Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Embættismanni rænt í Írak Skæruliðar í Írak tóku í dag háttsettan egypskan embættismann í gíslingu. Þetta er í fyrsta skipti sem erlendum embættismanni er rænt í Írak. 24.7.2004 00:01
Stútungasaga undir beru lofti Þessa dagana standa yfir leiksýningar undir berum himni í Heiðmörkinni. Þar er á ferðinni Stútungasaga sem fjallar á drepfyndinn hátt um Sturlungaöldina og er gert stólpagrín að helstu hetjum þess tíma. Leikhópurinn segist hafa gert sérstakan samning við manninn á efri hæðinni um gott veður allan sýningartímann. 24.7.2004 00:01
Egyptar hvattir til staðfestu Forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi, hvatti Egypta til þess að standa fast á sínu og virða að vettugi hótanir íraskra vígamanna sem halda egypskum sendimanni í gíslingu. 24.7.2004 00:01
Yfirbugaður með veiðiriffil Engan sakaði þegar sérsveitarmenn og lögregla á Akureyri yfirbuguðu mann í gærkvöld sem braust inn í hús á staðnum vopnaður veiðiriffli. Maðurinn var undir áhrifum fíkniefna. 24.7.2004 00:01
Fastar í neti skúrka Stígamót þekkja dæmi um að starfsemi tengd nektardansi jaðri við að vera mansal og í sumum tilvikum telur Rúna Jónsdóttir, talskona Stígamóta, að um raunverulegt mansal hafi verið að ræða. 24.7.2004 00:01
FÍB í mál við tryggingafélögin? Ekki er útilokað að Félag íslenskra bifreiðaeigenda höfði dómsmál gegn tryggingafélögunum vegna ólögmæts samráðs. Áfrýjunarnefnd Samkeppnismála hafnaði kröfu félagsins um að ómerkja úrskurð Samkeppnisráðs þar sem tryggingafélögin sluppu við sektir. Framkvæmdastjóri FÍB segir vinnubrögð samkeppnisyfirvalda í málinu til háborinnar skammar. 24.7.2004 00:01
Engar framfarir án öryggis Efnahagslíf Íraka hefur ekki enn tekið við sér, fimmtán mánuðum eftir fall Saddams Hussein. Áhugi erlendra fjárfesta er til staðar en þeir halda að sér höndum vegna óaldar sem ríkir í landinu. 24.7.2004 00:01
Bush ánægður með skýrsluna George Bush, forseti Bandaríkjanna, lýsir ánægju sinni með skýrslu nefndar um hryðjuverkin 11. september 2001, þótt ríkisstjórn hans sé harðlega gagnrýnd í henni. Skýrslan varpar meðal annars skýrara ljósi en áður á þau hörðu átök sem urðu milli flugræningja og farþega í flugvélinni sem hrapaði í Pennsylvaníu. 24.7.2004 00:01
Betri rútur en áður Það er liðin tíð að úr sér gengnar rútur frá Evrópu séu uppistaða íslenska rútuflotans. Nú eru ferðamenn fluttir um landið hreina á rútum sem menga minna. Nýjustu rúturnar má keyra 75 þúsund kílómetra áður en skipt er um olíu. 24.7.2004 00:01
Sætir gagnrýni þróunarríkja Fulltrúi Íslands í Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO, hefur sætt gagnrýni frá þróunarríkjunum og alþjóðlegum stofnunum fyrir að hundsa ábendingar þeirra um alvarlegar afleiðingar vegna breytinga á tollareglum. Gagnrýnin sögð á misskilningi byggð. 24.7.2004 00:01
Draugakastali í Djúpavík Sex þúsund fermetra síldarverksmiðja, sem var á sínum tíma stærsta steinsteypta hús í Evrópu og miðstöð atvinnulífs á Vestfjörðum, stendur nú eins og draugakastali í Djúpavík á Ströndum. Stöð 2 fór og skoðaði þennan yfirgefna minnisvarða um gullár síldarævintýrsins - sem er reyndar alls ekki líflaus lengur. 24.7.2004 00:01
Skaut úr hreindýrariffli Sérsveitarmeðlimir aðstoðuðu lögregluna á Akureyri við að handtaka vopnaðan mann á föstudagskvöldið. Maðurinn sem er þrítugur að aldri og grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna stefndi til íbúa í Aðalstrætinu til að leita hefnda eftir árás sem hafði átt sér stað á Þórsvellinum fyrr um daginn 24.7.2004 00:01
Málskotsrétturinn frá forseta Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjarnefndar Alþingis, segir í helgarviðtali við Fréttablaðið að ekki eigi að fella synjunarvald forseta samkvæmt 26. grein stjórnarskrár niður án þess að neitt annað komi í staðinn. 24.7.2004 00:01
Missti meðvitund vegna gaseitrunar Tólf ára gamall drengur kom fjögurra ára systur sinni til bjargar þegar hún missti meðvitund vegna metangaseitrunar við bæinn Oddgeirshóla í Hraungerðishreppi um hádegið í gær. Pilturinn færði systur sína undir bert loft en hún missti meðvitund er hún var að leik með kettlingi í fjósinu þar sem eitrunin kom upp. 23.7.2004 00:01
Japanar óvissir um framsal Japanar segjast þurfa meiri tíma áður en ákvörðun verður tekin um hvort Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, verði framseldur til Bandaríkjanna. Þar á Fishcer yfir höfði sér fangelsisvist og fjársektir vegna brots á viðskiptabanni við Júgóslavíu en árið 1992 tefldi Fischer einvígi við Boris Spasský þar í landi. 23.7.2004 00:01
Mannskætt lestarslys í Tyrklandi Að minnsta kosti fjörutíu manns fórust og sextíu slösuðust í lestarslysi í Tyrklandi í morgun. Hraðlest fór þá út af brautarteinum á milli borganna Istanbul og Ankara. Þetta er eitt versta lestarslys í sögu Tyrklands en gagnrýnendur höfðu varað við því að gamlir brautarteinar á þessari leið myndu ekki ráða við nýrri og hraðskreiðari gerðir lesta. 23.7.2004 00:01
Bretar óttast Bakkus Bretar hafa töluverðar áhyggjur af því að óhófleg áfengisneysla og vondir drykkjusiðir séu að færast í vöxt í Bretlandi. Tony Blair, forsætisráðherra landsins, segir breskt samfélag þurfa að koma í veg fyrir að fyllerí verði nýtt þjóðareinkenni Breta. 23.7.2004 00:01
Kerry lofar auknu öryggi John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, hefur heitið því að bæta verulega úr öryggismálum í Bandaríkjunum, verði hann kjörinn forseti í haust. 23.7.2004 00:01
Ómari enn hótað Hótanir og þrýstingur gegn Ómari Ragnarssyni vegna umfjöllunnar hans um virkjanamálin í Sjónvarpinu héldu áfram eftir að ljóst var að hann væri að skrifa bókina „Kárahnjúkar með og á móti“. 23.7.2004 00:01
Lögregla getur snúið við Nú styttist í að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar verði opnuð almenningi og er von til að þær betrumbætur verði til þess að auka öryggi vegfarenda. Margir hafa hins vegar velt vöngum yfir því hvernig lögreglan færi að því að hafa hendur í hári ökuníðinga sem koma úr gagnstæðri átt. 23.7.2004 00:01
Morð er ávísun á geðhjálp Talið er að um 20 geðsjúkir séu á götunni og passi hvergi inn í kerfið. Gjarnan er um að ræða hættulegt fólk sem fær ekki aðhlynningu. Móðir sem DV ræddi við á son sem á við aðsóknarkennd eða paranóju að stríða. Honum hefur verið vísað frá geðdeild á þeim forsendum að hann sé ekki nógu veikur. 23.7.2004 00:01
Jólasveinaþing í Kaupmannahöfn Hundrað og sextíu jólaveinar alls staðar að úr heiminum eru samankomnir á jólasveinaþingi í Kaupmannahöfn. Þingið er það 41. í röðinni og fer fram í skemmtigarðinum á Bakkanum svonefnda. Sveinkarnir koma m.a. frá Bandaríkjunum, Venesúela, Japan og Grænlandi. 23.7.2004 00:01
Ekkert spurst til mannsins Ekkert hefur spurst til Eiríks Arnar Stefánssonar sem lögregla lýsti eftir í gær. Síðast sást til ferða hans við sjúkrastöðina Vog 5. júlí síðastliðinn. Lögreglu bárust upplýsingar um hvarf Eiríks 19. júlí, eða heilum tveim vikum eftir að síðast sást til hans. 23.7.2004 00:01
