Birtu myndband af lögreglumönnum skjóta táningsstúlku til bana Samúel Karl Ólason skrifar 29. janúar 2015 14:19 Vísir/Getty og Facebook
Lögregla í Texas í Bandaríkjunum hefur birt myndband af því þegar þrír lögreglumenn skutu hina 17 ára gömlu Kristianu Coignard til bana í anddyri lögreglustöðvar. Fjölskylda hennar hefur mótmælt atvikinu harðlega og segir hana hafa átt við geðræn vandamál að stríða. Lögreglan segir lögregluþjónana þrjá hafa brugðist rétt við þegar stúlkan réðst að öðrum þeirra með stóran hníf. Þá segir lögreglan að skot úr rafbyssu hafi ekki stöðvað hana. Atvikið hefur vakið mikla reiði og kemur í kjölfar fjölda skipta sem lögreglan í Bandaríkjunum hefur skotið fólk til bana. „Allir lögreglumenn bera rafbyssur og kylfur,“ hefur Sky News eftir lögreglustjóranum Don Dingler. „Ég tel að þið munið sjá á þessu myndbandi að tíminn hafi skipt máli í þessu tilviki. Lögregluþjónarnir höfðu ekki tíma til að beita öðrum tólum.“ Samkvæmt fjölskyldu stúlkunnar átti hún við geðræn vandamál að stríða og hafði tvisvar sinnum reynt að fremja sjálfsmorð. Á myndbandinu sést að hún kom inn á lögreglustöðina og bað um hjálp. Talskona lögreglunnar sagði að Coignard hafi ekki viljað segja af hverju hún vildi hjálp. Þegar lögreglumaður kom til hennar lyfti hún upp höndum en í öðrum lófa hennar stóð: „Ég er með byssu“. Þá byrja þau að kljást sem endar með því að lögreglumaðurinn nær henni niður í gólfið. Hann heldur henni niðri, en hörfar þegar hún dregur upp hníf. Tveir aðrir lögregluþjónar standa nú nálægt henni og annar miðar á hana byssu og hinn rafbyssu. Þá hleypur hún í áttina að einum þeirra. Einn lögregluþjónninn skýtur hana með rafbyssu, áður en hinir skjóta hana til bana. Lögregluþjónarnir þrír eru nú í launuðu leyfi á meðan málið er rannsakað.
Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Sjá meira