Innlent

Tíu ár síðan móðir með ellefu ára son óttaðist um líf sitt á Langjökli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mike og Beata Scott á blaðamannafundi í febrúar árið 2010. Beata átti erfitt með að tjá sig við fjölmiðla og grét mikið.
Mike og Beata Scott á blaðamannafundi í febrúar árið 2010. Beata átti erfitt með að tjá sig við fjölmiðla og grét mikið.

Þau urðu viðskila við hóp sinn í blindbyl á Langjökli. Þau grófu sig í fönn og leituðu skjóls bak við vélsleðann í átta klukkustundir. Ferðaþjónustufyrirtækið fór í ferðina þrátt fyrir slæma veðurspá. Ellefu ára barn fékk kalsár.

Þannig mætti draga saman rúmlega viku gamalt mál en sömuleiðis tíu ára gamalt mál þar sem mæðgin frá Skotlandi, móðir með ellefu ára son sinn, sluppu með skrekkinn í vélsleðaferð á Langjökul.

Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og kannski enn meiri þar sem nokkrum vikum fyrr hafði orðið banaslys á jöklinum.

Alls hafa því fjögur mál komið upp undanfarin tíu ár á Langjökli þar sem fleiri hundruð björgunarsveitarmenn hafa leitað fólks. Enginn hefur týnt lífi en ferðalangar hafa í öllum tilfellum óttast um líf sitt.

Sex ára barn í hópnum

Ferð Mountaineers of Iceland með 39 ferðamenn á Langjökul í síðustu viku vakti mikla athygli. Farið var í ferðina þrátt fyrir slæma veðurspá enda töldu forsvarsmenn Mountaineers of Iceland vel mögulegt að ljúka ferðinni áður en slæma veðrið skylli á.

Endurteknar seinkanir urðu til þess að á leiðinni til baka komst fólkið ekkert áfram. Í hópnum var fólk af ýmsum þjóðernum og allt niður í sex ára gamalt.

Haukur Herbertsson, rekstrarstjóri Mountaineers of Iceland, í viðtali við fréttastofu daginn eftir ferðina.

Forsvarsmenn Mountaineers of Iceland hafa viðurkennt að mistök hafi verið gerð. Annars vegar að fara í ferðina til að byrja með og hins vegar að óska ekki eftir aðstoð björgunarsveita fyrr en sex klukkustundum eftir að fólkið varð strand á jöklinum.

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.

Dæmdar skaðabætur

Þann 5. janúar 2017 fyrir rétt rúmum þremur árum voru björgunarsveitir Landsbjargar kallaðar út síðdegis vegna tveggja einstaklinga sem höfðu orðið viðskila við hóp vélsleðafólks á Langjökli. Sextíu manns tóku þátt í leitinni.

Áströlsku hjónin Gail og David Wilson urðu viðskila við hóp sinn í ferðinni en enginn tók eftir því þegar það gerðist. Fór svo að þau stefndu fyrirtækinu og voru þeim dæmdar skaða- og miskabætur.

Á annað hundrað manns tóku þátt í leit að hjónunum á Langjökli í janúar 2017.Kristinn Ólafsson

Lagt hafði verið á jökulinn þrátt fyrir stormviðvörun. Innanlandsflug lá niðri á landinu þennan dag.

Leiðsögumennirnir töldu þó veðrið ekki vera því til fyrirstöðu að fara í ferðina. Eftir að lagt var af stað versnaði veðrið síðan til muna.

Náði ekki beygju vegna þreytu

Fyrirtækið Snowmobile stóð fyrir stóð fyrir vélsleðaferð sextán ferðamanna þann 14. febrúar 2010. Með í för var hin skoska Beata Scott og ellefu ára sonur hennar Jeremy. Hún lýsti því á blaðamannafundi hvernig hún hefði verið búin að gefa upp alla von um að bjargast.

Lagt var upp í ferðina í birtu á sunnudegi en þegar tók að kvölda skall á mikill blindbylur. Beata og Jeremy urðu viðskila við hópinn þegar hún náði ekki beygju vegna þreytu.

Úr umfjöllun Fréttablaðsins í febrúar 2010.Tímarit.is

„Ég reyndi að öskra,“ útskýrði Beata á fundi með blaðamönnum.

„Jeremy brast strax í grát og ég fylltist örvæntingu.“

Hún sagðist hafa reynt að fylgja hópnum á eftir en snjósleðinn einfaldlega drepið á sér. Þau biðu, hrópuðu á hjálp og töldu að einhver úr hópnum kæmi að sækja þau.

„Fyrst réð örvæntingin ríkjum. Mig langaði mest að gráta. En svo skyndilega, án umhugsunar, hófst ég handa,“ sagði hún.

Nú þurfum við að byggja okkur snjóhús

Beata lýsti því hvernig hún hefði fengið hjálp frá syni sínum við að velta sleðanum. Þannig hafi þau skapað sér skjólvegg.

„Ég sagði við hann: Komdu Jeremy. Nú þurfum við að byggja okkur snjóhús. Við byrjuðum að reisa vegg umhverfis sleðann og notuðum hlífðarplastið af sleðanum sem skóflu. Vindurinn feykti henni því miður fljótlega úr höndunum á mér,“ sagði Beata.

Beata reif þá vélarhlífina af sleðanum, lagðist ofan á son sinn og skýldi þeim með hlífinni í heilar átta klukkustundir.

Þau hafi stytt sér stundir með orðaleikjum og reynt að fanga athygli björgunarþyrlu sem þau sáu nokkrum sinnum. Það bar ekki árangur. Rétt áður en þau fundust loksins var Beata að eigin sögn búin að gefa upp alla von. Jeremy var einnig viss um að mæðginin myndu deyja.

Líktu björgunarsveitum við ofurmenni

Fram kom í máli Mike Scott, eiginmanns Beötu, að hann hefði ekki áttað sgi á því að kona hans og sonur væru horfin fyrr en við komuna niður af jöklinum. Hann var verulega ósáttur við ferðaþjónustufyrirtækið Snowmobile fyrir að hafa lagt af stað í ferðina þrátt fyrir að spáð væri illviðri síðar um daginn. Þá hefðu ferðalangarnir ekki verið varaðir við slæmu veðri.

Líkt og svo oft spöruðu hjónin ekki hrósið í garð björgunarsveitarmanna en um þrjú hundruð slíkir komu að leitaraðgerðum. Var björgunarsveitum líkt við ofurmenni. Ekkert stöðvaði þau.

Lögreglan á Selfossi, nú lögreglan á Suðurlandi, fékk málið til rannsóknar en það var rannsakað sem hvert annað slys. Voru forsvarsmenn Snowmobile kallaðir til skýrslutöku.

Hjónin sögðust á sínum tíma vera að skoða hvort tilefni væri til að grípa til aðgerða gagnvart Snowmobile. Það virðist ekki hafa verið gert.

Arctic Adventures festi árið 2015 kaup á Snowmobile. Arctic adventures og Mountaineers of Iceland eru risarnir tveir í vélsleðaferðum á Langjökul.


Tengdar fréttir

Störukeppni í vonskuveðri uppi á Langjökli

Reyndur leiðsögumaður segir það vekja mann til umhugsunar hve tregar ferðaskrifstofur séu til að hætta við ferðir þrátt fyrir slæmt veður og aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×