Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2024 07:14 Það hefur verið kalt á landinu síðustu dagana. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan tíu til átján metrum á sekúndu og skúrum eða slydduéljum, en þurrt að mestu á austanverðu landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tvö til sjö stig. Það verður svo vestlægari vindur með éljum á Vestfjörðum seinnipartinn, kólnar og svo snýst í norðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu þar í kvöld. „Á morgun verður norðaustan 8-15 m/s og snjókoma með köflum, en bjart að mestu sunnan heiða. Dregur úr ofankomu síðdegis og kólnar, frost 0 til 10 stig seinnipartinn. Hvessir við suðausturströndina um kvöldið. Á föstudag verður norðaustan 5-13, en heldur hvassari suðaustantil. Bjartviðri um mest allt land, en skýjað norðaustanlands. Frost 5 til 18 stig, kaldast inn til landins norðantil. Þykknar upp suðaustantil og fer að snjóa um kvöldið. Á laugardag, kosningadaginn, verður norðaustan hvassviðri eða stormur. Snjókoma á austanverðu landinu, sums staðar talsverð, él norðvestantil, en þurrt að mestu suðvestanlands. Frost 0 til 8 stig. Dregur úr vindi og ofankomu á sunnudag og herðir á frosti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Gengur í norðan og norðaustan 10-18 m/s. Snjókoma með köflum, en þurrt að mestu á suðvestanverðu landinu. Frost 1 til 8 stig. Úrkomulítið á landinu um kvöldið, herðir á frosti og hvessir við suðausturströndina. Á föstudag: Norðaustan 5-13, en 13-18 við suðausturströndina. Þurrt og bjart veður á vestanverðu landinu. Skýjað austantil og fer að snjóa þar undir kvöld. Frost 4 til 16 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á laugardag: Norðaustan og norðan 10-15 m/s, en 15-20 austantil á landinu. Snjókoma á Austfjörðum, Austurlandi og Norðausturlandi. Él á Norðvesturlandi og Vestfjörðum. Yfirleitt úrkomulaust sunnan heiða. Frost víða 3 til 8 stig. Á sunnudag (fullveldisdagurinn): Norðan 5-10, en 10-15 austanlands. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en víða þurrt og bjart annars staðar. Frost 4 til 12 stig. Lægir um kvöldið, styttir upp og herðir á frosti. Á mánudag: Vaxandi sunnanátt, þykknar upp og hlýnar á sunnan- og vestanverðu landinu með dálítilli snjókomu og síðar rigningu. Breytileg átt, þurrt og kalt norðaustantil, en dregur hægt úr frosti. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt. Rigning eða slydda, en lengst af þurrt norðaustantil. Hiti um eða undir frostmarki.
Veður Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Sjá meira