Sjálfsvíg í Japan aldrei fleiri Sjálfsvíg í Japan hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári en þá tóku tæplega 35 þúsund manns líf sitt. Tæpur helmingur, eða 45%, tóku hina örlagaríku ákvörðun vegna slæms heilsufars og ríflega fjórðungur vegna fjárhagsvandræða. Síðarnefnda ástæðan er ört vaxandi orsök sjálfsmorða í landinu. </font /> 23.7.2004 00:01
8 hæða bygging hrundi Átta hæða bygging hrundi til grunna í verslunarhverfi í miðborg Maníla, höfuðborgar Filippseyja, í morgun. Með snarræði tókst að rýma bygginguna eftir að hún fór að hallast. Húsið er einugis fimm ára gamalt og mesta mildi þykir að ekki fór verr. 23.7.2004 00:01
Arabískir málaliðar gera árásir Uppreisnarmenn í Vestur-Súdan segja að arabískir málaliðar hafi gert árásir í Darfúr-héraði með stuðningi súdönsku ríkisstjórnarinnar. Þeir segja að ríkisstjórnin í Súdan hafi veitt yfir sex þúsund málaliðum stöðu í lögreglunni og gefið þeim einkennisbúninga og vopn. 23.7.2004 00:01
ESB hættir ekki friðarviðræðum Javier Solana, utanríkisráðherra Evrópusambandsins, segir að sambandið muni ekki draga sig út úr friðarviðræðum í Miðausturlöndum, hvort sem Ísrael líki það betur eða verr. Ísraelar eru æfir út í sambandið fyrir að hafa stutt ályktun á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að öryggismúr Ísraela í Palestínu skuli rifinn. 23.7.2004 00:01
Mikill óhugur í Búlgaríu Lík af tveimur Búlgörum sem rænt var í Írak eru fundin. Mikill óhugur hefur slegið um sig í Búlgaríu en hryðjuverkasamtök hafa hótað landinu árásum. 23.7.2004 00:01
Fischer kom Íslandi á kortið Skáksamband Íslands afhendir í dag fulltrúa sendiherra Bandaríkjanna áskorun um að Bandaríkjaforseti náði Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistara í skák. Þótt hann sé ekki íslenskur ríkisborgari kemur málið okkur við, segja skákáhugamenn. 23.7.2004 00:01
Fullt samráð við BHM Menntamálaráðherra segir að fullt samráð verði haft við Bandalag háskólamanna og aðra hagsmunaaðila við endurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þeir fái þó ekki fulltrúa í nefndinni sem endurskoðar málefni Lánasjóðsins. 23.7.2004 00:01
Fuglaflensa í Tælandi Óttast er að fuglaflensa hafi enn á ný blossað upp í Tælandi. Grunur leikur á að tvö börn hafi smitast af flensunni sem er banvæn. Börnin koma frá Nong Khai héraði við landamæri Laos. 23.7.2004 00:01
Þjóðaratkvæða- greiðsla möguleg Forseti Íslands getur knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu þótt Alþingi hafi fellt fjölmiðlalögin úr gildi að mati Sigurðar Líndals, lagaprófessors. Hann metur það svo að stjórnarþingmenn hafi ekki brotið gegn stjórnarskránni með því að fella fjölmiðlalögin úr gildi, eins og varaformaður Frjálslynda flokksins hélt fram í gær. 23.7.2004 00:01
Bylgjan vinsælasta útvarpsstöðin Bylgjan er vinsælasta útvarpsstöð landsins og fer í fyrsta sinn yfir Rás 2 samkvæmt nýrri útvarpskönnun Gallups. Stöðvarnar hafa verið mjög jafnar í útvarpskönnunum undanfarið ár. 23.7.2004 00:01
Engin vatnaskil í hvalveiðimálum Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, telur að niðurstöður á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins boði engin sérstök vatnaskil í baráttunni við að fá hvalveiðar í atvinnuskyni leyfðar. 23.7.2004 00:01
Beiðni Khodorkovskys hafnað Rússneskir dómarar höfnuðu beiðni lögmanna milljarðamæringsins Mikhails Khodorkovskys um að ákæruatriði vegna yfirtöku hans á Yukos olíufélaginu fyrir 10 árum yrðu felld niður. Dómarar segja að fara þurfi mun betur yfir málið áður en hægt sé að láta það niður falla. Khodorkovsky hefur nú setið í fangelsi frá því í október. 23.7.2004 00:01
Kynlífsfræðsla á meðal nemenda Kynlífsfræðsla þar sem eldri nemendur kenna þeim yngri er vinsæl á meðal nemenda í Bretlandi. Skólar hafa brugðið á það ráð að láta sextán og sautján ára gamla nemendur fræða þrettán og fjórtán ára gamla nemendur um kynlíf. 23.7.2004 00:01
Flugfélag Íslands hækkar fargjöld Flugfélag Íslands mun hækka almenn fargjöld í innanlandsflugi um 3% að meðaltali frá og með 2. ágúst nk. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér rétt áðan og er ástæða hækkunarinnar sögð vera miklar hækkanir á eldsneytisverði. 23.7.2004 00:01
36 manns krömdust til dauða Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns krömdust til dauða þegar eldsneytistrukkur rann út af þjóðvegi og inn í mannmergð á markaðstorgi í Nígeríu í dag. Dekk sprakk á bílnum og rakst hann á þrjá kyrrstæða bíla áður en hann lenti á fólkinu. 23.7.2004 00:01
Á hjólabretti á þýskri hraðbraut Þýska lögreglan stöðvaði þrjátíu og átta ára gamlan Svía á hraðbraut, nokkur hundruð kílómetra suðvestur af höfuðborginni Berlín, þar sem hann var á hjólabretti. Svíinn sagðist hafa verið á ferðalagi um Balkanlöndin og að hann væri orðinn svo blankur að hann ætti bara tvær evrur eftir. 23.7.2004 00:01
5 ára fangelsi fyrir e-töflu smygl Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 26 ára konu í fimm ára fangelsi fyrir að reyna að smygla rúmlega 5 þúsund e-töflum inn í landið. Konan, sem heitir Fanta Sillah og er frá Afríkuríkinu Síerra Leóne, var stöðvuð í Leifsstöð þann 10. júní sl. og fundust töflurnar í bakpoka hennar. 23.7.2004 00:01
Hugsanleg hryðjuverk í rannsókn Bandaríska alríkislögreglan FBI tilkynnti í dag að hún væri að rannsaka óstaðfestar upplýsingar um að fremja eigi hryðjuverk á ráðstefnu Demókrataflokksins í Boston í næstu viku. 23.7.2004 00:01
Stjórnvöld sökuð um morð Tyrknesk stjórnvöld sæta harðri gagnrýni eftir lestarslys sem kostaði 36 manns lífið í fyrrakvöld. Stjórnin er sökuð um kæruleysi fyrir að hafa ekki tekið mark á viðvörunum um að lestarkerfi landsins, sem er komið til ára sinna, réði ekki við nýju hraðlestina sem fór út af spori sínu á miklum hraða í fyrrakvöld. 23.7.2004 00:01
Samtök ferðaþjónustunnar óánægð Samtök ferðaþjónustunnar hafa óskað eftir því við Brunamálastofnun að kannað verði hvernig standi á því að gististaðir með slæmar brunavarnir séu með starfsleyfi. Kom þetta fram á fundi samtakanna með brunamálastjóra í dag. 23.7.2004 00:01
Ráðamenn dregnir til ábyrgðar Réttarhöld sem hafin eru yfir tveimur fyrrum ráðamönnum í gamla Austur-Þýskalandi eru talin þau síðustu þar sem ráðamenn eru dregnir til ábyrgðar vegna dauða fólks sem var skotið til bana þegar það reyndi að flýja til Vestur-Þýskalands fyrir lok Kalda stríðsins. 23.7.2004 00:01
Björgunarsveitarmenn leita við Vog Tuttugu björgunarsveitarmenn leita nú Eiríks Arnar Stefánssonar sem sást síðast við sjúkrastöðina Vog 5. júlí síðastliðinn. Leit lögreglu að honum hefur enn engan árangur borið og var aðstoðar Landsbjargar óskað í dag. Björgunarsveitarmennirnir munu leita í nágrenni Vogs til að byrja með. 23.7.2004 00:01