Suðvestanátt með skúrum víða um land Atli Ísleifsson skrifar 25. mars 2025 07:03 Veðurstofan spáir fremur mildu veðri í dag. Vísir/Vilhelm Yfir landinu er nú dálítill hæðarhryggur, en minnkandi smálægð á Grænlandshafi, sem valda suðvestanátt með skúrum víða um land í dag, éljum til fjalla, en þurrviðri á Norður- og Austurlandi.
Á vef Veðurstofunnar segir að það lægi heldur þegar líður á daginn og að verði fremur milt í veðri. Hiti verður á bilinu tvö til níu stig og hlýjast austast. „Langt suður í hafi er þó vaxandi lægð, sem nálgast landið og eftir miðnætti snýst í suðaustankalda með rigningu, en sums staðar slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Á morgun gengur lægðin síðan þvert yfir landið, en snýst þá í stífa austan- og norðaustanátt með slyddu eða rigningu fyrir norðan og síðar snjókomu, en mun hægari sunnanátt með vætu syðra. Annað kvöld er lægðin komin austur af landinu, en hvessir þá með hríðarveðri á Vestfjörðum og við norðurströndina, en snýst í vestanstrekking allra syðst. Veður fer smám saman kólnandi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Gengur í austan og norðaustan 13-20 m/s með snjókomu eða slyddu norðantil og hita 0 til 5 stig, en suðlæg átt, 8-15 og rigning með köflum S- og V-lands með hita 2 til 7 stig. Snýst í suðvestan 13-18 syðst á landinu um kvöldið og hvessir heldur á Vestfjörðum. Á fimmtudag: Norðaustan 10-18 m/s, hvassast á Vestfjörðum, en mun hægari sunnan heiða. Víða snjókoma með köflum og vægt frost, en skúrir eða él sunnantil með hita 0 til 6 stig. Á föstudag: Norðlæg átt, 5-13 m/s, en austlægari syðst. Allvíða él og frost 0 til 8 stig, minnst syðst. Á laugardag: Norðaustlæg eða breytileg átt og él við suðurströndina, en annars úrkomulítið. Áfram svalt í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir að gangi í hvassa suðaustátt með slyddu, en síðan rigningu sunnan- og vestantil og hlýnar í veðri. Á mánudag: Líklega suðvestlæg átt og vætusamt, en úrkomulítið eystra og milt veður.
Veður Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Bryndís vill íslenska hermenn á blað Innlent Fimm sviptir réttindum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði Innlent Fleiri fréttir Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Sjá meira