Madrídingar svöruðu fyrir tapið í seinustu umferð með stórsigri

Real Madrid vann stórsigur í kvöld.
Real Madrid vann stórsigur í kvöld. Anatolii Stepanov/Anadolu Agency via Getty Images

Real Madrid tapaði óvænt á heimavelli gegn Sheriff í síðasta leik í Meistaradeild Evrópu en bætti upp fyrir það með 5-0 útisigri gegn Shaktar Donetsk í kvöld.

Sergey Krivtsov skorðai fyrsta mark leiksins á 37. mínútu. Hann fór þó ekki alveg rétt að, en hann setti boltann í eigið net og staðan var því 1-0, Madrídingum í vil, þegar flautað var til hálfleiks.

Vinicius Junior tvöfaldaði forystu Real Madrid á 51. mínútu, áður en hann skoraði þriðja mark liðsins fimm mínútum síðar.

Á 65. mínútu var staðan orðin 4-0 eftir mark frá Rodrygo, en áðurnefndur Vinicius Junior lagði það mark upp.

Karim Benzema gerði svo algjörlega út um leikinn í uppbótartíma þegar hann tryggði Real Madrid 5-0 sigur.

Madridingar eru nú í öðru sæti D-riðils með sex stig, jafn mörg stig og moldóvska liðið Sheriff. Shaktar Donetsk er hins vegar í fjórða og neðsta sæti með aðeins eitt stig.

Úrlsit kvöldsins

A-riðill

Blub Brugge 1-5 Manchester City

PSG 3-2 RB Leipzig

B-riðill

Atlético Madrid 2-3 Liverpool

Porto 1-0 AC Milan

C-riðill

Besiktas 1-4 Sporting

Ajax 0-4 Borussia Dortmund

D-riðill

Inter 3-1 FC Sheriff

Shakhtar Donetsk 0-5 Real Madrid

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira