Lögregla getur snúið við 23. júlí 2004 00:01
Nú styttist í að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar verði opnuð almenningi og er von til að þær betrumbætur verði til þess að auka öryggi vegfarenda. Margir hafa hins vegar velt vöngum yfir því hvernig lögreglan færi að því að hafa hendur í hári ökuníðinga sem koma úr gagnstæðri átt. Bilið milli akbrauta er ófært venjulegum lögreglubílum og þyrftu þeir að keyra um langa leið til að komast á milli með skikkanlegum hætti. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í dag. Að sögn Jónas Snæbjörnssonar, umdæmisstjóra hjá Vegagerðinni, hefur verið hugsað fyrir slíku. „Það verða kaflar með 2-3 km millibili þar sem lögreglan getur snúið við. Eins er þá hægt að beina umferð á milli akbrauta ef þarf að loka annarri vegna slyss eða einhvers þess háttar. Ekki er gert ráð fyrir að almenningur notist við leiðirnar, en þær verða lokaðar með keðju eða álíka eins og hefur verið gert sums staðar í Reykjavík,“ segir Jónas. Jónas bætir því við að þessir kaflar verði tilbúnir fyrir opnunina þannig að ljóst er að lögbrjótar munu ekki eiga auðvelt með að komast undan.
Fréttir Innlent Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira