Fleiri fréttir

Málskotsrétturinn frá forseta

Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjarnefndar Alþingis, segir í helgarviðtali við Fréttablaðið að ekki eigi að fella synjunarvald forseta samkvæmt 26. grein stjórnarskrár niður án þess að neitt annað komi í staðinn.

Missti meðvitund vegna gaseitrunar

Tólf ára gamall drengur kom fjögurra ára systur sinni til bjargar þegar hún missti meðvitund vegna metangaseitrunar við bæinn Oddgeirshóla í Hraungerðishreppi um hádegið í gær. Pilturinn færði systur sína undir bert loft en hún missti meðvitund er hún var að leik með kettlingi í fjósinu þar sem eitrunin kom upp.

Japanar óvissir um framsal

Japanar segjast þurfa meiri tíma áður en ákvörðun verður tekin um hvort Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, verði framseldur til Bandaríkjanna. Þar á Fishcer yfir höfði sér fangelsisvist og fjársektir vegna brots á viðskiptabanni við Júgóslavíu en árið 1992 tefldi Fischer einvígi við Boris Spasský þar í landi.

Mannskætt lestarslys í Tyrklandi

Að minnsta kosti fjörutíu manns fórust og sextíu slösuðust í lestarslysi í Tyrklandi í morgun. Hraðlest fór þá út af brautarteinum á milli borganna Istanbul og Ankara. Þetta er eitt versta lestarslys í sögu Tyrklands en gagnrýnendur höfðu varað við því að gamlir brautarteinar á þessari leið myndu ekki ráða við nýrri og hraðskreiðari gerðir lesta.

Bretar óttast Bakkus

Bretar hafa töluverðar áhyggjur af því að óhófleg áfengisneysla og vondir drykkjusiðir séu að færast í vöxt í Bretlandi. Tony Blair, forsætisráðherra landsins, segir breskt samfélag þurfa að koma í veg fyrir að fyllerí verði nýtt þjóðareinkenni Breta.

Kerry lofar auknu öryggi

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, hefur heitið því að bæta verulega úr öryggismálum í Bandaríkjunum, verði hann kjörinn forseti í haust.

Ómari enn hótað

Hótanir og þrýstingur gegn Ómari Ragnarssyni vegna umfjöllunnar hans um virkjanamálin í Sjónvarpinu héldu áfram eftir að ljóst var að hann væri að skrifa bókina „Kárahnjúkar með og á móti“.

Lögregla getur snúið við

Nú styttist í að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar verði opnuð almenningi og er von til að þær betrumbætur verði til þess að auka öryggi vegfarenda. Margir hafa hins vegar velt vöngum yfir því hvernig lögreglan færi að því að hafa hendur í hári ökuníðinga sem koma úr gagnstæðri átt.

Morð er ávísun á geðhjálp

Talið er að um 20 geðsjúkir séu á götunni og passi hvergi inn í kerfið. Gjarnan er um að ræða hættulegt fólk sem fær ekki aðhlynningu. Móðir sem DV ræddi við á son sem á við aðsóknarkennd eða paranóju að stríða. Honum hefur verið vísað frá geðdeild á þeim forsendum að hann sé ekki nógu veikur.

Jólasveinaþing í Kaupmannahöfn

Hundrað og sextíu jólaveinar alls staðar að úr heiminum eru samankomnir á jólasveinaþingi í Kaupmannahöfn. Þingið er það 41. í röðinni og fer fram í skemmtigarðinum á Bakkanum svonefnda. Sveinkarnir koma m.a. frá Bandaríkjunum, Venesúela, Japan og Grænlandi.

Ekkert spurst til mannsins

Ekkert hefur spurst til Eiríks Arnar Stefánssonar sem lögregla lýsti eftir í gær. Síðast sást til ferða hans við sjúkrastöðina Vog 5. júlí síðastliðinn. Lögreglu bárust upplýsingar um hvarf Eiríks 19. júlí, eða heilum tveim vikum eftir að síðast sást til hans.

Sjálfsvíg í Japan aldrei fleiri

Sjálfsvíg í Japan hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári en þá tóku tæplega 35 þúsund manns líf sitt. Tæpur helmingur, eða 45%, tóku hina örlagaríku ákvörðun vegna slæms heilsufars og ríflega fjórðungur vegna fjárhagsvandræða. Síðarnefnda ástæðan er ört vaxandi orsök sjálfsmorða í landinu. </font />

8 hæða bygging hrundi

Átta hæða bygging hrundi til grunna í verslunarhverfi í miðborg Maníla, höfuðborgar Filippseyja, í morgun. Með snarræði tókst að rýma bygginguna eftir að hún fór að hallast. Húsið er einugis fimm ára gamalt og mesta mildi þykir að ekki fór verr.

Arabískir málaliðar gera árásir

Uppreisnarmenn í Vestur-Súdan segja að arabískir málaliðar hafi gert árásir í Darfúr-héraði með stuðningi súdönsku ríkisstjórnarinnar. Þeir segja að ríkisstjórnin í Súdan hafi veitt yfir sex þúsund málaliðum stöðu í lögreglunni og gefið þeim einkennisbúninga og vopn.

ESB hættir ekki friðarviðræðum

Javier Solana, utanríkisráðherra Evrópusambandsins, segir að sambandið muni ekki draga sig út úr friðarviðræðum í Miðausturlöndum, hvort sem Ísrael líki það betur eða verr. Ísraelar eru æfir út í sambandið fyrir að hafa stutt ályktun á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að öryggismúr Ísraela í Palestínu skuli rifinn.

Mikill óhugur í Búlgaríu

Lík af tveimur Búlgörum sem rænt var í Írak eru fundin. Mikill óhugur hefur slegið um sig í Búlgaríu en hryðjuverkasamtök hafa hótað landinu árásum.

Fischer kom Íslandi á kortið

Skáksamband Íslands afhendir í dag fulltrúa sendiherra Bandaríkjanna áskorun um að Bandaríkjaforseti náði Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák. Þótt hann sé ekki íslenskur ríkisborgari kemur málið okkur við, segja skákáhugamenn.

Fullt samráð við BHM

Menntamálaráðherra segir að fullt samráð verði haft við Bandalag háskólamanna og aðra hagsmunaaðila við endurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þeir fái þó ekki fulltrúa í nefndinni sem endurskoðar málefni Lánasjóðsins.

Fuglaflensa í Tælandi

Óttast er að fuglaflensa hafi enn á ný blossað upp í Tælandi. Grunur leikur á að tvö börn hafi smitast af flensunni sem er banvæn. Börnin koma frá Nong Khai héraði við landamæri Laos.

Þjóðaratkvæða- greiðsla möguleg

Forseti Íslands getur knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu þótt Alþingi hafi fellt fjölmiðlalögin úr gildi að mati Sigurðar Líndals, lagaprófessors. Hann metur það svo að stjórnarþingmenn hafi ekki brotið gegn stjórnarskránni með því að fella fjölmiðlalögin úr gildi, eins og varaformaður Frjálslynda flokksins hélt fram í gær.

Bylgjan vinsælasta útvarpsstöðin

Bylgjan er vinsælasta útvarpsstöð landsins og fer í fyrsta sinn yfir Rás 2 samkvæmt nýrri útvarpskönnun Gallups. Stöðvarnar hafa verið mjög jafnar í útvarpskönnunum undanfarið ár.

Engin vatnaskil í hvalveiðimálum

Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, telur að niðurstöður á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins boði engin sérstök vatnaskil í baráttunni við að fá hvalveiðar í atvinnuskyni leyfðar.

