Veður

Hægur vindur og víða líkur á skúrum

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu níu til sextán stig.
Hiti á landinu verður á bilinu níu til sextán stig. Vísir/Vilhelm

Nú í morgunsárið er víða þoka norðan- og austantil á landinu, en það mun líklega rofa til allvíða þegar líður á morguninn.

Á vef Veðurstofunnar segir að annars verði fremur hægur vindur í dag, skýjað með köflum og víða líkur á skúrum, einkum síðdegis inn til landsins.

Hiti á landinu verður á bilinu níu til sextán stig.

„Norðan og norðvestan gola eða kaldi á morgun. Skýjað og sums staðar dálítil væta, en bjart með köflum á Suðurlandi. Hiti 7 til 12 stig, en að 19 stigum sunnantil á landinu. Annað kvöld bætir í vind og fer að rigna austanlands.

Á sunnudag er svo útlit fyrir ákveðna norðvestanátt með rigningu og svölu veðri á Norður- og Austurlandi, en sunnan- og vestantil á landinu verður úrkomulítið og talsvert mildara,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag: Norðan og norðvestan 8-15 m/s. Rigning á Norður- og Austurlandi og hiti 4 til 9 stig. Þurrt að kalla sunnan- og vestantil með hita 8 til 15 stig, en dálitlar skúrir syðst á landinu.

Á mánudag: Norðvestan 10-15 á norðaustanverðu landinu, en hægari í öðrum landshlutum. Bjart með köflum, en dálítil væta á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en þykknar upp með lítilsháttar vætu á vestanverðu landinu. Hiti 10 til 16 stig.

Á miðvikudag: Suðvestanátt og súld eða rigning með köflum, en þurrt að kalla á Austurlandi. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag: Suðvestanátt og dálítil væta víða um land. Milt í veðri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×