Innlent

Lítil áhrif á umhverfið

Enginn þeirra fjögurra kosta sem koma til greina undir vegarstæði fyrirhugaðs Gjábakkavegar er talinn hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Þetta er niðurstaða matsskýrslu sem Vegagerðin lét framkvæma og hefur sent Skipulagsstofnun til meðferðar. Kemur þar í ljós að áhrif hinna mismunandi leiða Gjábakkavegar á umhverfið í kring eru ekki mikil. Allir kostirnir eru taldir hafa ótvíræð jákvæð áhrif á ferðaþjónustu á svæðinu og eins bæta samgöngur og almennt umferðaröryggi til muna frá því sem nú er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×