Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dæmdur fyrir ofsóknir Sonur Slobodans Milosevic hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi í Serbíu fyrir að hóta pólitískum andstæðingi sínum með vélsög. Óvíst er þó hvort hann sitji refsinguna nokkurn tíma af sér þar sem hann er flýði til Rússlands um það leyti sem faðir hans hrökklaðist af forsetastóli í því sem þá hét Júgóslavía. 23.7.2004 00:01
Þunguð kona dæmd í 5 ára fangelsi Barnshafandi vændiskona frá Síerra Leóne var dæmd í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Konan, sem hélt fram sakleysi sínu fyrir dómi, var tekin í Leifsstöð með um 5 þúsund e-töflur í bakpoka. 23.7.2004 00:01
Fjársvelta Gæsluna af ásetningi Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, segir stjórnvöld fjársvelta Landhelgisgæsluna af ásetningi. Hann segir óviðunandi að það sé eitt, og stundum ekkert, varðskip á sjó. 23.7.2004 00:01
Myndi enda í þrátefli Forseti Íslands getur knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu þótt Alþingi hafi fellt fjölmiðlalögin úr gildi, að mati Sigurðar Líndals lagaprófessors. Sú ákvörðun myndi þó enda í þrátefli með ófyrirsjáanlegum endi. 23.7.2004 00:01
Þroskaheftur eftir þrjá áratugi Tæpum þremur áratugum eftir að Walter Bell var fyrst lokaður inni á dauðadeild í fangelsi í Texas hefur hann verið úrskurðaður þroskaheftur. Þar með aukast líkur á því að hann verði ekki tekinn af lífi. 23.7.2004 00:01
Slá skjaldborg um Fischer Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, og Hrafn Jökulsson, varaforseti, fóru í gær á fund í bandaríska sendiráðinu til að ræða mál Bobby Fischers sem var fyrir skemmstu handtekinn í Japan. Búist er við að hann verði framseldur til Bandaríkjanna. 23.7.2004 00:01
Þjóðverjar drekka mestan bjór Þjóðverjar drekka mestan bjór Evrópubúa en hver Þjóðverji drekkur að meðaltali 120 lítra af bjór árlega. Þjóðverjum tókst því að skjóta Bretum ref fyrir rass en hver Breti drekkur rétt rúmlega hundrað lítra á ári samkvæmt nýrri evrópskri markaðskönnun. 23.7.2004 00:01
Skáksambandið berst fyrir Fischer Íslenska utanríkisráðuneytið hefur rætt við það japanska og komið á framfæri áhyggjum sínum af málefnum skáksnillingsins Bobbys Fischer, sem er í fangelsi í Japan. Skáksamband Íslands skoraði á Bush Bandaríkjaforseta í dag að veita honum sakaruppgjöf. 23.7.2004 00:01
Solana fastur fyrir Javier Solana, sem fer með utanríkismál ESB, segir að sambandið muni ekki halda sig frá friðarviðræðum í Mið-Austurlöndum þrátt fyrir að Ísraelsmenn segist ekki treysta þjóðum sambandsins til að koma að þeim. 23.7.2004 00:01
Fugladráp á þjóðvegum Virðingarleysi við umhverfið sést á dauðum fuglum við þjóðvegi landsins. Árekstur fugla við bifreiðar er þriðja stærsta orsök dauða þeirra. Ungar verða helst fyrir bílum. Það hefur minni áhrif á stofnstærð en ef keyrt væri á eldri fugla 23.7.2004 00:01
Kynskiptingar mega ekki giftast Kynskiptingar mega ekki ganga í hjónaband í Flórída, nema þeir hneigist að eigin kyni. Þetta kom í ljós þegar yfirvöld neituðu að staðfesta hjónaband Michaels Kantaras og unnustu hans. Þau sögðu að þar sem Kantaras hefði fæðst sem kona væri hann enn kona þrátt fyrir kynskiptaaðgerðina. 23.7.2004 00:01