Beiðni Khodorkovskys hafnað

Rússneskir dómarar höfnuðu beiðni lögmanna milljarðamæringsins Mikhails Khodorkovskys um að ákæruatriði vegna yfirtöku hans á Yukos olíufélaginu fyrir 10 árum yrðu felld niður. Dómarar segja að fara þurfi mun betur yfir málið áður en hægt sé að láta það niður falla. Khodorkovsky hefur nú setið í fangelsi frá því í október.

Kynlífsfræðsla á meðal nemenda

Kynlífsfræðsla þar sem eldri nemendur kenna þeim yngri er vinsæl á meðal nemenda í Bretlandi. Skólar hafa brugðið á það ráð að láta sextán og sautján ára gamla nemendur fræða þrettán og fjórtán ára gamla nemendur um kynlíf.

Flugfélag Íslands hækkar fargjöld

Flugfélag Íslands mun hækka almenn fargjöld í innanlandsflugi um 3% að meðaltali frá og með 2. ágúst nk. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér rétt áðan og er ástæða hækkunarinnar sögð vera miklar hækkanir á eldsneytisverði.

36 manns krömdust til dauða

Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns krömdust til dauða þegar eldsneytistrukkur rann út af þjóðvegi og inn í mannmergð á markaðstorgi í Nígeríu í dag. Dekk sprakk á bílnum og rakst hann á þrjá kyrrstæða bíla áður en hann lenti á fólkinu.

Á hjólabretti á þýskri hraðbraut

Þýska lögreglan stöðvaði þrjátíu og átta ára gamlan Svía á hraðbraut, nokkur hundruð kílómetra suðvestur af höfuðborginni Berlín, þar sem hann var á hjólabretti. Svíinn sagðist hafa verið á ferðalagi um Balkanlöndin og að hann væri orðinn svo blankur að hann ætti bara tvær evrur eftir.

5 ára fangelsi fyrir e-töflu smygl

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 26 ára konu í fimm ára fangelsi fyrir að reyna að smygla rúmlega 5 þúsund e-töflum inn í landið. Konan, sem heitir Fanta Sillah og er frá Afríkuríkinu Síerra Leóne, var stöðvuð í Leifsstöð þann 10. júní sl. og fundust töflurnar í bakpoka hennar. 

Hugsanleg hryðjuverk í rannsókn

Bandaríska alríkislögreglan FBI tilkynnti í dag að hún væri að rannsaka óstaðfestar upplýsingar um að fremja eigi hryðjuverk á ráðstefnu Demókrataflokksins í Boston í næstu viku.

Stjórnvöld sökuð um morð

Tyrknesk stjórnvöld sæta harðri gagnrýni eftir lestarslys sem kostaði 36 manns lífið í fyrrakvöld. Stjórnin er sökuð um kæruleysi fyrir að hafa ekki tekið mark á viðvörunum um að lestarkerfi landsins, sem er komið til ára sinna, réði ekki við nýju hraðlestina sem fór út af spori sínu á miklum hraða í fyrrakvöld.

Samtök ferðaþjónustunnar óánægð

Samtök ferðaþjónustunnar hafa óskað eftir því við Brunamálastofnun að kannað verði hvernig standi á því að gististaðir með slæmar brunavarnir séu með starfsleyfi. Kom þetta fram á fundi samtakanna með brunamálastjóra í dag.

Ráðamenn dregnir til ábyrgðar

Réttarhöld sem hafin eru yfir tveimur fyrrum ráðamönnum í gamla Austur-Þýskalandi eru talin þau síðustu þar sem ráðamenn eru dregnir til ábyrgðar vegna dauða fólks sem var skotið til bana þegar það reyndi að flýja til Vestur-Þýskalands fyrir lok Kalda stríðsins.

Björgunarsveitarmenn leita við Vog

Tuttugu björgunarsveitarmenn leita nú Eiríks Arnar Stefánssonar sem sást síðast við sjúkrastöðina Vog 5. júlí síðastliðinn. Leit lögreglu að honum hefur enn engan árangur borið og var aðstoðar Landsbjargar óskað í dag. Björgunarsveitarmennirnir munu leita í nágrenni Vogs til að byrja með.

