Fótbolti

Pires spilaði á forugum velli í Grænlandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/sermitsiaq.ag
Robert Pires, fyrrum leikmaður Arsenal, fór fremstur í flokki í sýningarleik sem fór fram í Grænlandi á dögunum.

Varietes Club de France samanstendur af gömlum knattspyrnukempum og fleiri tengdum aðilum sem ferðast um heiminn í þeim tilgangi að leika góðgerðarleiki víða um heim.

Á mánudaginn heimsótti liðið Grænland og lék gegn heimamönnum á Nuuk-leikvanginunum. Frakkarnir unnu 10-0 sigur og skoraði Pires tvö mörk auk þess að leggja nokkur upp.

Eins og sjá má á þessum myndum var völlurinn grútdrullugur og illa farinn eftir vetrartíðina í Grænlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×