Verkfall háseta yfirvofandi Verkfall hjá hásetum á hafrannsóknarskipum er yfirvofandi á mánudag, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Deilt er um yfirvofandi skerðingu sjómannaafsláttar. 23.7.2004 00:01
Hvalveiðum sjálfhætt Hvalveiðum er sjálfhætt þar sem nánast enginn markaður er fyrir afurðirnar lengur, segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. 23.7.2004 00:01
Fannst látinn Maðurinn sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir á fimmtudag og leitað var í gær fannst látinn um klukkan hálfsjö í gærkvöldi. Maðurinn fannst skammt frá sjúkrastöðinni Vogi við Stórhöfða þar sem síðast sást til hans þann 5. júlí síðastliðinn. 23.7.2004 00:01
Margar bensínstöðvar - hátt verð Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir offjárfestingar í bensínstöðvum halda uppi háu eldsneytisverði hér á landi. Samkeppni sé eina meðalið sem dugi á þessa óheillaþróun. 23.7.2004 00:01
Sendimaður í gíslingu Vígamenn tóku egypskan sendimann í gíslingu og kröfðust þess að egypsk stjórnvöld lýstu því yfir að þau myndu ekki senda herlið til Íraks til að styðja bráðabirgðastjórnina. 23.7.2004 00:01
Skilti veldur milljónatjóni Skilti á umferðareyju á Krókhálsi hefur valdið milljónatjóni á bílum sem hafa rekist á það. Skiltið er reist við jafnóðum og það er keyrt niður. 23.7.2004 00:01
Vonbrigði með utanvegaakstur Í sumar hefur orðið nokkuð vart við utanvegaakstur á hálendi landsins og hafa forsvarsmenn í Ferðaklúbbnum 4x4 sent frá tilkynningu af því tilefni þar sem staða mála er hörmuð. 23.7.2004 00:01
Breytingar frumvarpsins samþykktar Breytingar allsherjarnefndar á fjölmiðlafrumvarpinu voru samþykktar við aðra umræðu á Alþingi í gærkvöld með 31 atkvæði stjórnarliða. 28 sátu hjá en fjórir greiddu ekki atkvæði. Þriðja og síðasta umræða hefst nú klukkan tíu og má því búast við að frumvarpið verði endanlega afgreitt síðar í dag. 22.7.2004 00:01
Skýrsla ríkisendurskoðunar rædd Fundur í fjárlaganefnd Alþingis hófst klukkan átta en þar er rætt um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga og fjárhagsvanda framhaldsskólanna. 22.7.2004 00:01
Stöðvaðir á flugvellinum 11. sept. Fjórir af flugræningjunum sem tóku þátt í hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin 11. september 2001 voru stöðvaðir við öryggishlið á flugvelli í Washington-borg fyrr um morguninn hinn örlagaríka dag. Á myndbandi úr eftirlitsmyndavélum sést hvar mennirnir eru skoðaðir nánar eftir að málmleitartæki hafði gefið frá sér viðvörunarhljóð. 22.7.2004 00:01
Ákvörðun um hvalveiðar í dag Í dag verður ákveðið á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Sorrento á Ítalíu hvort 18 ára löngu banni á hvalveiðum í atvinnuskyni verði aflétt samkvæmt tillögu formanns ráðsins, Danans Hendriks Fischers. 22.7.2004 00:01
Cruz kominn til Filippseyja Filippseyski gíslinn, Angelo dela Cruz, kom til síns heim í gærkvöldi og var honum ákaft fagnað á flugvellinum í Manilla á Filippseyjum. Hann kom til Bagdad fyrr í gær eftir að hafa verið látinn laus úr haldi mannræningja í Írak. 22.7.2004 00:01
Vafasamar upplýsingar um vopnaeign Ástralska leyniþjónustan treysti á litlar og vafasamar upplýsingar í mati sínu á hættu af gereyðingavopnaeign Íraka. Þetta er niðurstaða óháðrar rannsóknarnefndar sem kynnt var í morgun og er hún sú sama og í sams konar skýrslum um upplýsingar sem stjórnvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum studdust við í aðdraganda stríðsins í Írak. 22.7.2004 00:01
