Gríðar­leg dramatík er Atlético vann í Mílanó | Ein ó­væntustu úr­slit síðari ára í Madríd

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Giorgos Athanasiadis, markvörður FC Sheriffof fagnar ásamt samherja sínum Dimitris Kolovos eftir ótrúlegan sigur liðsins á Real Madríd.
Giorgos Athanasiadis, markvörður FC Sheriffof fagnar ásamt samherja sínum Dimitris Kolovos eftir ótrúlegan sigur liðsins á Real Madríd. Gonzalo Arroyo Moreno/Getty Images

Meistaradeild Evrópu stóð heldur betur undir nafni í kvöld. Frábær fótbolti, mikil dramatík og einhver ótrúlegustu úrslit síðari ára. Spánarmeistarar Atlético Madríd unnu dramatískan 2-1 sigur á AC Milan og þá vann Sheriff Tiraspol ótrúlegan 2-1 sigur á Real Madríd á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd.

Í Mílanó komust heimamenn yfir eftir tuttugu mínútna leik þegar Rafael Leão setti tuðruna í netið eftir sendingu Brahim Díaz. Aðeins níu mínútum síðar fékk Franck Kessie sitt annað gula spjald og heimamenn því manni færri það sem eftir lifði leiks. Staðan var þó enn 1-0 er flautað var til hálfleiks.

Heimmenn færðust neðar og neðar á völlinn í síðari hálfleik á meðan gestirnir bættu ítrekað í sóknarleikinn. Á endanum brast stíflan en þá skoraði varamaðurinn Antoine Griezmann og jafnaði metin í 1-1. Þarna voru sex mínútur til leiksloka og heimamenn eflaust sáttir með stig.

Það var hins komið fjórar mínútur fram yfir venjulegan leiktíma þegar Pierre Kalulu handlék knöttinn innan vítateigs og eftir að atvikið var skoðað af myndbandsdómara leiksins var vítaspyrnudómurinn staðfestur.

Luis Suárez fór á punktinn og brást ekki bogalistin, tryggði hann Atlético 2-1 sigur í hörkuleik. Spánarmeistararnir nú komnir með fjögur stig í B-riðli á meðan AC Milan er enn án stiga.

Á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd var Sheriff Tiraspol frá Transnistríu í heimsókn. Gestirnir eru að taka þátt í riðlakeppni Meistaradeild Evrópu i fyrsta skipti. Það er ekki að sjá en liðið vann Shakhtar Donetsk 2-0 í fyrstu umferð og gerði sér svo lítið og vann Real í kvöld.

Gestirnir komust 1-0 yfir með hörkuskalla Djasur Yakhshibaev eftir fyrirgjöf Cristiano frá vinstri á 25. mínútu leiksins. Var staðan enn 1-0 Sheriff í vil er flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Þegar klukkustund var liðin af leiknum féll Vinícius Júnior innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Karim Benzema fór á punktinn og skoraði af öryggi. Staðan orðin 1-1 en í stað þess að láta kné fylgja kviði var staðan enn jöfn er leiktíminn var í þann mund að renna sitt skeið.

Á 89. mínútu leiksins féll boltinn fyrir fætur Sebastian Till fyrir utan teig. Sá smellhitti boltann með vinstri fæti þannig að hann fór rakleiðis upp í samskeytin vinstra megin og gestirnir ærðust enda komnir 2-1 yfir. 

Till varð þar með fyrsti leikmaðurinn frá Lúxemborg til að skora í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Reyndist sigurmark leiksins og Sheriff með fullt hús stiga að loknum tveimur leikjum í D-riðli. Real kemur þar á eftir með þrjú stig á meðan Inter og Shakhter Donetsk eru með eitt stig.

Að lokum vann Borussia Dortmund 1-0 sigur á Sporting þökk sé marki Donyell Malen á 37. mínútu.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.


Tengdar fréttir

Engin vand­ræði hjá Liver­pool á Dreka­völlum

Liverpool gerði góða ferð til Portúgal þar sem liðið vann 5-1 stórsigur á Porto í Meistaradeild Evrópu. Liðið er komið í einkar góða stöðu þegar aðeins tvær umferðir eru búnar í B-riðli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira