Innlent

Lak aftur inn í heilsugæsluna - kjallarinn líklega ónýtur

Heitt vatn lak aftur í kjallarann í heilsugæslunni í Drápuhlíð og er talið nær öruggt að kjallarinn sé ónýtur samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Slökkviliðið var kallað út í morgun vegna mikils leka í kjallaranum. Var þá talið að heitavatnslögn hefði gefið sig. Slökkviliðsmenn hreinsuðu kjallarann, þar sem meðal annars skrifstofur starfsmanna heilsugæslunnar eru.

Það var svo núna síðdegis sem slökkviliðið var kallaður aftur á vettvang. Var kjallarinn þá aftur búinn að fyllast af vatni og í ljós kom að lögn í götunni á vegum Orkuveitunnar, virðist hafa gefið sig og lekið niður í kjallarann.

Auk slökkviliðsmanna eru starfsmenn Orkuveitunnar á vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×