Fischer kom Íslandi á kortið 23. júlí 2004 00:01
Skáksamband Íslands afhendir í dag fulltrúa sendiherra Bandaríkjanna áskorun um að Bandaríkjaforseti náði Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák. Þótt hann sé ekki íslenskur ríkisborgari kemur málið okkur við, segja skákáhugamenn. Skáksambandið segir Fischer hafa verið útlægan frá Bandaríkjunum í tólf ár eftir að yfirvöld ákærðu hann fyrir að brjóta viðskiptabann við Júgóslavíu með því að tefla þar 1992. Fischer hefur verið í fangelsi í vikutíma eftir að hann var handtekinn í Japan á leið til Filippseyja með falsað vegabréf. Yfirvöld í Japan segjast þurfa meiri tíma áður en ákvörðun verði tekin um það hvort hann verði framseldur til Bandaríkjanna. Formleg beiðni hefur borist utanríkisráðuneytinu um aðkomu að málinu. Bæði Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, og Benedikt Höskuldsson, sendifulltrúi í íslenska sendiráðinu í Japan, segja í Morgunblaðinu í dag að málið komi í raun ekki íslenska stjórnkerfinu við þar sem Fischer sé ekki íslenskur ríkisborgari. Björn Ingi segir þó málið til skoðunar í utanríkisráðuneytinu. Hrafn Jökulsson, skákáhugamaður og formaður Hróksins, segir að Fischer hafi gert fleira fyrir Ísland en margir íslenskir ríkisborgarar með því að koma landinu á heimskortið þegar hann sigraði í heimsmeistaraeinvígi við Boris Spasský hér á landi 1972. Fyrir það, og skáksnilld hans, vilji Skáksambandið verðlauna Fischer með því að hvetja til þess að ákærur verði felldar niður gegn honum. Áskorun Skáksambandsins til Bandaríkjaforseta verður afhent fulltrúa sendiherra landsins í bandaríska sendiráðinu klukkan 14 í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Erlent Með töskurnar fullar af marijúana Innlent Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Innlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent Europol og Bandaríkin lýsa eftir úkraínskum tölvuþrjót Erlent Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Innlent Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Innlent Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn Innlent Fleiri fréttir Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Gagnrýnir hæstu ríkisútgjöld sögunnar í fjárlagafrumvarpi Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Reyksprengju kastað inn á pall í Hafnarfirði Verið ættleiddur af Íslendingum Sjá meira