Innlent

Stöðvuðu ferða­menn sem reyndust ekkert grun­sam­legir

Freyja Þórisdóttir skrifar
Eigandi verslunarinnar sagði í samtali við Vísi að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem þjófar létu greipar sópa í versluninni.
Eigandi verslunarinnar sagði í samtali við Vísi að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem þjófar létu greipar sópa í versluninni.

Lögreglan á Austurlandi stöðvaði hóp erlendra ferðamanna á leið til Egilsstaða í gær þar sem lögreglu höfðu borist ábendingar um þar væri á ferð hópurinn sem hefði farið ránshendi um verslun í Skaftafelli. Sá hópur reyndist aftur á móti ekki hafa neitt þýfi meðferðis.

Fréttirnar um stuld í Freysnesi í Skaftafelli bárust eins og eldur um sinu austur um land og hafa margir tekið sig til inni á íbúahópum á netinu og deilt myndum af bílnúmerum og bifreiðum sem fólk telur vera hina grunuðu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Lögreglan skrifar nú á Facebook að hún hafi stöðvar þrjú ökutæki vegna málsins en að ekkert hafi bent til þess að þar væru á ferð meintir þjófar.

„Lögreglan birti svo tilkynningu á Facebook í dag þar sem sagði að lögreglan á Austurlandi eftirgrennslan. Þrjú ökutæki voru stöðvuð af lögreglu seinnipartinn í gær vegna þessa máls í umdæminu. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar, meðal annars myndir úr eftirlitskerfi verslunarinnar, er ekkert sem bendir til sektar þeirra er í ökutækjunum voru,“ skrifar lögreglan á Austurlandi á samfélagsmiðla.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að lögreglan birsti færslu sína á Facebook.  Í upprunalegri frétt var haft eftir Austurfrétt að ekkert benti til sektar hinna meintu Freysnesþjófa, en réttar er að segja að ekkert benti til sektar þeirra ferðamanna sem lögreglan á Austurlandi stöðvaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×