Börn getin til varahluta? Yfirvöld í Bretlandi ætla að slaka á reglum varðandi það að fólki verði leyft að geta börn í þeirri von að líkamsvefir úr fóstrinu geti hjálpað veiku systkini. Hingað til hefur aðeins verið leyfilegt að skoða fósturvísa til að athuga hvort um erfðagalla sé að ræða hjá fóstrinu. 22.7.2004 00:01
25 féllu og 31 særðist Bandaríski herinn felldi 25 írakska uppreisnarmenn í hörðum bardögum í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í gærkvöld. Sautján Írakar og fjórtán bandarískir hermenn eru sárir eftir bardagana sem stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. 22.7.2004 00:01
Enn lekur olía úr Guðrúnu <span class="frettatexti">Olía er aftur farin að leka upp á yfirborðið úr fjölveiðiskipinu Guðrúnu Gísladóttur, sem liggur á hafsbotni við Noreg, að því er greinir frá í norska blaðinu <i>Lofotposten</i> í dag. Þar segir að þrátt fyrir að olía hafi verð tæmd úr skipinu í byrjun júlí sé hún á ný tekin að berast upp á hafflötinn úr skipinu. </span> 22.7.2004 00:01
Bretar samþykkja stjórnarskrá ESB Evrópumálaráðherra Bretlands, dr. Denis MacShane, er þess fullviss að Bretar samþykki stjórnarskrá Evrópusambandsins þegar hún verður lögð fram í þjóðaratkvæðagreiðslu. 22.7.2004 00:01
Snarpar umræður á Alþingi Snarpar umræður standa nú yfir á Alþingi en þar fer fram þriðja og síðasta umræða um síðustu útgáfu stjórnarflokkanna á fjölmiðlafrumvarpinu. Stjórnarandstæðingar gagnrýna enn stjórnarflokkana fyrir að falla frá þjóðaratkvæðagreiðslu. 22.7.2004 00:01
16 létust í sprengingu í Jemen Sextán manns létust í sprengingu í Jemen í morgun þegar eldur kom upp í búð sem selur sprengiefni og byssupúður. Efnið var geymt í kjallara á fjögurra hæða íbúðarblokk sem jafnaðist við jörðu í sprengingunni. 22.7.2004 00:01
Harrison Ford fékk íslenskan koss Leikarinn heimsþekkti, Harrison Ford, heimsótti Íslands í annað skipti á stuttum tíma á þriðjudaginn. Hann millilenti hér á einkaflugvél sinni á leið til Grikklands. DV gerð fyrri heimsókn leikarans rækileg skil en eins og áður gisti Harrison á 101 hóteli sem virðist hafa stimplað sig inn sem hótelið fyrir stjörnurnar. 22.7.2004 00:01
Með byssukúlu í höfðinu í 8 ár Þrettán ára gömul stúlka frá Afganistan, sem hefur verið með byssukúlu í höfðinu í átta ár, er komin til Japans til að fara í skurðaðgerð. Fatema Safar var skotin í höfuðið í skotárás, stuttu eftir að talíbanar náðu völdum í Afganistan, en faðir hennar lést í árásinni. Safar missti sjón á vinstra auga og þjáist af slæmum höfuðverkjum. 22.7.2004 00:01
Ítalir heimta skýringar Halldórs Væntanlegt er bréf frá ítalska utanríkisráðuneytinu þar sem íslensk stjórnvöld eru krafin skýringa á hátterni yfirvalda í garð Marco Brancaccia barnsföður Snæfríðar dóttur Jóns Baldvins Hannibalsonar 22.7.2004 00:01
Lögreglan lýsir eftir manni Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Eiríki Erni Stefánssyni sem síðast sást við sjúkrastöðina Vog, aðfaranótt mánudagsins 5. júlí. Eiríkur Örn er 48 ára gamall, 186 sentímetrar á hæð, þéttvaxinn og stórbeinóttur. Lögreglan segir hann vera mjög brúnan á hörund og með stutt dökkbrúnt hár sem farið sé að grána. 22.7.2004 00:01
Ísraelsmenn treysta ekki ESB Ísraelsmenn segjast ekki geta treyst Evrópusambandinu í friðarferlinu í Miðausturlöndum eftir að sambandið studdi ályktun gegn Ísrael á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Stjórnvöld í Ísrael funduðu með Javier Solana, utanríkisráðherra Evrópusambandsins, í morgun. 22.7.2004 00:01
Davíð kominn á legudeild Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur verið fluttur á legudeild á Landsspítalanum eftir aðgerð í gær og er líðan hans sögð góð. Davíð var fluttur á bráðadeild Landsspítalans í fyrrinótt vegna gallblöðrubólgu og við rannsókn kom í ljós staðbundið æxli í hægra nýra. 22.7.2004 00:01
Tímamótaskref tekið í dag Búist er við að tímamótaskref verði tekið á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í dag sem miðar að því að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Bandaríkjamenn styðja ásamt Íslendingum, Norðmönnum og Japönum tillögu um að endurskoðun á veiðistjórnunaráætlun verði lokið fyrir næsta ársfund ráðsins. 22.7.2004 00:01
Sveinbjörn áfrýjar ekki Aðalsakborningur í Landssímamálinu ætlar að una dómi sínum en hann var dæmdur til 4 1/2 árs fangelsisvistar. Hinir sakborningarnir þrír hafa allir áfrýjað. 22.7.2004 00:01
Fjölmiðlalögin felld úr gildi Alþingi felldi fjölmiðlalögin úr gildi rétt fyrir hádegi með 32 atkvæðum að lokinni þriðju umræðu málsins. Breytingar allsherjarnefndar á fjölmiðlafrumvarpinu voru fyrst samþykktar við aðra umræðu á Alþingi í gærkvöld með 31 atkvæði stjórnarliða. 28 sátu hjá og fjórir greiddu ekki atkvæði. 22.7.2004 00:01
Gíslar grátbiðja um miskunn Sjö gíslar eru enn í haldi mannræningja í Írak. Myndband með gíslunum sýnir þá grátbiðja mannræningjana um að sýna sér miskunn. 22.7.2004 00:01
Barroso kosinn forseti ESB Fyrrverandi forsætisráðherra Portúgal, hinn 48 ára gamli Jose Manuel Duraou Barroso, verður næsti forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins. Barroso vann meirihluta atkvæða á þingi Evrópusambandsins í Strassborg í morgun. Barroso tekur við af Romano Prodí frá Ítalíu. 22.7.2004 00:01
400 látnir í flóðum á Indlandi Hátt í 400 manns hafa látið lífið í miklum flóðum í héraðinu Hihar á Indlandi síðustu daga. Óttast er að kólerufaraldur kunni að brjótast út í kjölfarið. Herinn er í viðbragðsstöðu í borginni Gauhati í Assam-héraði en þar hafa ár flætt yfir bakka sína. Óttast er að flytja þurfi yfir tvær milljónir borgarbúa á brott. 22.7.2004 00:01
Upplýsingarnar ekki endanlegar Ríkisendurskoðandi og fulltrúar fjármálaráðuneytisins voru boðaðir á fund fjárlaganefndar Alþingis í morgun til að fara yfir skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2003. Formaður fjárlaganefndar segir upplýsingar í skýrslunni ekki vera endanlegar. 22.7.2004 00:01
Meint sniðganga kosningaloforðs Stjórn Bandalags háskólamanna mótmælir harðlega að menntamálaráðherra hafi sniðgengið kosningaloforð um að endurskoða lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna, í samstarfi við hagsmunasamtök endurgreiðenda. 22.7.2004 00:01
Fischer verði gefnar upp sakir Skáksamband Íslands beinir þeim eindregnu tilmælum til forseta Bandaríkjanna að fyrrverandi heimsmeistara í skák, Bobby Fischer, verði gefnar upp sakir og ákærur á hendur honum, fyrir að hafa brotið viðskiptabann Bandaríkjanna gegn Júgóslavíu árið 1992, verði felldar niður. 22.7.2004 00:01