Fleiri fréttir

Árásir í Írak

Bandaríski flugherinn gerði árás á uppreisnarmenn í borginni Fallujah í Írak í morgun. Að sögn sjónarvotta særðust fimm óbreyttir borgarar í árásinni, þar á meðal börn. Þá létust tveir bandarískir hermenn í sprengingu í morgun nálægt borginni Samarra og Íraki var skotinn til bana í Mósul en hann starfaði fyrir Bandaríkjaher.

Fordæma óleyfilegan akstur

Fréttir undanfarnar vikur af náttúruspjöllum vegna óleyfilegs utanvegaaksturs eru mikil vonbrigði að mati ferðaklúbbsins 4x4.

Ísrek fyrir vestan

Meira er af hafís úti fyrir ströndum vestfjarða nú en venjulega á þessum tíma árs og eru ísflekarnir næstum 50 sjómílur frá Straumnesi.

Lítil áhrif á umhverfið

Enginn þeirra fjögurra kosta sem koma til greina undir vegarstæði fyrirhugaðs Gjábakkavegar er talinn hafa umtalsverð umhverfisáhrif. Þetta er niðurstaða matsskýrslu sem Vegagerðin lét framkvæma og hefur sent Skipulagsstofnun til meðferðar.

Öruggast að hafa börnin góð

Í Öryggishandbók fyrir ferðalanga sem nýlega kom út er farið yfir helstu öryggisatriði og hluti sem komið geta upp á ferðalögum fólks um landið. Útgáfan er sögð koma eigendum tjaldavagna og fellihýsa að sérstökum notum.

Langur biðtími á slysadeild

"Ég hef starfað hér í mörg ár og að undanförnu hefur álagið verið með almesta móti," segir Ólafur R. Ingimarsson, læknir á bráða- og slysadeild Landspítala- háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Biðtími fólks sem þangað sækir með eymsl og meiðsl er með lengsta móti og ekki óvenjulegt að bíða þurfi í allt að fjórar klukkustundir þegar verst lætur

Þjóðarmorð stunduð í Súdan

Bandaríska þingið segir að þjóðarmorð séu stunduð í Darfúr-héraði í Súdan. Þingmenn hafa hvatt alþjóðasamfélagið til að grípa til aðgerða.

Vilja lög um eignarhald

Hópur ítalskra stjórnmálamanna þrýstir nú á um það innan Evrópusambandsins að sett verði lög eða reglur um eignarhald á fjölmiðlum og eru þar sérstaklega að vísa til umsvifa Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu

Ólíkt mataræði

Norðmenn eru reglusamastir, Svíar nútímalegastir, Finnar fastheldnastir og Danir félagslyndastir samkvæmt nýrri könnun sem gerð hefur verið á matarvenjum Norðurlandabúa.

Litríkir krakkar skemmta sér

Litríkir og hugmyndaríkir krakkar fögnuðu sumrinu, lífinu og tilverunni í Reykjavík í dag. Þarna voru á ferðinni fimmtíu fötluð börn sem hafa öll tekið þátt í leikjanámskeiðum Íþrótta- og tómstundaráðs í sumar.

Sambýlismaðurinn segir ekkert

Fyrrum sambýlismaður og barnsfaðir Sri Rhamawatis, þriggja barna móður sem ekkert hefur spurst til frá því aðfararnótt 4. júlí, hefur enn ekki tjáð sig við lögreglu um atburði næturinnar. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá sjötta júlí.

Dæmdur fyrir ofsóknir

Sonur Slobodans Milosevic hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi í Serbíu fyrir að hóta pólitískum andstæðingi sínum með vélsög. Óvíst er þó hvort hann sitji refsinguna nokkurn tíma af sér þar sem hann er flýði til Rússlands um það leyti sem faðir hans hrökklaðist af forsetastóli í því sem þá hét Júgóslavía.

Þunguð kona dæmd í 5 ára fangelsi

Barnshafandi vændiskona frá Síerra Leóne var dæmd í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Konan, sem hélt fram sakleysi sínu fyrir dómi, var tekin í Leifsstöð með um 5 þúsund e-töflur í bakpoka.

Fjársvelta Gæsluna af ásetningi

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, segir stjórnvöld fjársvelta Landhelgisgæsluna af ásetningi. Hann segir óviðunandi að það sé eitt, og stundum ekkert, varðskip á sjó.

Myndi enda í þrátefli

Forseti Íslands getur knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu þótt Alþingi hafi fellt fjölmiðlalögin úr gildi, að mati Sigurðar Líndals lagaprófessors. Sú ákvörðun myndi þó enda í þrátefli með ófyrirsjáanlegum endi.

Þroskaheftur eftir þrjá áratugi

Tæpum þremur áratugum eftir að Walter Bell var fyrst lokaður inni á dauðadeild í fangelsi í Texas hefur hann verið úrskurðaður þroskaheftur. Þar með aukast líkur á því að hann verði ekki tekinn af lífi.

Slá skjaldborg um Fischer

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, og Hrafn Jökulsson, varaforseti, fóru í gær á fund í bandaríska sendiráðinu til að ræða mál Bobby Fischers sem var fyrir skemmstu handtekinn í Japan. Búist er við að hann verði framseldur til Bandaríkjanna.

Þjóðverjar drekka mestan bjór

Þjóðverjar drekka mestan bjór Evrópubúa en hver Þjóðverji drekkur að meðaltali 120 lítra af bjór árlega. Þjóðverjum tókst því að skjóta Bretum ref fyrir rass en hver Breti drekkur rétt rúmlega hundrað lítra á ári samkvæmt nýrri evrópskri markaðskönnun.

Skáksambandið berst fyrir Fischer

Íslenska utanríkisráðuneytið hefur rætt við það japanska og komið á framfæri áhyggjum sínum af málefnum skáksnillingsins Bobbys Fischer, sem er í fangelsi í Japan. Skáksamband Íslands skoraði á Bush Bandaríkjaforseta í dag að veita honum sakaruppgjöf. 

Solana fastur fyrir

Javier Solana, sem fer með utanríkismál ESB, segir að sambandið muni ekki halda sig frá friðarviðræðum í Mið-Austurlöndum þrátt fyrir að Ísraelsmenn segist ekki treysta þjóðum sambandsins til að koma að þeim.

Fugladráp á þjóðvegum

Virðingarleysi við umhverfið sést á dauðum fuglum við þjóðvegi landsins. Árekstur fugla við bifreiðar er þriðja stærsta orsök dauða þeirra. Ungar verða helst fyrir bílum. Það hefur minni áhrif á stofnstærð en ef keyrt væri á eldri fugla

Kynskiptingar mega ekki giftast

Kynskiptingar mega ekki ganga í hjónaband í Flórída, nema þeir hneigist að eigin kyni. Þetta kom í ljós þegar yfirvöld neituðu að staðfesta hjónaband Michaels Kantaras og unnustu hans. Þau sögðu að þar sem Kantaras hefði fæðst sem kona væri hann enn kona þrátt fyrir kynskiptaaðgerðina.

Verkfall háseta yfirvofandi

Verkfall hjá hásetum á hafrannsóknarskipum er yfirvofandi á mánudag, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Deilt er um yfirvofandi skerðingu sjómannaafsláttar. 

Hvalveiðum sjálfhætt

Hvalveiðum er sjálfhætt þar sem nánast enginn markaður er fyrir afurðirnar lengur, segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.

Fannst látinn

Maðurinn sem Lögreglan í Reykjavík lýsti eftir á fimmtudag og leitað var í gær fannst látinn um klukkan hálfsjö í gærkvöldi. Maðurinn fannst skammt frá sjúkrastöðinni Vogi við Stórhöfða þar sem síðast sást til hans þann 5. júlí síðastliðinn.

Margar bensínstöðvar - hátt verð

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir offjárfestingar í bensínstöðvum halda uppi háu eldsneytisverði hér á landi. Samkeppni sé eina meðalið sem dugi á þessa óheillaþróun.

Sendimaður í gíslingu

Vígamenn tóku egypskan sendimann í gíslingu og kröfðust þess að egypsk stjórnvöld lýstu því yfir að þau myndu ekki senda herlið til Íraks til að styðja bráðabirgðastjórnina.

Skilti veldur milljónatjóni

Skilti á umferðareyju á Krókhálsi hefur valdið milljónatjóni á bílum sem hafa rekist á það. Skiltið er reist við jafnóðum og það er keyrt niður.

Vonbrigði með utanvegaakstur

Í sumar hefur orðið nokkuð vart við utanvegaakstur á hálendi landsins og hafa forsvarsmenn í Ferðaklúbbnum 4x4 sent frá tilkynningu af því tilefni þar sem staða mála er hörmuð.  

Breytingar frumvarpsins samþykktar

Breytingar allsherjarnefndar á fjölmiðlafrumvarpinu voru samþykktar við aðra umræðu á Alþingi í gærkvöld með 31 atkvæði stjórnarliða. 28 sátu hjá en fjórir greiddu ekki atkvæði. Þriðja og síðasta umræða hefst nú klukkan tíu og má því búast við að frumvarpið verði endanlega afgreitt síðar í dag.

Skýrsla ríkisendurskoðunar rædd

Fundur í fjárlaganefnd Alþingis hófst klukkan átta en þar er rætt um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga og fjárhagsvanda framhaldsskólanna.

Stöðvaðir á flugvellinum 11. sept.

Fjórir af flugræningjunum sem tóku þátt í hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin 11. september 2001 voru stöðvaðir við öryggishlið á flugvelli í Washington-borg fyrr um morguninn hinn örlagaríka dag. Á myndbandi úr eftirlitsmyndavélum sést hvar mennirnir eru skoðaðir nánar eftir að málmleitartæki hafði gefið frá sér viðvörunarhljóð.

Ákvörðun um hvalveiðar í dag

Í dag verður ákveðið á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Sorrento á Ítalíu hvort 18 ára löngu banni á hvalveiðum í atvinnuskyni verði aflétt samkvæmt tillögu formanns ráðsins, Danans Hendriks Fischers.

Cruz kominn til Filippseyja

Filippseyski gíslinn, Angelo dela Cruz, kom til síns heim í gærkvöldi og var honum ákaft fagnað á flugvellinum í Manilla á Filippseyjum. Hann kom til Bagdad fyrr í gær eftir að hafa verið látinn laus úr haldi mannræningja í Írak.

Vafasamar upplýsingar um vopnaeign

Ástralska leyniþjónustan treysti á litlar og vafasamar upplýsingar í mati sínu á hættu af gereyðingavopnaeign Íraka. Þetta er niðurstaða óháðrar rannsóknarnefndar sem kynnt var í morgun og er hún sú sama og í sams konar skýrslum um upplýsingar sem stjórnvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum studdust við í aðdraganda stríðsins í Írak.

Börn getin til varahluta?

Yfirvöld í Bretlandi ætla að slaka á reglum varðandi það að fólki verði leyft að geta börn í þeirri von að líkamsvefir úr fóstrinu geti hjálpað veiku systkini. Hingað til hefur aðeins verið leyfilegt að skoða fósturvísa til að athuga hvort um erfðagalla sé að ræða hjá fóstrinu.

25 féllu og 31 særðist

Bandaríski herinn felldi 25 írakska uppreisnarmenn í hörðum bardögum í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks í gærkvöld. Sautján Írakar og fjórtán bandarískir hermenn eru sárir eftir bardagana sem stóðu yfir í nokkrar klukkustundir.

Enn lekur olía úr Guðrúnu

<span class="frettatexti">Olía er aftur farin að leka upp á yfirborðið úr fjölveiðiskipinu Guðrúnu Gísladóttur, sem liggur á hafsbotni við Noreg, að því er greinir frá í norska blaðinu <i>Lofotposten</i> í dag. Þar segir að þrátt fyrir að olía hafi verð tæmd úr skipinu í byrjun júlí sé hún á ný tekin að berast upp á hafflötinn úr skipinu. </span>

Bretar samþykkja stjórnarskrá ESB

Evrópumálaráðherra Bretlands, dr. Denis MacShane, er þess fullviss að Bretar samþykki stjórnarskrá Evrópusambandsins þegar hún verður lögð fram í þjóðaratkvæðagreiðslu. 

Snarpar umræður á Alþingi

Snarpar umræður standa nú yfir á Alþingi en þar fer fram þriðja og síðasta umræða um síðustu útgáfu stjórnarflokkanna á fjölmiðlafrumvarpinu. Stjórnarandstæðingar gagnrýna enn stjórnarflokkana fyrir að falla frá þjóðaratkvæðagreiðslu.

16 létust í sprengingu í Jemen

Sextán manns létust í sprengingu í Jemen í morgun þegar eldur kom upp í búð sem selur sprengiefni og byssupúður. Efnið var geymt í kjallara á fjögurra hæða íbúðarblokk sem jafnaðist við jörðu í sprengingunni.

Harrison Ford fékk íslenskan koss

Leikarinn heimsþekkti, Harrison Ford, heimsótti Íslands í annað skipti á stuttum tíma á þriðjudaginn. Hann millilenti hér á einkaflugvél sinni á leið til Grikklands. DV gerð fyrri heimsókn leikarans rækileg skil en eins og áður gisti Harrison á 101 hóteli sem virðist hafa stimplað sig inn sem hótelið fyrir stjörnurnar.

Með byssukúlu í höfðinu í 8 ár

Þrettán ára gömul stúlka frá Afganistan, sem hefur verið með byssukúlu í höfðinu í átta ár, er komin til Japans til að fara í skurðaðgerð. Fatema Safar var skotin í höfuðið í skotárás, stuttu eftir að talíbanar náðu völdum í Afganistan, en faðir hennar lést í árásinni. Safar missti sjón á vinstra auga og þjáist af slæmum höfuðverkjum.

Ítalir heimta skýringar Halldórs

Væntanlegt er bréf frá ítalska utanríkisráðuneytinu þar sem íslensk stjórnvöld eru krafin skýringa á hátterni yfirvalda í garð Marco Brancaccia barnsföður Snæfríðar dóttur Jóns Baldvins Hannibalsonar

Sjá næstu 50 fréttir