Skaut úr hreindýrariffli 24. júlí 2004 00:01
Vopnaður maður braust inn í tómt hús í Aðalstrætinu á Akureyri á föstudagskvöldið, hleypti endurtekið skotum úr veiðiriffli utan húss og var handtekinn af lögreglunni eftir klukkutíma langt umsátur. Engan sakaði við atburðinn en maðurinn, sem er á þrítugsaldri, er talinn hafa verið undir áhrifum fíkniefna þegar atvikið átti sér stað. Lögreglunni á Akureyri barst tilkynning um ferðir mannsins rúmum klukkutíma fyrir handtökuna eða klukkkan 21.37. Talið var að hinn vopnaði stefndi á ákveðið hús í Aðalstrætinu til að útkljá óuppgert mál við aðila sem þar býr. Lögreglan hafði gert viðeigandi ráðstafanir í Aðalstrætinu, lokað götunni og beint fólki frá hættusvæðinu. Fríður Leósdóttir, eigandi ísbúðarinnar Brynju, sem staðsett er í Aðalstrætinu, segir lögregluna hafa beðið fólk um að yfirgefa ísbúðina hljóðlega þegar maðurinn var ennþá laus. Lögreglan á Akureyri naut dyggrar aðstoðar sérsveitarmeðlima ríkislögreglustjóra sem staðsettir eru á Akureyri en dró til baka beiðni um aðstoð sveitarinnar í Reykjavík eftir að hafa handtekið manninn. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins höfðu menn sem tengdust húsráðanda í Aðalstrætinu ráðist á hinn handtekna á Þórsvellinum fyrr á föstudeginum og var hinn vopnaði því í hefndarhug. Skotvopnið sem maðurinn hafði undir höndum var stolið og samkvæmt heimildum stal maðurinn vopninu frá fósturföður sínum. Þarna var á ferðinni kröftugur hreindýrariffill sem var geymdur eftir settum vopnalögum í læstum hirslum. Maðurinn sem var handtekinn á föstudagskvöldið hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Hann var yfirheyrður í gærkvöld en ekki var ljóst hver framvindan í málinu yrði þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira