Erlent

Fuglaflensa greinist í Svíþjóð

MYND/AP
Hið hættulega afbrigði fuglaflensunnar, af stofni H5N1, hefur greinst í suðurhluta Svíþjóðar. Í hádeginu var blaðamannafundur með fulltrúum ríkisstjórnarinnar vegna málsins. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn. Landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að grípa til varnaraðgerðar á svæðinu go er að rannsaka hversu útbreitt smitið er.

Fram til þessa hefur svonefnt áhættustig eitt verið í gildi hérlendis en þá er lítil hætta talin á að fuglaflensa berist til landsins. Nú er allt útlit fyrir að við færumst yfir á viðbúnaðarstig tvö, sem þýðir að mikil hætta sé á að flensan berist hingað tuil lands.

Nágrannaþjóðir okkar hafa skyldað bændur til að loka alifugla sína inni, jafnvel þar sem flensan hefur ekki fundist. Færist viðbúnaðarstigið upp hérlendis verður slík reglugerð að öllum líkindum einnig sett hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×