Fjórir árekstrar á tæpri klst.

Tveir bílar lentu í árekstri á gatnamótum Höfðabakka og Stórhöfða nú á fimmta tímanum. Að minnsta kosti einn slasaðist. Höfðabakki var lokaður um tíma en hefur verið opnaður aftur. Umferð er farinn að þyngjast en frá klukkan fjögur hefur verið tilkynnt um þrjá aðra árekstra í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík.

Fangar njóti mannréttinda

Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum telja að Bandaríkin eigi aldrei að beita fanga líkamlegum misþyrmingum eða pyntingum samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Rúmur helmingur telur að ekki megi heldur beita fanga andlegu ofbeldi. Skoðanakönnunin tekur til nokkurra atriða þar sem Bandaríkin hafa verið sökuð um að brjóta gegn mannréttindum fanga.

Esso á Blönduósi opnað á ný

Esso-skálinn á Blönduósi hefur verið opnaður á ný eftir að eldur kviknaði í rafmagnstöflu þar í dag. Nokkrir þurftu aðhlynningar við vegna mikils reyks sem myndaðist.

Eitt versta lestarslys Tyrklands

Þrjátíu og sex manns fórust og áttatíu slösuðust í lestarslysi í Tyrklandi í morgun. Þetta er eitt versta lestarslys í sögu Tyrklands.

Fundu gamlan alzheimersjúkling

Svæðisstjórn Landsbjargar kom saman sl. fimmtudagskvöld eftir að lögreglan í Reykjavík hafði beðið um aðstoð við leit að áttræðum alzheimersjúklingi. Maðurinn hafði ekki skilað sér heim úr gönguferð frá heimili sínu í nágrenni Laugardals, seinnipart dagsins.

Árásir í Írak

Bandaríski flugherinn gerði árás á uppreisnarmenn í borginni Fallujah í Írak í morgun. Að sögn sjónarvotta særðust fimm óbreyttir borgarar í árásinni, þar á meðal börn. Þá létust tveir bandarískir hermenn í sprengingu í morgun nálægt borginni Samarra og Íraki var skotinn til bana í Mósul en hann starfaði fyrir Bandaríkjaher.

Fordæma óleyfilegan akstur

Fréttir undanfarnar vikur af náttúruspjöllum vegna óleyfilegs utanvegaaksturs eru mikil vonbrigði að mati ferðaklúbbsins 4x4.

Ísrek fyrir vestan

Meira er af hafís úti fyrir ströndum vestfjarða nú en venjulega á þessum tíma árs og eru ísflekarnir næstum 50 sjómílur frá Straumnesi.

Lítil áhrif á umhverfið

Enginn þeirra fjögurra kosta sem koma til greina undir vegarstæði fyrirhugaðs Gjábakkavegar er talinn hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Þetta er niðurstaða matsskýrslu sem Vegagerðin lét framkvæma og hefur sent Skipulagsstofnun til meðferðar.

Öruggast að hafa börnin góð

Í Öryggishandbók fyrir ferðalanga sem nýlega kom út er farið yfir helstu öryggisatriði og hluti sem komið geta upp á ferðalögum fólks um landið. Útgáfan er sögð koma eigendum tjaldavagna og fellihýsa að sérstökum notum.

Langur biðtími á slysadeild

"Ég hef starfað hér í mörg ár og að undanförnu hefur álagið verið með almesta móti," segir Ólafur R. Ingimarsson, læknir á bráða- og slysadeild Landspítala- háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Biðtími fólks sem þangað sækir með eymsl og meiðsl er með lengsta móti og ekki óvenjulegt að bíða þurfi í allt að fjórar klukkustundir þegar verst lætur

Sjá næstu 50 fréttir