Engin vatnaskil í hvalveiðimálum 23. júlí 2004 00:01
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, telur að niðurstöður á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins boði engin sérstök vatnaskil í baráttunni við að fá hvalveiðar í atvinnuskyni leyfðar. Stefán Ásmundsson, sendifulltrúi Íslands á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, sagðist ánægður með niðurstöðuna í viðtali í fréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar í gær. Tillögur um að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni náðu ekki fram að ganga en Stefán sagði að ekki hefði ríkt jafn mikil eining innan ráðsins frá því hvalveiðibannið tók gildi. Aukinn fjöldi ríkja er nú reiðubúinn til að taka þátt í undirbúningsvinnu í tengslum við tillögur um veiðar í atvinnuskyni sem eiga að vera tilbúnar fyrir næsta ársfund. Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að í niðurstöðunni felist ákveðnir möguleikar til þess að hefja hvalveiðar í ábataskyni á ný en að þetta hafi ekki verið nein niðurstaða í þeim efnum. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, er sammála ráðherra og dregur verulega úr niðurstöðu fundarins. Hann segir að hugsanlega sé um einhvern sáttatón að ræða, einhvers konar málamiðlun, en það verði að koma í ljós á næsta ári. Hins vegar er mjög lítill markaður fyrir hvalkjöt að sögn Árna, t.d. seljist lítið af því hér á landi og ekki sé hægt að selja kjötið til Japans, og því sé veiðunum eiginlega sjálfhætt. Aðspurður hvers vegna menn séu þá að leggja áherslu á að hvalveiðar í atvinnuskyni verði leyfðar á ný segist Árni ekki vita svarið við því. Hægt er að hlusta á viðtal við Árna Finnsson úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Innlent „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Erlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent Fúlsaði við þriggja forseta fundi Erlent Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Innlent Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Innlent Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi Erlent Fleiri fréttir „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss í Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Vörðuóðir ferðamenn fremji náttúruspjöll Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Sjá meira
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent
Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Innlent