Uppgjör: FH - Valur 1-1 | FH mistókst að komast á toppinn Árni Jóhannsson skrifar 23. júní 2026 21:07 FH getur komist aftur á topp Bestu deildar kvenna með sigri í kvöld. Guðmundur/Vísir FH mistókst að komast á topp Bestu deildar kvenna í knattspyrnu þar sem þær gerðu jafntefli við Val fyrr í kvöld. Heimakonur munu naga sig í handarbökin því þær fengu færin en Tinna Brá markvörður Vals var í hörkuformi. Leikar enduðu 1-1 í Kaplakrika. FH hefði ekki getað beðið um betri byrjun því þær komust yfir á annarri mínútu leiksins. Andrea Rán framkvæmdi hornspyrnu og sendi boltann á fjærstöng. Boltinn var skallaður fyrir og það myndaðist darraðadans og boltinn fór í stöng, í varnarmann Vals og svo barst hann á Ídu Marín Hermannsdóttur sem dúndraði boltanum í netið. FH tók völdin á vellinum og skapaði sér fullt af færum. Þeim voru hins vegar mjög mislagðar fætur ásamt því að Tinna Brá Magnúsdóttir var í miklu stuði í markinu. FH átti mjög auðvelt með að komast inn í teig Valskvenna en færin eins og áður segir voru virkilega vannýtt. Það var ekki mikið í kortunum fyrir Valskonur en þær nýttu sér það til fulls þetta eina færi sem þær fengu í fyrri hálfleik. Á 38. mínútu gerði Andrea Rán sig seka um að vera of værukær með boltann fyrir framan eigin teig. Sonja Björg vann boltann og kom honum fyrir. Boltinn barst á Nadíu Atladóttur sem var ein hægra megin við vítapunktinn og setti hann glæsilega í fjærhornið með innanfótar spyrnu. Ekki var það verðskuldað en nýtingin á færinu til fyrirmyndar. Gengið var til hálfleiks í jafnri stöðu og FH súrara liðið. Seinni háfleikur byrjaði fjörlega en Ída Marín átti skot í stöngina og hélt maður að það gæti ekki annað verið en að FH myndi koma einu marki að í það minnsta. Það gerðist ekki en FH átti eftir að tökunum á leiknum. Heimakonur áttu mýmörg færi í öllum regnbogans litum og ef það var ekki Tinna Brá sem varði þá var boltanum spyrnt framhjá úr dauðafærum. Valskonur náðu í smá kraft í lok leiks og þjörmuðu að FH-ingum án þess að skapa nóg af færum. Leikurinn endaði því 1-1 og FH getur verið mjög pirrað með það hvernig farið var með færi og stöður. Atvik leiksins Ég ætla að velja hér eina af markvörslunum sem Tinna Brá átti í dag. Hún gerðist á 55. mínútu. Nia Christopher fékk þá boltann á markteigslínunni, alein, náði að koma honum fyrir sig og lét skotið ríða af. Tinna Brá nýtti alla sína sentimetra til að slá boltann í horn. Stjörnur og skúrkar Langbesti leikmaður vallarins var markvörður Vals Tinna Brá Magnúsdóttir. Hún varði níu skot í dag og greip vel inn í þegar á þurfti að halda. Hún sagði í viðtali við blaðamann eftir leik að það hafi verið allt í lagi að standast orrahríðina sem var á mark Vals. Hún hafi verið algjörlega róleg og nefndi einnig að stigið sem þær fengu hafi verið gríðarsterkt. Tinna Brá Magnúsdóttir átti frábæran dag.Vísir / Diego Skúrkarnir verða síðan að vera sóknarmenn FH, sem voru margir, sem nýttu ekki nema eitt færi í dag. Færin voru mjög góð sem fóru forgörðum. Umgjörð og stemmning Kaplakriki skartaði sínu fegursta, umgjörðin til fyrirmyndar og þeir áhorfendur sem létu sjá sig létu vel í sér heyra. Dómarinn Hreinn Magnússon átti ekki í miklum erfiðleikum í dag. Þægilegur leikur að dæma og ekki mikið af vafaatriðum. Besta deild kvenna FH Valur