Myndband með aftöku birt 7. ágúst 2004 00:01
Myndband af því þegar bandarískur gísl var hálshöggvinn af mannræningjum í Írak, var birt í morgun, á vefsíðu samtaka tengdum al Qaeda. Annað mynband var birt í morgun þar sem tyrkneskum bílstjóra er hótað sömu örlögum. Á myndbandinu segir ungur maður að hann heiti Benjamin Ford og sé frá San Fransisco. Hann segir að verði bandarískir hermenn ekki kallaðar frá Írak verði þeir allir aflífaðir á þennan hátt. Hendur mannsins voru bundir og hann sat á stól. Hann gaf upp nafn sitt og heimilisfang áður en hann var tekinn af lífi. Þær upplýsingar passa við Benjamin Vaterford, sem heldur úti heimasíðu á netinu. Á þeirri síðu kemur fram að hann sé 22 ára tónlistarmaður sem vinni einnig við gerð tölvuleikja. Ólíkt fyrri myndböndum frá hryðjuverkahópi Jórdanans al-Zarqawis var maðurinn ekki klæddur í appelsínugulan fangagalla og ekki sást í fána samtakanna. En á yfirlýsingu samtakanna sést merki þeirra. Á miðvikudag gaf Hvíta húsið út þá yfirlýsingu að þjóðir sem stæðu að herbandalaginu í Írak myndu ekki láta oftar undan kröfum mannræningja, í kjölfar þess að filippseysk stjórnvöld kölluðu sína menn frá landinu svo lífi vörubílstjóra frá Filippseyjum yrði þyrmt. Að minnsta kosti tuttugu gíslar eru enn í haldi mannræningja í Írak og að minnsta kosti tíu hafa verið drepnir. Önnur myndbandsupptaka var birt í morgun, þar sem hótað er að aflífa tyrkneskan bílstjóra eftir tvo sólarhringa, verði starfsfólk fyrirtækisins ekki kallað heim frá Írak. Bílstjórinn sést taugaveiklaður á myndbandinu umkringdur grímuklæddum mönnum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira