum í borginni Najaf. Hann segir þrjátíu og sex af þeirra mönnum látna.

Stíflan komin í 488 metra

Bráðabirgðastífla við Kárahnjúka, sem lak meðfram í gær inn á vinnusvæðið í gljúfrinu fyrir neðan, er komin í 488 metra. Stefnt er að því að hún verði komin í 490 metra á næsta sólarhring en verkið er tímafrekt þar sem stíflan er tuttugu og fimm metra breið.

Dræm íssala í Danmörku

Ísframleiðendur í Danmörku segja að hlýr ágústmánuður bjargi ekki slæmri sölu í sumar. <em>Jylland Posten</em> hefur það eftir Lars Tandrup, sölu- og markaðsstjóra hjá Frisko Is, að salan nú sé sú minnsta frá því hann hóf störf hjá fyrirtækinu fyrir sex árum.

Forsætisráðherra Finna í heimsókn

Forsætisráðherra Finnlands, Matti Vanhanen og frú, koma í opinbera heimsókn til Íslands á morgun. Í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu verður svokallaður vinnuhádegisverður og svo fara þau í skoðunarferð til Nesjavalla og Þingvalla.

Fjármunaeign 57% meiri

Á fimm árum hefur fjármunaeign landsmanna aukist um 57 prósent, eða um tæpan milljarð króna. Hagstofan birti nýjar tölu í morgun um fjármunaeign og ef aðeins er litið til íbúðarhúsnæðis er sú tala í rúmum 1,1 milljarði og hefur hún aukist um tæpa 500 milljarða króna á verðlagi hvers árs.

Norsku síamstvíburarnir dánir

Síamstvíburar sem fæddust á sjúkrahúsi í Fredrikstad í Noregi á þriðjudag létust rétt fyrir hádegi í dag, á barnadeild Ríkisspítalans í Osló, þangað sem þær voru fluttar fljótlega eftir fæðingu. Stúlkurnar voru með samvaxið hjarta sem starfaði ekki eðlilega en þær höfðu hvor sín lungu og höfuð.

Vinnutap upp á 10 daga

Áætlað er að vinnutap vegna vatnavaxta í Jöklu við Kárahnjúkavirkjun nemi tíu dögum. Er þá litið til þeirra tafa sem hafa orðið og munu verða á næstunni en nú er unnið hörðum höndum að því að hækka bráðabirgðastífluna sem lak meðfram inn á vinnusvæðið í gær.

Blóðbað í Najaf

Harðir bardagar milli íraskra uppreisnarmanna og bandarískra hermanna í hinni helgu borg Najaf síðustu tvo daga hafa kostað 300 uppreisnarmenn lífið að sögn bandarísku herstjórnarinnar í Írak. Tugir til viðbótar hafa látist í bardögum annars staðar á svæðum sjíamúslima að sögn íraskra stjórnvalda.

Áhafnaskipti við Svalbarða

Ný tuttugu og sex manna áhöfn fór um borð í Samherjatogarann Vilhelm Þorsteinsson við Svalbarða í síðustu viku. Leiguflugvél frá Flugfélagi Íslands flaug með áhöfnina frá Akureyri til Longerbyen á Svalbarða og sparaðist með því átta hundruð mílna sigling til Íslands.

Hafnarfjarðarhöfn lokað

Nú er verið að vinna að því að loka Hafnarfjarðarhöfn en þann 1. júlí síðastliðinn tóku gildi lög um siglingavernd sem stuðla m.a. að því að loka þarf hafnarsvæðum til að koma í veg fyrir að óviðkomandi aðilar eða hlutir komist að skipum. Ennfremur verður haftasvæðum hafna lokað þar sem farmur er geymdur til útflutnings.

Gæsluvarðhaldsúrskurður ógiltur

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Ragnari Sigurjónssyni sem nýverið var framseldur frá Tælandi eftir að hafa farið huldu höfði í fimm ár. Honum er hins vegar gert að sæta farbanni til 23. ágúst næstkomandi.

Fischer leitar hælis

Lögmaður skáksnillingsins Bobbys Fischers segir Fischer ætla að afsala sér bandarískum ríkisborgararétti. Fischer hefur setið í haldi í Tókýó frá því þrettánda júlí síðastliðinn. Hann hringdi í bandaríska sendiráðið í Tókýó til að tilkynna yfirvöldum í Bandaríkjunum fyrirætlanir sínar en hefur ekki fengið svör.

Hvaða ráðherra kveður?

Staða Jóns Kristjánssonar innan ríkisstjórnarinnar þykir síst sterkari en Sivjar Friðleifsdóttur. Enn mega þau þó bíða þess að Halldór Ásgrímsson deili ákvörðun sinni því ólíklegt er að hún verði tilkynnt þennan mánuðinn. 

Spara tíma og peninga

Áhafnarskipti voru gerð á fjölveiðiskipinu Vilhelmi Þorsteinssyni EA 11 á Svalbarða í síðustu viku. Í tilkynningu frá Samherja hf. sem gerir út skipið, er þetta í fyrsta skipti sem send er leiguflugvél til Longerbyen á Svalbarða í þessum erindagjörðum.

Útsending RÚV

Útsendingar Rásar 1 og Rásar 2 rofnuðu rétt fyrir klukkan níu í gærmorgun vegna rafmagnsbilunar. Gripið var til neyðaráætlunar Útvarpsins og var útsending á samtengdum rásum komin á FM-kerfið utan Reykjavíkur og á langbylgju um allt land fimm mínútum síðar.

Aðbúnaður flóttafólks til skoðunar

Til stendur að taka mál hælisleitenda sem hér bíða úrskurðar Útlendingastofnunar til skoðunar í stjórnkerfi Reykjanesbæjar. Hjörtur Zakaríasson, bæjarritari Reykjanesbæjar og staðgengill bæjarstjóra, gerði ráð fyrir því að funda með Hjördísi Árnadóttur, félagsmálstjóra bæjarins, strax á mánudag.

Forsætisráðherra fær gesti

Halldór Ásgrímsson tekur í fyrsta skipti á móti erlendum gesti í opinberri heimsókn sem forsætisráðherra í dag. Forsætisráðherra Finnlands kemur til landsins í dag ásamt konu sinni og Halldór er starfandi forsætisráðherra vegna veikinda Davíðs Oddssonar

Sjá næstu 50 fréttir