Fundu leifar hershöfðingja Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. desember 2009 08:34 Cao Cao eins og listamaður ímyndar sér hann.
Kínverskir fornleifafræðingar telja sig hafa fundið gröf hins alræmda hershöfðingja Cao Cao sem uppi var á þriðju öld. Gröfin fannst í borginni Anyang í Henan-héraðinu í Kína, að sögn kínverskra fjölmiðla, og er talið að þar hafi verið lagður til hinstu hvílu ekki ómerkari maður en hinn alræmdi hershöfðingi Cao Cao sem lést árið 220 í Luoyang, þáverandi höfuðborg Han-keisaradæmisins. Hershöfðinginn var þekktur um alla Austur-Asíu fyrir gerræðislega stjórnunarhætti sína og er að minnsta kosti eitt kínverskt máltæki kennt við hann en það er á þessa leið: „Nefndu nafn Cao Cao og þá birtist hann". Máltækið hefur sömu merkingu og íslenska orðalagið oft kemur illur þá um er rætt og segir sitt um ævi og störf herforingjans sem var þekktur fyrir herkænsku, miskunnarleysi og slægð. Cao Cao var síðasti landstjóri hins illræmda Han-keisaradæmis en hvarf þaðan og stofnaði sitt eigið ríki í kjölfar þess umróts sem varð í kínverskum stjórnmálum við endalok tímabils hinna þriggja konungdæma Han-veldisins. Fornleifafræðingar segja að þær jarðnesku leifar sem fundust í gröfinni séu af um það bil sextugum manni sem lagður hafi verið til hinstu hvílu með öllum þeim viðbúnaði sem þá tíðkaðist í Kína. Þá hafi líkamsleifar tveggja eiginkvenna hins látna fundist í gröfinni og komi það heim og saman við frásagnir sagnaritara af ævilokum hershöfðingjans.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira