El Prado í Madrid er langstærsta listasafn Spánar og eitt stærsta listasafn veraldar. Spænska dagblaðið El Diario sendi í síðustu viku fyrirspurn til stjórnenda safnsins um hversu mörg verk á safninu væru illa fengin verk sem falangistastjórn Francos hefði stolið á sínum tíma.
Svarið kom í vikunni. Þau eru að minnsta kosti 64.
Einræðisstjórn Francos rændi um 16.000 listaverkum
Stórkostleg rán falangista á listaverkum í einkaeigu komust í hámæli í fyrra þegar listasöguprófessorinn Arturo Colorado gaf út bók um þessa víðtæku gripdeild. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að á meðan á borgarastríðinu stóð, frá 1936 til 1939, og eftir að einræðisstjórn Francos tók völdin, hafi spænskir fasistar Francos rænt um 16.000 listaverkum.
Stjórnendur Prado-safnsins segja í svari sínu að allt verði gert til að koma verkunum til sinna réttmætu eigenda, nokkuð sem hefur ekki verið reynt undanfarna áratugi, ekki fyrr en stuldurinn komst í hámæli. Til samanburðar má geta þess að Louvre-safnið í París hefur nú í meira en áratug unnið að því að koma illa fengnum verkum sem nasistar stálu af gyðingum í seinni heimsstyrjöldum til sinna réttmætu eigenda, eftir að lög þar um voru samþykkt í Frakklandi.
Engin áform um að skila verkum á söfnum
Hins vegar hefur menningarmálaráðuneyti Spánar engin áform um að koma hundruðum illa fenginna verka sem varðveitt eru á 16 söfnum spænska ríkisins til réttmætra eigenda sinna.
Á meðan á borgarastríðinu stóð var hinn heimsfrægi listmálari Pablo Picasso, forstjóri Prado-safnsins, nokkuð sem kemur mörgum á óvart. Hann var hins vegar í sjálfskipaðri útlegð í París í stríðinu og það var því aðstoðarforstjórinn sem hélt utan um gripdeild verkanna.
Kirkjan fékk stóran hluta þýfisins
Rannsóknir Colorado leiða í ljós að af tæplega 16.000 listaverkum sem Franco og hans menn stálu, hefur rúmlega 6.000 verkum ekki verið skilað aftur. Þau hafa verið gefin á ýmis söfn eða stofnanir, til einstaklinga sem voru Franco þóknanlegir eða til kirkjunnar sem fékk vænan hlut þýfisins eða um 1.300 verk. Um 600 verk er hins vegar ekkert vitað.