Krílaeggið er nýjasta páskaeggið frá Freyju Freyja 4. apríl 2025 12:51 „Sælgætisgerðin Freyja var frumkvöðull að því að bæta við sælgæti í súkkulaðiskelina á íslenskum markaði," segir Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri sælgætisgerðarinnar Freyju. Í ár er nýjungin Krílaegg Íslensk páskaegg eru órjúfanlegur partur af páskahaldi landsmanna. Páskahefðir Íslendinga eru í stöðugri þróun og vöruúrvalið þróast í takt við breytingar. Hefðirnar í kringum páskaeggin eru alveg jafn mikil upplifun og að neyta sjálfra eggjanna. „
Hjá fjölskyldum er undirbúningurinn stór partur af upplifuninni, hvort sem það er biðin, að undirbúa ratleik eða finna góðan felustað,“ segir Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri sælgætisgerðarinnar Freyju. „Hjá öðrum er páskaeggjasmakk með vinum og vinnufélögum fyrir sjálfa páskana orðið vinsælt, svo getur komið upp mjög tilfinningalega þrungin umræða í kringum hvernig skuli opna páskaegg.“ Smekkur landsmanna er í stöðugri þróun segir Pétur. „Sælgætisgerðin Freyja var frumkvöðull að því að bæta við sælgæti í súkkulaðiskelina á íslenskum markaði. Þegar Freyju Rísegg leit dagsins ljós árið 2005 var það algjörlega nýtt. Núna sjáum við árlega mikla aukningu í sölu á páskaeggjum með sælgæti í súkkulaðiskelinni og koma nýjungar í þeim efnum á hverju ári.“ Málshátturinn er þó sú hefð sem hefur haldist nánast óbreytt frá upphafi en Íslendingar leyfa sér að láta bragðið ráða för við val á páskaeggi. „Páskarnir skipa stóran part af starfsemi okkar hjá Freyju, í aðdraganda er alltaf mikið líf og fjör hér innanhúss enda er hlutverk okkar að skapa bragðgóðar íslenskar minningar með þjóðinni.“ Nýjungin í ár frá Freyju er Krílaegg. Súkkulaðiskelin er fyllt með litríkum súkkulaðiperlum en eggið sjálft er fyllt með Freyju sælgæti og málshætti. Óþreytandi bjartsýni – en ekki gott að bíða of lengi „Þjóðarsálin hjá okkur Íslendingum er mjög nýjungagjörn og við erum það líka hér í Freyju þrátt fyrir að halda fast í ákveðnar hefðir og framleiðsluaðferðir, þá þykir okkur virkilega gaman að þróa og setja á markað ný páskaegg.“ Í ár er nýjungin frá Freyju Krílaegg. „Það er lítið egg á fæti sem er ævintýralega sætt. Súkkulaðiskelin er fyllt með litríkum súkkulaðiperlum og er eggið sjálft að sjálfsögðu fyllt með Freyju sælgæti og málshætti. Þetta er fyrsta litla eggið á fæti þar sem súkkulaðiskelin er með sælgæti. Krílaeggið er tilvalið fyrir páskaeggjaleit, fyrir þá sem vilja taka forskot á páskasæluna eða einfaldlega til þess að njóta í hófi.“ Freyja er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi en hún var sett á fót árið 1918. Freyja er elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi en hún var stofnuð af Íslendingum sem voru fullir af óþreytandi bjartsýni árið 1918 á sögulegum en mjög krefjandi tíma. „Á þessum tíma var Ísland að öðlast sjálfstæði frá Danmörku, Spænska veikin gekk yfir Reykjavík, fyrri heimsstyrjöldinni var að ljúka og ofan á allt gaus ein stærsta eldstöð landsins, Katla. Þetta lýsir vel þjóðarsálinni, að láta sér detta í hug að setja á fót sælgætisgerð á miklum umbrotatímum í íslenskri sögu.“ Enn þann dag í dag er menningin hjá Freyju full af óþreytandi sér íslenskri bjartsýni segir Pétur. „Í vöruþróunarferli á nýjum páskaeggjum koma oft á tíðum upp hnökrar, þá gefumst við aldrei upp fyrr en við höfum náð réttum gæðum. Núna hefur úrvalið frá Freyju aldrei verið breiðara, en vinsælust eru alltaf Rís- og Draumaeggin. Þar fast á eftir fylgja Djúpueggin, Bombueggin, Saltkaramellueggið og Fjöreggið. Eigi fólk sér uppáhalds páskaegg mælum við með því að tryggja sér það tímanlega því sumar tegundir seljast einfaldlega upp. Í þeim málum þýðir ekki að vera yfir sig bjartsýnn að finna allar tegundir á sjálfan Páskadag.“
Páskar Sælgæti Mest lesið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Lífið Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Lífið samstarf Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Lífið Fleiri fréttir Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Sjá meira