Englendingar léku sér að Senegal og eru komnir í 8-liða úrslit

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Öflugir.
Öflugir. vísir/Getty

England mætir heimsmeisturum Frakklands í 8-liða úrslitum á HM í fótbolta eftir afar öruggan sigur á Senegal í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld.

Raheem Sterling var óvænt ekki í leikmannahópi enska liðsins í kvöld af fjölskylduástæðum.

Segja má að England hafi stýrt leiknum frá upphafi til enda en Senegal fékk þó tækifæri til að komast yfir eftir rúman hálftíma þegar Jordan Pickford þurfti að hafa sig allan við til að verja frá Boulaye Dia.

Jordan Henderson kom enska liðinu í forystu á 42.mínútu þegar hann batt endi á góða skyndisókn eftir góðan undirbúning frá ungstirninu Jude Bellingham. 

1-0 varð 2-0 skömmu síðar þegar markahrókurinn Harry Kane komst loks á blað. Aftur kom markið eftir snarpa skyndisókn sem hófst hjá Bellingham áður en Phil Foden setti Kane í gegn.

Afgreiðslan hjá Kane afar góð og enska liðið með tveggja marka forystu í leikhléið.

Senegal, án sinnar skærustu stjörnu, Sadio Mane, átti aldrei möguleika á að koma til baka í síðari hálfleiknum og þess í stað gerði Bukayo Saka endanlega út um leikinn eftir frábæran undirbúning Foden.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira